Læknablaðið - 15.07.1996, Qupperneq 27
(ómeprazól)
-áhrifaríkt íslenskt magalyf
-gegn bólgu
í véliuda
vegua bakflϚis.
-gegu magasári og
Zollitiger-Ellison
heilkei......
Lómex (ómeprazól)
Framleiðandi: Ómega Farma ehf. Sýruhjúphylkl; A 02B C 01 B E Hvert sýruhjúphylki inniheldur: Omeprazolum
INN 20 mg. Ábendingar: Sársjúkdómur i skeifugörn og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæðis. Zollinger-Ellison
heilkenni (syndrome). Æskilegt er að þessar greiningar séu staðfestar með speglun. Langtimanotkun við bólgu í vélinda
vegna bakflæðis eða við siendurteknum sárum i maga eða skeifugörn: Ekki er mælt með notkun lyfsins lengur en í þrjú ár.
Frábendingar: Engar þekktar. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru frá meltingarvegi svo sem niðurgangur,
ógleði og hægðatregða; einnig höfuðverkur. Algengar (>1%): Almennar: Höfuðverkur. Meltingarfæri: Niðurgangur,
ógleði, uppköst, hægðatregða. kviðverkir og aukin vindgangur. Sjaldgæfar(0,1-1%): Almennar: Svimi, syfja, þreyta.
Taugakerfi: Svefntruflanir, skyntruflanir. Húð: Útbrot, kláði. í stöku tilvikum hefur eftirfarandi verið lýst i tengslum við
ómeprazól meðferð, en orsakasamband er ekki sannað: Liðverkir, vöðvaþreyta, vöðvaverkir. Tímabundið rugl og
æsingur, þunglyndi og ofskynjanir. Munnþurrkur, bólga í munni, sveppasýking i munni. Breytingar á lifrarenzýmum,
encephalopathia hjá sjúklingum með lifrarbilun, lifrarbólga með eða án gulu. Stækkun á brjóstkirtlum. Fækkun á hvítum
blóðkornum og blóðflðgum. Bjúgur. Pokusýn. Breytingar á bragðskyni. Aukið Ijósnæmi, erythema multiforme, hárlos.
Aukin svitamyndun. Hiti, berkjusamdráttur. Nýrnabólga. Milliverkanir: Ómeprazól getur minnkað umbrotshraða diazep-
ams, warfarins og fenýtóins i lifur. Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarin eða fenýtóin og getur verið nauðsynlegt
að minnka skammta. Eiturverkanir: Engar upplýsingar liggja fyrir um eiturverkanir i mönnum. Nákvæmar leiðbeiningar
um meðferð eru þvi ekki þekktar. Athugið: Ekki er ráðlegt að gefa lyfið á meðgöngutíma og við brjóstagjöf nema brýn
ástæða sé til. Skammtastærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylkin á að gleypa heil með a.m.k. 1/2 glasi af vatni. Tæma
má innihald hylkjanna í t.d. skeið og taka það þannig inn en þau má ekki tyggja. Gæta skal þess að geyma hylkin i
vandlega lokuðu glasi. Skeifugarnarsár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda
meðferð áfram i 2vikur í viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið
gefin og sárið gróið, oftast innan 4 vikna. Magasár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má
halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum sem ekki hafa svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á
dag verið gefið og sárið gróið, oftast innan 8 vikna. Bólga í vélinda vegna bakflæðis: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í
4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð áfram i 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað
annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna. Zollinger-Ellison
heilkenni (syndrome): Venjulegur skammtur er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir
geta verið á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir 80 mg þarf að skipta honum i tvær lyfjagjafir. Langtimameð-
ferð vegna bakflæðis í vélinda eða vegna siendurtekins sársjúkdóms i maga eða skeifugörn: Venjulegur skammtur er 20
mg einu sinni á dag. Ef einkenni versna má auka skammtinn í 40 mg einu sinni á dag. Skammtastærðir handa börnum:
Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá bömum.
Pakkningar og verð 1. sept. 1995:
Sýruhjúpshylki 20mg: 14stk. - 3953 kr.;28stk. -7546kr.;56stk. -13984kr.; 100stk. -23494 kr.