Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.1998, Page 84

Læknablaðið - 15.12.1998, Page 84
982 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 tryggingar: „ Vátryggjend- ur skulu ekki hafa rétt til þess að krefjast erfðaprófa né til þess að spyrjast fyrir um niðurstöður fyrri prófa, sem skilyrði fyrir að gerður sé tryggingasamningur eða honum breytt I tíundu meginreglu sömu ályktunar er mælt svo fyrir að: „Erfðagögn, sem safn- að er i heilbrigðisskyni, skal eins og öll önnur lœkn- isfrœðileg gögn geyma að- skilið frá öðrum persónu- legum gögnum C. Um læknisfræðilegar vís- indarannsóknir á mönnum eru í gildi Ráðleggingar Ráðherranefndarinnar frá 1990. Þær hafa verið ræki- lega kynntar þar á meðal verið birtar í Fréttabréfi lækna, 9. tbl. 1990, og vísast til þess. í Sáttmálanuni um mannréttindi og lækn- isfræði frá 1996 eru síðan helstu meginreglurnar árétt- aðar og því er slegið föstu, að „Frjálst skal að stunda vísindarannsóknir á sviði líjfrœði og lœknisfrœði og er það háð skilyrðum samn- ings þessa og annarra lög- skipaðra ákvœða, sem tryggja vernd mannver- unnar". D. I tuttugustu og annarri grein Sáttmálans um mannrétt- indi og læknisfræði frá 1996 eru ákvæði unt notkun lífsýna: „Þegar einhver hluti líkamans er numinn brott meðan á íhlutun stendur, má því aðeins geyma hann og nota í öðr- um tilgangi en œtlunin var við brottnámið, að beitt sé viðeigandi aðferðum við að veita upplýsingar og að afla samþykkisí tilmæl- um Ráðherranefndar Evr- ópuráðsins til aðildarríkj- anna um banka með vefj- um úr mönnum (samþykkt af Ráðherranefndinni 14. mars 1994), er svo kveðið á „að samþykkis skuli krafist fyrir brottnámi vefja og fyr- irhugaðri notkun þeirra, hvort sem það er í lœkn- ingaskyni, við sjúkdóms- greiningu eða í vísinda- rannsóknum “. Ákvæði úr Codex Ethicus í siðareglum lækna eru nokkur ákvæði er varða þetta efni. í meginreglum Codex er áhersla lögð á það að læknar varðveiti leyndarmál sjúk- linga. I sjöundu grein kemur fram eftirfarandi: „Það er meginregla að lækni er frjálst að hlýða sam- visku sinni og sannfæringu. Hann getur, ef lög og úrskurð- ir bjóða ekki annað, synjað að framkvæma læknisverk sem hann treystir sér ekki til að gera eða bera ábyrgð á eða hann telur ástæðulaust eða óþarft". Loks segir í 26. grein siða- reglnanna: „Lækni er skylt að forðast af fremsta megni að hafast nokkuð að, er veikt gæti trún- aðarsamband hans við sjúk- linga. Lækni er óheimilt að ljóstra upp einkamálum, sem sjúklingar hafa skýrt honum frá eða hann hefur fengið vitn- eskju um í starfi sínu, nema með samþykki sjúklingsins, eftir úrskurði dómara eða samkvæmt lagaboði. Lækni ber að áminna samstarfsfólk um að gæta fyllstu þagmælsku um allt, er varðar sjúklinga hans.“ Umræða Með tilvísun í siðareglur lækna og ýmsar alþjóðasam- þykktir sem Islendingar eru aðilar að, lýsir stjórn Sið- fræðiráðs Læknafélags Is- lands yfir þungum áhyggjum af framlögðu frumvarpi um gagnagrunn á heilbrigðis- sviði. Vill stjórn Siðfræðiráðs í því sambandi benda á eftir- talin atriði: 1. Miðlægur gagnagrunnur með öllum heilsufarsupp- lýsingum unt Islendinga, samtengjanlegur ættfræði- upplýsinguin og upplýsing- um um lífsýni og erfðaefni landsmanna, felur í sér margvísleg siðfræðileg álitamál. Ekki er ljóst hvaða upplýs- ingar munu fara í grunninn, en ætlunin er að veita al- þjóðafyrirtæki einkarétt á starfrækslu gagnagrunnsins og leyfi til þess að gera þessi heilsufarsgögn að verslunarvöru. Þar sem sameina má upplýsingar heilsufarsgrunnsins öðrum upplýsingum um afkom- endur og aðra ættingja sjúk- linga þykir stjórn Siðfræði- ráðs L.I. ljóst, að læknar, sem stunda klíníska vinnu, muni ekki geta sent inn heilsufarsupplýsingar um sjúklinga sína án upplýsts samþykkis þeirra. Sannfærandi rök um vís- indalega yfirburði slíks grunns umfram dreifða gagnagrunna hafa ekki komið fram. Markmiðið með slíkum miðlægum grunni virðist fyrst og fremst vera við- skiptalegs eðlis. 2. Umræðan hefur leitt í ljós að örðugt er að tryggja per- sónuvernd með viðeigandi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.