Læknablaðið - 15.07.1996, Qupperneq 44
Léttir af
þungu fargi
Geðdeyfðarlyf
með eiginleika
frumlyfs á verði
samheitalyfs
:luoxin
flúoxetín
Framleiöandi: Lyfjaverslun íslands hf.,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík.
Nafn sérlyfs: Fluoxin HYLKI; N 06 A B 03
Hvert hylki inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríö,
samsvarandi Fluoxetinum INN 10 mg eöa 20 mg.
Eiginleikar: Flúoxetln er geödeyföarlyf, sem er taliö
blokka endurupptöku serótóníns (5-HT) í taugaenda í heila.
Flúoxetín minnkar matarlyst. Lyfiö hefur lltil sem engin áhrif á noradrenalín eöa önnur boðefni í heila.
Blóöþéttni lyfsins nær hámarki u.þ.b. 6 klst. eftir inntöku. Helmingunartími flúoxetíns í blóöi er 2-3 dagar.
Aöalumbrotsefni flúoxetíns er norflúoxetín, sem er álíka virkt og flúoxetín og helmingunartími þess er 7-
9 dagar. Próteinbinding ( plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast út í þvagi, aö mestu
sem umbrotsefni. Vegna þess hve helmingunartími lyfsins er langur koma breytingar á skammtastæröum
ekki fram fyrr en eftir nokkrar vikur. Ábendingar: Innlæg geödeyfö (unipolar og bipolar). Alvarlegt,
langvarandi þunglyndi, sem á sér ytri orsakir. Matgræðgiköst (bulimia nervosa). Þráhyggjusýki (obsessive-
compulsive disorder). Frábendingar: Meöganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúöar ber aö gæta viö
flogaveiki, alvarlega nýrnabilun, lifrarsjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Aukaverkanir: Ógleöi,
óróleiki, minnkaöur svefn, höfuöverkur, skjálfti, kvíöi, sljóleiki, munnþurrkur og aukin svitamyndun. Ofnæmi meö
útbrotum og liöverkjum. Milliverkanir: Lyfiö má ekki nota meö MAO-hemjandi lyfjum og þar sem lyfiö og
umbrotsefni þess hverfa ekki úr líkamanum fyrr en mörgum vikum eftir aö töku þess er hætt, er ekki óhætt aö nota
MAO-hemjandi lyf fyrr en liðiö hafa a.m.k. 5 vikur frá því aö töku flúoxetíns er hætt. Ekki ætti aö nota tryptófan meö
þessu lyfi. Hækkun á litíumþéttni hefur sést eftir samtímis gjöf af flúoxetíni og þarf að fylgjast vel meö litlummagni í
blóði. Athugið: Viö þunglyndi getur sjálfsmorðshætta aukist í byrjun meöferöar. Flogaveikisjúklingar þurfa aö vera
undir mjög góðu eftirliti vegna aukinnar hættu á flogum. Skammtastæröir handa fullorðnum: Venjulegur
upphafsskammtur er 20 mg, sem heppilegt er aö taka aö morgni. Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir 2-3 vikur. Fáist ekki
fullnægjandi verkun má auka skammtinn smám saman, þó ekki í meira en 80 mg á dag. Viö matgræögiköstum: Skammtar
eru oftast 40 - 60 mg á dag. Viö þráhyggjusýki: Upphafsskammtur er 20 mg á dag. Ef ekki næst viöunandi árangur, má auka
skammtinn eftir 3-4 vikur. Hærri skammta en 20 mg á aö gefa í tveimur skömmtum á dag. Hámarksskammtur er 80 mg
daglega. Við mikið skerta lifrar- eöa nýrnastarfsemi og hjá öldruöum getur þurft aö gefa lægri skammta en 20 mg á dag.
Útlit: 10 mg hylki: Eru græn og Ijósblá og innihalda litarefnin kínólíngult (E 104), indigótín (E 132) og títantvíoxíö (E 171).
20 mg hylki: Eru vfnrauö og græn og innihalda litarefnin kínólíngult (E 104), indigótín (E 132), títantvíoxfö (E 171) og
erýtrósín (E 127) Pakkningar: Hylki 10 mg: 30 stk./100 stk. Hylki 20 mg: 30 stk./100 stk.