Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2007, Qupperneq 10
MIÐVIKudagur 16. MaÍ 200710 Fréttir DV
Framsóknarmenn eru klofnir í af-
stöðu sinni til áframhaldandi rík-
isstjórnarsamstarfs við Sjálf-
stæðisflokkinn. Útreið flokksins í
nýafstöðnum kosningum er sú versta
í rúmlega níutíu ára sögu hans.
Ágreiningur er meðal
flokksmanna nú um
stundir, því margir
úr grasrót flokks-
ins hafa sagst vilja
vera í stjórnar-
andstöðu á kjör-
tímabilinu, á með-
an aðrir hafa lýst
því yfir að flokk-
urinn eigi að taka
þátt í næstu ríkis-
stjórn.
Jón Sigurðsson gaf það í skyn á
kosninganótt að samstarf við Sjálf-
stæðisflokkinn væri ólíklegt í ljósi
útkomu flokksins, en Guðni Ágústs-
son varaformaður flokksins, hefur
sagt að hann vilji skoða áfram núver-
andi ríkisstjórnarsamstarf. Viðræður
um áframhaldandi ríkisstjórnarsam-
starf á milli flokkanna tveggja eru í
gangi, en ljóst er að margir úr grasrót
flokksins eru ekki fylgjandi því.
Fráleitt að halda áfram
Einar Sveinbjörnsson, veð-
urfræðingur og stjórnarmaður í
miðstjórn Framsóknarflokksins,
hefur lýst því afdráttarlaust yfir að
flokkurinn eigi ekki heima í næstu
ríkisstjórn. „Allar hugmyndir
þess efnis að Framsóknarflokkur-
inn haldi áfram ríkisstjórnarþátt-
töku með Sjálfstæðisflokknum við
þessi skilyrði eru fráleitar. Að sama
skapi er tal um annars kon-
ar stjórnarþátttöku út
í hött,“ ritaði Einar í
Morgunblaðinu í gær.
Fanný Guðbjörg
Jónsdóttir, kosn-
ingastjóri ungra
framsóknarmanna
í Reykjavík, sagði í
samtali við DV að
hún teldi ekki vit-
urlegt að flokkur-
inn héldi áfram
núverandi stjórn-
arsamstarfi. „Það
voru of marg-
ir lykilmenn í
flokknum bún-
ir að lýsa því
yfir að ef við
fengjum ekki allavega fimmtán pró-
senta fylgi, þá hefðum við ekkert í
ríkisstjórn að gera. Ég tel rétt að við
söfnum vopnum í stjórnarandstöðu
á næsta kjörtímabili, við erum búin
að vera lengi í ríkisstjórn og höfum
orðið fyrir óvæginni gagnrýni á sama
tíma og Sjálfstæðisflokkur hefur
fengið allt aðra meðferð.“
Guðjón Ólafur Jónsson, sem féll
af þingi í kosningunum, segist standa
við yfirlýsingar sínar um að flokkur-
inn ætti ekki að sækjast eftir áfram-
haldandi ríkisstjórnarsamstarfi ef
hann fengi færri en tíu þingmenn.
Hann neitar þó að tjá sig um það
hvort flokkurinn eigi að vera í stjórn-
arandstöðu á næsta kjörtímabili eða
leitast við að mynda ríkisstjórn með
öðrum flokkum. „Miðað við úrslit
kosninganna er ekki beinlínis hægt
að segja að þjóðin hafi verið að óska
eftir þátttöku okkar í ríkisstjórn. Það
er ljóst að flokkurinn hefur beðið
skaða á undanförnum árum, en það
er erfitt að segja til um hvort það sé
vegna samstarfsins við Sjálfstæðis-
flokkinn.“
Rökrétt að halda áfram
Samúel Örn Erlingsson, nýkjör-
inn varaþingmaður flokksins í Suð-
vesturkjördæmi, telur rétt að skoða
fyrst áframhaldandi ríkisstjórnar-
samstarf. „Mér finnst mjög rökrétt
að skoða vel alla fleti á áframhald-
andi samstarfi, stjórnin hélt velli og
við keyrðum okkar baráttu á því að
halda áfram. Hins vegar, ef sá mögu-
leiki kemur upp að menn telji að
þetta samstarfi gangi ekki, þá er rétt
að ræða aðra möguleika.“
Guðni Ágústsson gaf það sterk-
lega í skyn að hann vildi halda sam-
starfinu áfram. Guðni sagði við DV í
gær að spurningin væri hvort fram-
sóknarmenn vildu byggja flokkinn
upp með því að halda
áfram miklum og
stórum verkefn-
um eða vera
atkvæðalitl-
ir í stjórnar-
andstöðu á
næsta kjör-
tímabili.
Gunn-
laugur
Stefánsson,
forseti bæj-
arstjórnar
á Húsavík,
telur rétt að
byggja flokk-
inn upp utan
ríkisstjórnar-
innar, þrátt fyr-
ir að gengi flokks-
ins hafi verið best í
hans kjördæmi, þar
sem hann fékk þrjá
menn kjörna. „Það
segir sig sjálft að
á hundrað
og tíu
þúsunda manna íbúasvæði eins og
í Reykjavík hefur fólk ekki mikla til-
rú á flokknum þegar aðeins rúmlega
fjögur þúsund manns kjósa hann. Ég
hef þá trú að það sé auðveld-
ara fyrir flokkinn að fara í
stjórnarandstöðu. Það
hlýtur að gerast að
flokkurinn missi sitt
vinstrafylgi þegar
hann er of lengi
í samstarfi við
Sjálfstæðisflokk-
inn,“ segir hann.
Framsóknarmenn eru klofnir í afstöðu sinni til þess hvort flokkurinn eigi að halda áfram í ríkisstjórn. Marg-
ir úr grasrót flokksins telja að hann eigi að byggja sig upp í stjórnarandstöðu, á meðan forystumenn flokks-
ins virðast ekki vera sammála um hvað beri að gera. Guðjón Ólafur Jónsson, sem féll út af Alþingi, telur
flokkinn ekki eiga erindi í ríkisstjórn eftir að honum tókst ekki að fá tíu þingmenn kjörna.
ÁTÖK UM FRAMHALDIÐ
ValGeiR ÖRn RaGnaRsson
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Guðni Ágústsson Vill
skoða áframhaldandi
stjórnarsamstarf við
Sjálfstæðisflokkinn.
Fallinn út af alþingi guðjón
Ólafur Jónsson telur flokkinn ekki
eiga erindi í næstu ríkisstjórn.
nýr varaþing-
maður Samúel
Örn Erlingsson
bendir á að
ríkisstjórnin hafi
haldið velli og
þess vegna beri
að skoða
áframhaldandi
samstarf.