Læknablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
923
Table I. Age, gender and type of cerebral ischemia in patients
who were admitted to the Department of Neurology and
Rehabilitation Medicine and Department of Intemal Medicine at
Reykjavík City Hospital.
Neurology and Rehabilitation N (%) Intemal Medicine N (%)
Mean age (SD) 68.5 74.4
Male:female ratio 59:43 25:44
Transient ischemic attack 23 (23) 13 (19)
Cerbral infarct 79 (79) 56 (81)
Total 102 69
farið yfir sjúkraskrár þeirra. Þetta ár lögðust
þeir sem leituðu til spítalans vegna bráðs heila-
blóðfalls annað hvort inn á endurhæfinga- og
taugadeild eða lyflækningadeild. Þeir sem
höfðu heilablæðingu og þeir sem ekki höfðu
nýtt heilablóðfall við innlögn voru útilokaðir
frá rannsókninni.
Einstaklingar með heiladrep og skammvinna
heilablóðþurrð (transient cerebral ischemia)
reyndust 171 og lögðust 102 (60%) á endur-
hæfinga- og taugadeild, en 69 (40%) á lyflækn-
ingadeild (tafla I).
Einstaklingar sem grunaðir voru um heila-
blóðfall voru fyrst skoðaðir á slysa- og bráða-
móttöku Borgarspítalans. Þar voru fram-
kvæmdar blóðrannsóknir, tekið hjartalínurit og
í flestum tilvikum tölvusneiðmynd af höfði.
Þeir voru einnig skoðaðir af taugalækni sem
mælti fyrir um ítarlegri rannsóknir. Einstak-
lingar sem í upphafi voru taldir hafa góðar end-
urhæfingarhorfur og höfðu ekki sjúkdóma sem
þörfnuðust meðferðar á lyflækningadeild voru
lagðir á endurhæfinga- og taugadeildina. Þar
var skipulega leitað að sjúkdómum í hálsæðum
og hjarta, auk þess sem tekin var afstaða til
þess hvort um smáæðasjúkdóm í heila gæti
verið að ræða.
Heiladrep og blóðþurrðarköst voru flokkuð
með tilliti til orsaka á eftirfarandi hátt:
1. Sjúkdómur í hálsslagœðum: Þegar ein-
kenni voru frá næringarsvæði innri hálsslagæð-
ar og marktæk þrenging eða lokun í sömu æð
við ómskoðun og/eða æðamyndatöku og ef
ekki fundust í hjarta viðurkenndar ástæður fyrir
heilablóðfalli.
2. Hjartasjúkdómur: Þegar sýnt var fram á
hjartasjúkdóm sem viðurkennt er að getur
valdið heilaáfalli eða hjartakvilla sem hefur
verið tengdur við heilaáfall og ekki var til stað-
ar marktæk þrenging eða lokun í innri hálsslag-
æð sem gat skýrt einkenni.
3. Smáœðasjúkdómur: Þegar klínísk ein-
Table II. Causes of cerebral ischemia in 102 patients admitted to
the Department of Neurology and Rehabilitation Medicine at
Reykjavík City Hospital in 1994.
Transient
Cerbral infarction ischemic auack
N (%) N (%)
Carotid artery disease 13 (16) 4 (17)
Cardiac embolism 21 (27) 2 (9)
Lacunar syndrome 16 (20) 1 (4)
Unspecific 29 (37) 16 (70)
Total 79 23
kenni voru af þeirri gerð sem talin eru dæmi-
gerð fyrir áfall vegna smáæðasjúkdóms og
tölvusneiðmyndarrannsókn mælti ekki gegn
því og hvorki var til staðar marktæk þrenging
né lokun í hálsslagæð eða hjartasjúkdómur sem
gæti skýrt áfallið.
4. Osértœk orsök: Þegar ofangreind skilyrði
voru ekki fyrir hendi var orsök talin ósértæk
þótt í flestum tilvikum megi gera ráð fyrir að
æðakölkunarsjúkdómur hafi verið undirrótin.
Abending fyrir ómun af hálsæðum voru ein-
kenni frá næringarsvæði innri hálsslagæðar hjá
sjúklingum sem ekki höfðu frábendingu fyrir
hálsslagaæðaaðgerð. Ómun af hálsæðum var
framkvæmd af röntgenlæknum spítalans og
notast var við Acuson 128 XPlOn með 7 MHz
línulegum ómhaus (5 MHz í dopplex-ham)
(11,12). Marktæk þrengsli voru skilgreind sem
70% þrenging á flæðismælingum eða við skoð-
un á æðaholrúmi með æðamynd (12).
Abending fyrir hjartaómun var klínískur
grunur um hjartasjúkdóm. Sjúklingar með
gáttatif og þeir sem höfðu frábendingar fyrir
blóðþynningu voru ekki ómskoðaðir. Ómun af
hjarta var framkvæmd af hjartasérfræðingum
spítalans með doppler tækni Acuson 125X og
var sama tæki notað bæði við ómun í gegnum
brjóstvegg og í gegnum vélinda en með
mismunandi ómhaus og ómtíðni. Loftbólupróf
var framkvæmt til að útiloka op milli gátta
(atrial septal defect).
Niðurstöður
A endurhæfinga- og taugadeild greindust
102 einstaklingar með heilablóðþurrð. Heila-
drep höfðu 79 einstaklingar og 23 skammvinna
heilablóðþurrð. Greindar orsakir heilablóð-
þurrðar sjást í töflu II.
Sjúkdómar íhálsœðum: Hjá 72 einstaklingum
sem grunur lék á að hefðu hálsæðasjúkdóm
fannst orsök heilablóðþurrðar með ómun og
æðamyndatöku hjá 17 (24%).