Læknablaðið - 15.12.1998, Side 106
1002
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Lyfjamál 72
Frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti
og landlækni
Hvaða lærdóm geta
læknar dregið af
afskráningum nýrra
lyfja vegna alvarlegra
aukaverkana?!
Iðulega koma fram alvar-
legar aukaverkanir lyfja eftir
að þau hafa verið sett á mark-
að. Á þessu ári hafa tvö ný-
lega skráð lyf verið afskráð
vegna þessa. I Lyfjamálum 69
í septemberhefti var rætt um
afskráningu lyfsins Posicor
(míbefradíl) vegna varasamra
aukaverkana. Nú hefur annað
nýskráð lyf, Tasmar (tolcap-
ón), farið sömu leið. Þetta
sýnir og sannar, að aldrei er of
varlega farið í að taka í notkun
ný lyf og ekki er sjálfgefið, að
þau séu fremri þeim sem fyrir
eru. Otvíræður kostur við
notkun eldri lyfja er áunnin
reynsla og þekking á meðferð
þeirra. Ástæða er til að hvetja
til íhaldsemi og varúðar á
þessu sviði.
Breyttar verklagsreglur
varðandi útgáfu lyfja-
skírteina fyrir lyf við
sársjúkdómi
(ATC A 02 B)
Skilmerkin, sem uppfylla
skal til að gefið sé út skírteini
fyrir þessum lyf hafa verið
þessi:
Liggja skal fyrir staðfesting
á vélindisbakflæði eða sár-
sjúkdómi, annað hvort með
magaspeglun eða röntgen-
rannsókn. Hvað varðar sár-
sjúkdóm skal einnig liggja
fyrir, að ekki hafi verið um
Helicobactersýkingu að ræða
eða að lyfjameðferð gegn
henni hafi ekki borið árangur.
Margar umsóknir berast um
lyfjaskírteini fyrir þessi lyf og
ekki síst prótónpumpuhemj-
ara (ATC fl. A 02 B C). Er þá
á læknisvottorði iðulega látið
nægja að segja, að sjúklingur
hafi brjóstsviða og fyrir liggi
staðfesting á vélindisbakflæði
með magaspeglun. Einskis er
getið um ástand vélindans að
öðru leyti.
Tryggingastofnun hefur nú
ákveðið að nýta sér þessa
heimild hvað varðar sjúklinga
með bakflæði aðeins í þeim
tilvikum, að staðfest sé, að
viðkomandi hafi 2-3° vélind-
isbólgu eða ástandið sé þaðan
af verra. Vélindisbakflæði eitt
sér gefi ekki tilefni til nýting-
ar hennar.
Lyfjaskírteini, sem þegar
hafa verið útgefin fyrir þess-
um lyfjum munu gilda áfram,
en ný skírteini verða ekki
gefln út eftir I. desember
næstkomandi á ábending-
unni vélindisbakflæði einni.
Fréttatilkynning frá Lyfjanefnd ríkisins 18. nóvember 1998
Lyfjanefnd ríkisins hefur
afturkallað tímabundið mark-
aðsleyfi fyrir Parkinsonslyfi
og leggur því til að stöðvuð
verði notkun lyfsins.
Lyfjanefnd ríkisins leggur
til að notkun lyfsins Tasmar
sem notað er við Parkinsons-
sjúkdómi verði hætt. Öllum
sjúklingum sem nota Tasmar
er ráðlagt að hafa samband við
lækni sinn hið fyrsta til þess
að hefja meðferð með öðrum
lyfjum.
Það er mjög mikilvægt að
sjúklingar hætti ekki að nota
Tasmar á eigin spýtur. Sjúk-
lingar eða aðstandendur þeirra
eru beðnir um að hafa sam-
band við þann lækni sem hóf
meðferðina með Tasmar til
þess að minnka skammt Tasm-
ar smám saman á nokkrum dög-
um en um leið auka skammt
annarra Parkinsonslyfja.
Evrópska lyfjamálastofnun-
in ráðlagði í gær að hætta
notkun á Tasmar eftir þrjú
dauðsföll vegna aukaverkana
lyfsins erlendis. Ákvörðunin
var tekin eftir að í ljós kom að
lyfið getur valdið alvarlegum
lifrarskemmdum. Lyfjanefnd
ríkisins hefur afturkallað
tímabundið markaðsleyfi lyfs-
ins á Islandi.
Lyfjanefnd ríkisins er ekki
kunnugt um alvarlegar auka-
verkanir af völdum lyfsins á
íslandi. Nefndin hefur sent
umboðsmanni markaðsleyfis-
hafa leiðbeiningar Evrópsku
lyfjamálastofnunarinnar um
hvernig staðið skuli að því að
hætta notkun Tasmar. Öllum
apótekum hefur verið send
tilkynning þar að lútandi.