Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.07.1996, Side 33

Læknablaðið - 15.07.1996, Side 33
KLÓFEN-L (díklófenak) - langvirkt gigtarlyf Klófen-L (díklófenak) Framlelðandi: Omega Farma ehf. Forðahylki; M 01 A B 05 R E Hvert forðahylki innlheldur: Diclofenacum INN, natriumsalt, 100 mg. Eiginleikar: Lyfið minnkar myndun prostaglandína f líkamanum. Það hefur bólgueyðandi og verkjastill- andi verkun. Aðgengi lyfsins eftir inntöku er nálægt 50%. Þetta lyfjaform hefur forðaverkun og nær blóðþéttni lyfsins hámarki 3-7 klst. eftir inntöku, sé lyfið gefið með mat, en verkun helst í 12-24 klst. Próteinbinding í blóði er 99,7%. Lyfið skilst út sem umbrotsefni, um 60% í þvagi og um 30% í saur. Ábendingar: Gigtsjúkdómar, þar með taldir iktsýki (arthritis rheumatoides), hryggikt (spondylitis ankylopoetica), slitgigt og vöðvagigt. Vefkir. Þvagsýrugigt. Frábendingar: Sár í maga eða skeifugöm. Lyfið má ekki gefa sjúklingum sem fá astma, nefrennsli eða ofsakláða af acetýlsalicýlsýru eða öðrum skyldum lyfjum. Skorpulifur. Alvarleg hjartabilun og nýmasjúkdómur. Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Meðganga og brjóstagjöf: Lyf, sem hindra prostaglandínframleiðslu, geta haft ýmis áhrif á fóstur svo sem leitt til háþrýstings í lungnablóðrás og öndunarerf- iðleika eftir fæðingu. Þau geta einnig aukið blæðingarhættu vegna áhrifa á blóðflögur og valdið nýmaskemmdum, sem leiða til skertrar þvagframleiðslu eftir fæðingu og minnkun á legvatni. Lyf af þessum flokki ber því að forðast á meðgöngu, en einkum er mikilvægt að nota lyfið ekki á síðasta þriðjungi meðgöngu og alls ekki síðustu daga fyrir fæðingu. Lyfið skilst út í brjóstamjólk, en ólíklegt er að lyfjaáhrifa gæti hjá barni á brjósti við venjulega skömmtun lyfsins. Aukaverkanir: í upphafi meðferðar fá um 10% sjúklinganna óþægindi frá meltingarfærum, sem venjulega hverfa á fáeinum dögum þrátt fyrir áframhaldandi töku lyfsins. Algengar(> 1%): Höfuðverkur, svimi. Magaverkir, ógleði, uppköst, niðurgangur. Útbrot. Sjald- gæfar: Bjúgur. Ofnæmi. Þreyta. Meltingarsár, blæðing frá meltingarfærum. Ofsakláði. Trufluð lifrarstarfsemi. Mjóg sjaldgæf- ar(<0,1%): Fækkun blóðflagna, hvítra blóðkoma og/eða rauðra blóðkorna. Sjóntruflanir, eymasuða, svefntruflanir, óróleiki, krampar. Rugl. Blöðrumyndun á húð, regnbogaroðsótt (erythema multiforme), Steven-Johnson heilkenni, Lyells heilkenni, hárlos, Ijósóþol. Truflað húðskyn. Bráð nýrnabilun, blóð í þvagi, nýrna- og skjóðubólga, nýrungaheilkenni (nephrotic syndrome). Milllverkanir: Lyfið virðist hvorki hafa áhrif á lyfjahvörf segavarnarlyfja né lyfja við sykursýki, en rétt er að sýna aðgát ef slík lyf og díklófenak eru gefin samtímis, vegna mikillar próteinbindingar í blóði. Blóðþéttni litíums og dígoxíns hækkar ef diklófenak er gefið samtímis. Háskammta metótrexatgjðf samtímis gjöf díklófenaks getur valdið alvarlegum eiturverkunum vegna minnkaðs útskilnaðar á metótrexati. Varúð: Varúðar skal gæta hjá sjúklingum með colitis ulcerosa, Crohns sjúkdóm, truflaða blóðmyndun.blæðingartilhneigingu eða hjartabilun. Enn fremur skal gæta varúðar við gjöf lyfsins ef sjúklingar eru með skerta nýma- eða lifrarstarfsemi (t.d. aldraðir), taka segavarnalyf, þvagræsilyf (blóðkalíum) eða lyf við sykursýki. Við langtímameðferð þarf að fylgjast með lifrarstarfsemi og blóðhag. Porfyria. Athugið: Eftir inntöku 100 mg lyfsins hjá mjólkandi konum fannst lyfið ekki í mjólk (greiningarmörk: 10 ng/ml). Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur skammtur er eitt forðahylki á dag, með mat. Skammtastærðir handa börnum: Þetta lyfjaform er ekki ætlað bömum. Pakkningar og verð 1. sept. 1995: Forðahylki 100 mg: 10 stk. - 1Q33 kr.; 30 stk. - 2738 kr.; 100 stk. - 8474 kr. o OMEGA FARMA íslenskt almenningshlutafélag um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.