Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.1998, Page 64

Læknablaðið - 15.12.1998, Page 64
964 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Neytendur orðnir vakandi - Hvaða lærdóma geta lækn- ar dregið af Bristolmálinu? „Það er mjög gott dæmi um það sem getur gerst þegar ekki er fylgst með því á reglubund- inn hátt hver er árangurinn af læknisfræðilegum inngripum, hver svo sem þau eru. Þetta gerist í sambandi við sýkinga- varnir á spítölum, aukaverk- anir lyfja og ýmislegt annað. En þetta undirstrikar það að þótt þetta dæmi sé ljótt þá miðast gæðaþróunarvinna ekki við það að leita að mis- tökum. I henni er lögð áhersla á að þróa það sem vel gengur en getur gengið betur. Mis- takaleitin á hins vegar alltaf að vera fastur liður í starfsemi allra heilbrigðisstofnana, hún var meginþáttur í gæðaþróun- arstarfinu hér á árum áður en er nú bara partur af henni." - Sú spurning hefur líka vaknað eftir að Bristolmálið kom upp hvernig eigi að haga eftirlitinu með starfsemi lækna. „Já, því eftirliti er náttúru- lega sinnt með ýmsum hætti. Eitt af því sem læknar og sam- tök þeirra eru að gera víða um heim er að þróa það sem kall- að hefur verið leiðbeinandi reglur um læknisstörf. Þar eru teknir einstakir sjúkdómar og flokkar sjúkdóma og búnar til leiðeiningar um meðferð þeirra sem þó ber ekki að líta á sem kokkabók sem fara eigi eftir í einu og öllu. Þetta er rammi sem er faglega forsvar- anlegt að vinna innan og ef menn vilja fara út fyrir hann þurfa þeir að geta stutt það faglegum rökum. Annað sem gert er og hefur lengi verið gert er að fylgjast með því hver árangur er. Það er kannski ekki alltaf gert nógu vel, einkum þegar illa gengur. En það er til góða að þekking á læknisfræði er orðin miklu almennari en hún var og neytendur eða sjúk- lingahópar eru orðnir vakandi fyrir því hvort þeir fái nógu góða þjónustu. Þeir geta líka farið inn á netið og lesið sér til um það við hverju megi búast af neikvæðum áhrifum eða aukaverkunum tiltekinna að- gerða. Þetta setur pressu á lækna og aðrar heilbrigðis- stéttir sem er í sjálfu sér ágætt þótt það geti gengið út í öfgar. Hins vegar á að vera í skipu- riti allra heilbrigðisstofnana einhver aðili sem fylgist með þessu. Þar leika læknar að sjálfsögðu stórt hlutverk og það hefur kallað á þá gagnrýni að þar sé læknamafían að þagga öll mál niður. En það held ég að sé ekki rétt, þvert á móti held ég að læknar hafi séð hag sinn í því að ræða svona mál opið og leysa þau farsællega." Einkunnagjöf er ekki leiðin - En hvernig líst þér á þá hugmynd að gefa læknum og sjúkradeildum einkunnir og jafnvel birta þær á netinu eins og nú er rætt í sumum lönd- um? „Það líst mér ekki vel á því það sem þá gerist er að læknar forðast erfiðu tilfellin og leita inn á hættuminni svið þar sem auðveldara er að fá góða eink- unn en færri og færri þora að taka hitt að sér. Við sjáum af- skræmingu á þessu í Banda- ríkjunum þegar litið er til þess sem læknar þurfa að greiða í áhættutryggingar. Þar eru gíf- urlegir fjármunir í húfi og til- hneigingin er sú að læknar forðist sérgreinar þar sem áhættan er mikil því þá eru þeir að kalla yfir sig dýrar lög- sóknir. Þetta er ekki rétt þróun því það sem gerist er að þjón- ustan dregst saman á þessum sviðum. Einkunnagjöf getur aldrei orðið algildur mæli- kvarði á færni eins læknis, þetta er miklu flóknara mál en svo." - Þú ræddir í upphafi um frumkvæði læknafélaganna í gæðamálum. Hvert á hlutverk þeirra að vera í því að ýta undir gæðaþróun? „Gæðaþróun er fyrst og fremst grasrótarstarf og í því hafa sérgreinafélögin mjög þýðingarmiklu hlutverki að gegna sem er að semja svona klínískar leiðbeiningar eins og ég nefndi áðan. Læknafélögin hafa líka fræðsluhlutverki að gegna, að sjá til þess að lækn- um standi alltaf til boða fræðsla um nýjustu þekkingu í læknavísindum. Þá má nefna eftirlitshlutverkið. Hins vegar fer grasrótarstarfið fram inni á sjúkrastofnunum þar sem læknar vinna með öðrum fag- hópum og félögin geti stutt við það." - Og hafa læknafélögin sýnt þessu gæðastarfi áhuga? „Mörg sérgreinafélög lækna vinna mjög myndarlega í þessu og þá ekki síst FÍH. LÍ vinnur að stóru málunum með ráðuneytinu. En stundum finnst mér sum félög lækna fara sér hægt og þau mættu alveg bretta upp ermarnar og leggja metnað sinn í gæða- málin. Það verður líka að við- urkennast að aðrar heilbrigð- isstéttir hafa sýnt lofsvert frumkvæði og á stundum meira en læknar, til dæmis hjúkrunarfræðingar. En lengi má gera betur," sagði Högni Oskarsson. -ÞH
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.