Læknablaðið - 15.12.1998, Side 61
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
961
Aðrir lækna hafa kannski
ekki sinnt þessu með jafn
skipulegum hætti og við. Ég
veit þó af einstökum læknum
og hópum lækna sem hafa
áhuga á gæðastarfi. En ég er
ekki að halda því fram að við
heimilislæknar séum búnir að
skapa einhvern fullkominn
heim. Við reynum hvað við
getum í fullvissu þess að með
því að vilja bæta sig sé hálfur
sigurinn unninn.“
- Hvaða tól og tæki notið
þið í gæðastarfi?
„Aðferðirnar eru ýmsar en
það er oft talað um þrjú hug-
tök þegar meta á gæði heil-
brigðisþjónustu, það er upp-
bygging eða umgjörð (á ensku
structure), framkvæmd eða
vinnuferlið (e. process) og ár-
angur (e. outcome) en það síð-
astnefnda felur í sér það sem
sjúklingarnir fá út úr kerfinu
og er það sem allt snýst um.
Okkar starf hefur að mestu
snúist um fyrsta iiðinn,
umgjörðina. Við höfum til
dæmis bætt allt skýrsluhald,
sjúkraskrár og þess háttar.
Einnig hefur verið mikil upp-
bygging á heilsugæslustöðv-
um, sérstaklega á landsbyggð-
inni og núna í Reykjavík. En
það sem kannski vantar er að
skoða betur hvernig við vinn-
um störfin okkar, sjálft vinnu-
ferlið og svo útkomuna, ár-
angurinn af starfinu.
Tækin sem við notum eru
til dæmis þjónustukannanir.
Hvað finnst fólkinu um þjón-
ustuna? Það er búið að gera
margar þjónustukannanir inn-
an heilsugæslunnar og á sjúkra-
húsunum á vegum landlækn-
isembættisins. Þetta er tiltölu-
lega einföld aðferð. Svíar hafa
þróað aðferð sem þeir kalla
Guide Medicine eftir Michel-
in handbókunum frægu. Það
felst í því að skoðunarmenn á
vegum heimilislækna koma í
óvænta heimsókn á heilsu-
gæslustöðvar og kynna sér
húsnæðið, hvernig aðgengi er,
hver opnunartíminn er, hvort
hægt sé að ná í lækni á öðrum
tímum og svo framvegis.
Ég get nefnt nærtækt dæmi
hjá okkur hér í Fossvoginum
en við gerðum úttekt á síma-
þjónustunni. Það er dæmi um
einfalt verkefni sem krefst
þátttöku allra starfsmanna en
slík verkefni eru mörg.“
Grasrótin og
stjórnendur mætist
- Þið voruð með gæðafund
í byrjun nóvember þar sem
þið fenguð erlenda gesti.
Hvað voru þeir að boða?
„Já, við fengum þrjá gesti
frá Englandi, Svíþjóð og
Portúgal og þeir lögðu allir
áherslu á svonefnda gæða-
hópa sem á ensku nefnast
Quality Circles. Við höfum
kallað það gæðaráð á vinnu-
stöðum. Þeir sögðu að til þess
að ná árangri þyrftu gæðaráð-
in að vera þverfagleg. Vita-
skuld væru til dæmi um svo
sérhæfð verkefni að einungis
læknar gætu unnið þau. En við
vitum að mjög margt starfs-
fólk hefur afskipti af hverjum
sjúklingi, ekki bara læknar og
hjúkrunarfræðingar, og allt
þetta fólk þarf að eiga fulltrúa
í gæðaráðunum.
Það kom líka fram á þess-
um fundi að í æ fleiri löndum
eru sett lög sem kveða á um
það að gæðastarf verði að eiga
sér stað, það sé ekki nóg að
fela það áhugasömum einstak-
lingum heldur verði stjórn-
endur og grasrótin að mætast
einhvers staðar. Frumkvæðið
verði að koma frá stjórnvöld-
um.
Svíinn Leif Persson kynnti
á fundinum nýja handbók á
ensku sem nefnist Tools and
Methods for Quality lmprove-
ment in General Practice.
Hún er sett upp eins og mat-
reiðslubók gæðastarfsins þar
sem lýst er forréttum, aðalrétt-
um og eftirréttum sem eru í
raun verkefni sem unnin eru í
hinum ýmsu löndum Evrópu.
Þarna fæst gott yfirlit yfir
þann fjölbreytileika sem er að
finna í álfunni á sviði gæða-
þróunar. Þessa bók er hægt að
kaupa fyrir lítinn pening,
áhugamenn geta haft samband
við mig.
Svíar eru framarlega í
gæðastarfi og þeir hafa búið
til einskonar „læknatösku"
eða verkfæratösku með mörg-
um skúffum þar sem í eru
ýmsar aðferðir sem hægt er að
beita við gæðaþróun.“
Einblínum ekki á
skemmdu eplin
- Gæðaþróun virðist oft
snúa mest að vinnubrögðum
fólks en hreyfir hún ekki líka
við sjálfu skipulagi og upp-
byggingu heilbrigðisstofn-
ana?
„Jú, svo sannarlega gerir
hún það. Gæðastarf krefst
þess að menn geri sér grein
fyrir því hvert þeir vilja stefna
og þá hlýtur skipulag þjónust-
unnar að koma við sögu. Það á
bæði við skipulag heilbrigðis-
mála á landsvísu, á héraðsvísu
og innan einstakra heilbrigð-
isstofnana, sjúkrahúsa, heilsu-
gæslustöðva, læknastofa eða
annarra stofnana þar sem fag-
fólk á heilbrigðissviði starfar.
í raun er þetta lagskipt ferli
því það snýr einnig að ein-
staklingnum þar sem beitt er
frammistöðumati og fleiri að-
ferðum.“
- Er hljómgrunnur fyrir