Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.1996, Qupperneq 41

Læknablaðið - 15.07.1996, Qupperneq 41
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 531 Nýr doktor í læknisfræði Þann 4. nóvember 1995 varði Þorsteinn Njálsson læknir doktorsritgerð við Háskóla ís- lands. Ritgerðin nefnist: On Content of Practice. The advantages of computerized infor- mation systems in family practice. Fer ágrip úr ritgerðinni hér á eftir. Doktorsritgerðin fjallar um tölvufærð sam- skipti íslendinga við heimilislækna og heilsu- gæslustöðvar víða um land. Alls 257 þúsund samskipti 50 þúsund einstaklinga yfir eitt ár. Á hverju ári lætur nærri að ein milljón samskipta eigi sér stað við heilsugæsluna. Til samanburð- ar má nefna að sérfræðilæknar innheimta ár- lega fyrir 330 þúsund viðtöl. Umfangið er því gríðarlegt og margt sem er fróðlegt. Rann- sóknarhópurinn sem býr í dreifbýli hefur sam- svarandi aldurs- og kynskiptingu og íslending- ar allir, sem gefur möguleika á því að heimfæra niðurstöður þess hóps á íslendinga alla. Upp- lýsingar sem dregnar hafa verið fram í þessu safni eru í höfuðatriðum: 1) Af hverju leita íslendingar til heimilislækna, 2) hvað er það sem læknar telja að gangi að þessum einstak- lingum, og 3) hvað var gert fyrir þessa einstak- linga, það er ráðgjöf, aðgerðir, innlagnir, til- vísanir, lyfjagjöf, rannsóknir svo nokkuð sé nefnt. Til frekari fróðleiks má nefna að 36-39% af tilefnum komu til heimilislæknis voru vegna sjúkdómseinkenna, og 44-50% að frumkvæði heilbrigðisstarfsmanna. Meðaleinstaklingur- inn kemur þrisvar til heimilislæknis á ári og hringir 1,1-1,6 sinnum. Konur koma 40% oftar en karlar. Algengi heilsuvanda sem tengjast öndunarfærum, slysum og stoðkerfi er rúmlega 200 á 1000 einstaiclinga á ári. Fyrir hver 1000 samskipti skrifa heimilislæknar út 648 lyf, senda í 141 blóð- og þvagrannsókn, framkvæma 126 aðgerðir, skrifa út 15-24 tilvísanir og leggja inn 15-26 á sjúkrahús. Lyfjafjöldi sem ávísað er samsvarar 3,3 lyfjaávísunum á hvert manns- barn á ári. Þau lyf sem mest er ávísað eru tauga- og geðlyf í um 9-12% samskipta, sýkla- lyf í 10% og hjartalyf í 6-10% samskipta. Kostnaður af röntgenmyndatökum í heilsu- gæslunni er um 60 þúsund krónur á hver 1000 samskipti. Niðurstöður þessar má nýta til að reikna út kostnað af því sem læknar láta framkvæma og framkvæma sjálfir. Finna má út hvernig læknar leysa hin ýmsu vandamál, draga af því ályktan- ir til að bæta meðferð og minnka kostnað. Nýta má upplýsingar til að spá fyrir um framtíðar- byrðar af sjúkdómum, sem er áhugavert þegar við vitum að þjóðin eldist og við getum undir- búið okkur undir þær breytingar. Bæta má grunnmenntun lækna sem og símenntun, út frá upplýsingum sem þessum. Tölvufærðar sjúkraskýrslur eru mikilvægar til rannsókná og stjórnunar á heilbrigðiskerf- inu. Engar persónuupplýsingar mega né held- ur þurfa að koma fram. Upplýsingar geta bor- ist hratt og gefið möguleika á viðeigandi við- brögðum til hagsbóta fyrir allan almenning sem og stjórnendur heilbrigðismála.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.