Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2007, Qupperneq 6
miðvikudagur 16. maí 20076 Fréttir DV
Misvægi atkvæða
milli kjördæma
spilar stórt hlutverk
í niðurröðun þing-
manna. Sökum
misvægis hélt ríkis-
stjórnin velli og
margfaldan at-
kvæðamun er að
finna að baki þing-
manna kjördæm-
anna. Að mati
stjórnmálaprófess-
ora er hér á ferðinni
lýðsræðishalli.
TrausTi hafsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Ríkisstjórnin hefði fallið ef vægi
atkvæða í öllum kjördæmum væri
jafnmikið og enginn þröskuldur um
lágmarksfylgi til að fá þingmenn.
Stjórnarflokkarnir hefðu þannig
fengið 30 þingmenn á móti 33 þing-
mönnum stjórnarandstöðunnar.
Núgildandi kosningakerfi veldur því
að mismörg atkvæði liggja að baki
hverjum þingmanni og munur milli
kjördæma getur verið þónokkur.
Af þessum sökum hélt ríkisstjórnin
velli þó svo að hún fengi minnihluta
atkvæða, rúm 48 prósent.
Sá þingmaður sem þurfti lang-
flest atkvæði til að komast á þing er
Ögmundur Jónasson, varaformaður
Vinstri grænna, en að baki
honum eru rúm
5.200 atkvæði í suð-vestur kjördæmi.
Til samanburðar komust þrír þing-
menn Sjálfstæðisflokksins í Norð-
vesturkjördæmi inn á þing á svip-
uðum atkvæðafjölda og Ögmundur
hlaut.
Fimm prósenta þröskuldur, að
flokkur fái ekki þingmann nema fá
yfir fimm prósent atkvæða, kosn-
ingakerfisins hefur einnig áhrif á
skiptingu þingmanna. Að því gefnu
að sá þröskuldur yrði felldur út og
landið gert að einu kjördæmi feng-
ist önnur niðurröðun. Íslandshreyf-
ingin fengi tvo þingmenn fyrir vikið
og Frjálslyndir bættu við sig einum
þingmanni. Á móti hefði Sjálfstæð-
isflokkur tapað tveimur mönnum og
Samfylking einum. Þingmannatala
Vinstri grænna og Framsóknarflokks
stæði í stað.
skortir vilja til breytinga
Að meðaltali þurfti Frjáls-
lyndi flokkurinn að hafa
mest fyrir hverjum
þingmanni sínum en
að baki hverjum þing-
manni flokksins liggja
3.279 atkvæði. Að baki
hverjum þingmanni
Sjálfstæðisflokksins eru
hins vegar fæst atkvæði
eða 2.667 á hvern þing-
mann.
Ódýrustu þing-
mennirnir koma úr
Norðvesturkjör-
dæmi, þeir Guð-
jón A. Kristj-
ánsson og
Kristinn H. Gunnarsson þingmenn
Frjálslynda flokksins, með rúm 1.200
atkvæði að baki. Þingmenn Suðvest-
urkjördæmis eru aftur á móti þeir
dýrustu. Til að koma Ögmundi inn
á þing úr Suðvesturkjördæmi þurfti
4,3 sinnum fleiri atkvæði heldur en
hvorum um sig Guðjóni og Kristni
í Norðvesturkjördæmi. Baldur Þór-
hallsson, prófessor í stjórnmálafræði
við Háskóla Íslands, segir augljósa
skekkju í niðurröðun þingmanna
milli kjördæmanna. „Megnið af síð-
ustu öld fengu flokk-
arnir ekki
hlut-
fallslega rétta þingmannatölu mið-
að við atkvæðafjölda. Markmið með
núgildandi lögum var að jafna þetta
vægi milli flokkanna þannig að þeir
fái álíka hlutfall þingmanna og hlut-
fall atkvæðanna segir til um,“ seg-
ir Baldur. „Að mestu leyti náðist að
bæta úr þessu en til staðar er enn
ójafnvægi milli höfuðborgarsvæðis
og dreifbýlis. Ekki hefur verið pólit-
ískur vilji til að breyta því ójafnvægi.“
Áfangi á langri leið
Gunnar Helgi Kristinsson, próf-
essor í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, lítur á síðustu breyt-
ingar kosningakerfisins
sem ákveðna mála-
miðlun til að draga úr
misvægi atkvæða.
Hann er þeirr-
ar skoðunar að
kerfið sé tölu-
GUÐJÓN ARNAR OG KRISTINN ÓDÝRASTIR
Ódýrustu þingmennirnir aðeins 1.216
atkvæði í Norðvesturkjördæmi standa að
baki hvorum um sig, guðjóni arnari og
kristni. kristinn kemur á þing sem jöfnunar-
þingmaður og því nýtast atkvæði flokksins úr
öðrum kjördæmum.