Læknablaðið - 15.12.1998, Side 43
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
945
réttingu og þau ákvæði er lutu
að breyttri stöðu landlæknis
voru felld með yfir 80% at-
kvæða. Þetta var dálítið merki-
legt þar sem um stjórnarfrum-
varp var að ræða, en útkoman
var sem sagt sú að við unnum
á öllum vígstöðvum sem var
hið besta mál. Ég þakka það
ekki síst stuðningi Læknafé-
lags Islands sem stóð mjög
þétt að baki mér í þessu.“
- Hverjum er landlæknir
háður?
„Landlæknir heyrir undir
heilbrigðismálaráðherra en er
samt sér á báti vegna þess að
hann hefur verið ráðinn af for-
seta. I venjulegri stjórnsýslu
er röðin: ráðherra, ráðuneytis-
stjóri og aðrir embættismenn
þar fyrir neðan. Þannig er því
ekki varið með landlækni. í
greinargerð með heilbrigðis-
lögum, sem samþykkt voru
1973 og hafa verið óbreytt
síðan hvað þetta varðar, kem-
ur fram sú sérstæða túlkun
löggjafans á embættinu að
landlæknir getur tekið U-
beygju framhjá ráðuneytis-
stjóra og farið beint til ráð-
herra, þetta kom einnig mjög
skýrt fram í umræðum á Al-
þingi á sínum tíma.“
Alþingi ætti að ráða
landlækni
- Er nauðsynlegt að málum
sé skipað á þennan veg?
„Já, embættið stendur og
fellur með þessu. En sérstaða
embættisins felst í fleiru. Það
stendur skýrt og skorinort í
lögum að landlæknir er ekki
aðeins ráðunautur ráðherra
heilbrigðismála, heldur ríkis-
stjórnarinnar allrar og það er
nú ekki gott fyrir einn ráð-
herra að ætla að stjórna land-
lækni þegar svo er. Staða
landlæknis gagnvart ráðherra
er því sterk, það breytist að
vísu núna í og með ráðningu
nýs landlæknis. Ég á þó ekki
von á að það leiði til breytinga
á valdsviði landlæknis, sem er
mjög sterkt afmarkað, eða
embættisfærslum, en ég hef
nokkrar áhyggjur af þetta geti
leitt til óbeinnar breytingar á
stöðu embættisins. Nú verður
ráðherraráðið í embættið og
einungis til fimm ára í senn,
það þýðir einfaldlega að líki
ráðherra ekki við landlækni þá
getur hann slegið embættinu
upp eftir fimm ár og ráðið
annan. Ég hef bent á að Al-
þingi ætti að ráða landlækni
vegna sérstöðu hans. Vonast
ég til þess að Læknafélag ís-
lands taki málið upp.“
Fagfólk fjarlægist
æðstu ákvarðanastöður
- Getur þetta ekki ögrað
sjálfstæði landlæknis á þann
veg að óbeint geti rnenn farið
að hugsa sem svo að það sé
betra að vera þægur í embætti
tilað fá ekki sparkið, án þess
að ég sé að segja að það fari
þannig?
„Það kann að vera, en það
Árshátíð LR 1999
Árshátíð Læknafélags Reykjavíkur verður haldin laugardaginn 23. jan-
úar á Hótel Loftleiðum.
Allir læknar á landinu eru velkomnir á árshátíðina og er bent á að Hótel
Loftleiðir býður sérstök kjör á gistingu í tengslum við árshátíðina.
Fjölmennum!
Nánar auglýst í janúarhefti Læknablaðsins.
Stjórn LR