Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2007, Side 14
Miklar fjölmiðlahamfarir eru nú nýafstaðnar og
landslýður ýmist móður, sár eða í þokkalegri sælu-
vímu. Ber aðallega tvennt til sem gera liðna viku svo
áhrifamikla og þarf ekki einu sinni að nefna það allt
sínu rétta nafni. Mér þykir eitt nokkuð áberandi í
ferlinu öllu, hvort sem það snýst um þetta eða hitt.
Það er allt þetta fólk
sem er stöðugt að tjá
sig um atburði og stöðu
mála, jafnharðan og hlutirnir gerast. Mér sýnist í
fljótu bragði að flest af þessu fólki standi mér ekki
svo miklu framar að andlegu atgervi og ályktunar-
hæfni að það sé betur fallið en ég til ausa úr visku-
brunni sínum um menn og málefni. Það eru nefni-
lega ekki fleiri mál á dagskrá en þetta tvennt: Menn
og málefni.
Ég hef því ákveðið að helga hluta lífs míns slíkri
álitsgjöf, því mér hrýs hugur við að vera álitsgjafi í
fullu starfi. Héðan í frá verð eins og köttur í kringum
heitan graut að reyna að hitta Egil Helgason af tilvilj-
un.Þessa dagana spái ég mikið í hvernig ég get komið
þeirri eitursnjöllu hugmynd inn í hans hrokkna koll
að leita sínkt og heilagt til mín um álit mitt á mönn-
um og málefnum, í stað þess að sitja alltaf með sama
liðið í kringum sig í settinu.
Egill er einn þekktasta 101 týpa höfuðstaðar-
ins og því hef ég ákveðið að verja lunganum af tíma
mínum í 101 í þeirri von að rekast á Egil. Til að hafa
sem mesta yfirferð ætla ég að ríða hjólhesti og vera
með KR trefil því ég held að Egill haldi með KR. Ég er
meira að segja búinn að þvo á mér hárið ef ég skyldi
rekast óvænt á Egil, til dæmis í 105 eða jafnvel 103.
Svo ég gefi nú örlítið sýnishorn af væntanlegri
álitsgjöf minni skulum við hugsa okkur að þáttar-
stjórnandi (þarf ekkert endilega að vera Egill Helga-
son) víki talinu að stöðu mála nú að kosningum
loknum. Það er mjög líklegt að hann (ekki endilega
Egill) nefni umhverfismál til sögunnar og líti til mín
og segi: - Hvað finnst þér um umhverfismálin í þeirri
stöðu sem nú er komin upp?
Ég stilli mig um að brosa og geri mitt ítrasta til að
virðast áreiðanlegur, öfgalaus og óhvikanlega stað-
fastur, með tæra sýn á aðalatriði hvers máls og hinar
stóru línurnar. Ég fer yfir sviðið hratt og örugglega en
gæti mín þó á því einfalda mál mitt svo jafnvel hin-
ir mest skilningsvana (getur maður sagt hinir skiln-
ingsvönustu?) skilji hvert orð og nái upp í hverja
mína frjóu hugsun. Ég er hæfilega róttækur og pass-
lega íhaldssamur, stuða engan en sting þó ótt og títt
á kýlum.
Undir lokin kem ég svo að þeirri sýn sem ég tel
að undirstriki best mikilvægi mitt sem glöggskyggn
álitsgjafi. Ég flétta þessa ofurfrumlegu hugmynd
svo haganlega inn í mál mitt að hvorki sést né heyr-
ist hvar hvað endar og hvað byrjar. Ég segi eitthvað í
þessa áttina:
- En þegar kemur að umhverfismálum verðum
við auðvitað að horfa á málaflokkinn jafnt í stærsta
og smæsta samhenginu. Við Íslendingar vorum að
stíga það stóra skref að stofna stærsta þjóðgarð Evr-
ópu. Af hverju ekki að stíga skrefinu lengra og stofna
smæsta þjóðgarð Evrópu? Og ekki bara Evrópu held-
ur alls heimsins?
Allir horfa á mig með spurn í augum, sem er frá-
bært þegar maður hefur nýlokið við að spyrja knýj-
andi spurningar. Egill Helgason (eða bara einhver
þáttarstjórnandi) er með augu eins og miðhundur-
inn í eldfærum H.C.Andersen.
Þá læt ég það falla eins og Rússi sem dúndrar
vodkaglasi afturábak inn í logandi arinn. Gerum
Ómar Ragnarsson að þjóðgarði! Það sem ég er raun-
verulega að meina er að við eigum að gera Ómar
Ragnarsson að umboðsmanni náttúru Íslands. Um-
boðsmaður barna, Umboðsmaður hestsins... nú er
komið að minnsta þjóðgarði heims, Umboðsmanni
náttúru Íslands: Ómari Ragnarssyni. Og ég beini
spurningunni að þáttarstjórnanda: Hver gæti ver-
ið betri?
Einn af mínum stærstu kvíðavöldum varðandi
náttúru Íslands á allra næstu dögum er að þurfa
ítrekað að hjóla Barónstíg til norðurs í þrotlausri leit
minni að Agli Helgasyni, eins og hann er búinn að
liggja í norðanáttinni að undanförnu, vindstingur-
inn sko en ekki Egill Helgason. Veit annars einhver
hvar umhverfisráðherra á heima?
miðvikudagur 16. maí 200714 Umræða DV
Gegn baklandinu
Umboðsmaður
náttúru Íslands
Kjallari
ÚtGáfUfélaG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
StjórnarformaðUr: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal
ritStjóri oG áByrGðarmaðUr: Sigurjón m. Egilsson
fUlltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
Átökin innan Framsóknar eru skiljanleg. Þar situr fólk sem hefur
komið sér vel fyrir, er kjörið af þjóðinni til starfa á Alþingi og það vill
vera í ríkisstjórn. Hefur verið þar lengi og kann vel við. Ekki þarf að ef-
ast eitt augnablik um að Guðni Ágústsson kann betur við sig sem ráð-
herra en sem óbreyttur stjórnarandstöðuþingmaður. Þannig er með
fleiri. Þetta fólk vill helst af öllu halda áfram núverandi ríkisstjórnar-
samstarfi. Það er léttasta leiðin og sú öruggasta fyrir þingflokk Fram-
sóknarflokksins.
Með virkustu félögum í Framsóknarflokknum er fólk sem hefur
gengið til liðs við flokkinn á síðustu árum. Þar ber mest á fólki sem
hafði ekki haft uppi hugsjónir eða hugmyndir sem tengdust Framsókn
á nokkurn hátt. Sumir eldri framsóknarmenn kalla þetta fólk flokks-
tökufólkið. Þar fara fremst Björn Ingi Hrafnsson, Jónína Bjartmarz og
fleiri. Í mörgum tilfellum hefur þessu nýja framsóknarfólki tekist vel
upp. Sérstaklega Birni Inga. Hann naut samstarfsins við Halldór Ás-
grímsson meðan hann var formaður. Fyrir nýrra framsóknarfólkið er
mikils virði að flokkurinn verði í stjórnarandstöðu. Þá verður áhlaup-
ið á forystuna léttara. Staða Jóns Sigurðssonar, formanns flokksins,
verður hreint út sagt afleit verði flokkurinn utan stjórnar. Hann er ekki
kjörinn þingmaður og verður því ekki virkur þar sem helsta starfið fer
fram, hann verður hvorki á Alþingi né í borgarstjórn. Auðvelt verður
að kenna Guðna varaformanni um hrakfarirnar í kosningunum. Hann
verður að axla ábyrgð sem varaformaður og þess vegna er trúlegt að
gert verði áhlaup á Jón og Guðna verði flokkurinn utan stjórnar. Áður
hafa nýliðarnir reynt að ryðja Guðna úr vegi, en án árangurs. Það fólk
sem hefur verið í flokknum allan sinn aldur mun verjast og þess vegna
er hætta á að til átaka komi verði Framsókn utan stjórnar.
Rök þingflokksins eru þau að tveir þriðju kjósenda, frá kosningun-
um 2003, hafi kosið flokkinn nú og ætlað honum hlutverk en einn þriðji
kjósenda hafi snúið frá flokknum og réttara sé að fara að vilja þeirra
sem héldu tryggð við Framsóknarflokkinn en hinna.
Í dag kann að ráðast hver afstaða Framsóknar verður og hvort sama
ríkisstjórn heldur áfram eða ný verður mynduð. Þá ræðst hvort vilji
þingflokksins verður tekinn fram yfir vilja baklandsins. Verði stjórnin
áfram er meirihlutinn afar tæpur og við bætist að uppgjör er framund-
an innan Framsóknarflokksins. Þar fara hæst þær raddir sem vilja að
flokkurinn verði utan stjórnar. Sigurjón M. Egilsson
Umbrot: dv. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins. Dreifing: Árvakur. dv áskilur sér rétt til að
birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór Guðmundsson
aðStoðarritjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir aUGlýSinGaStjóri: auður Húnfjörð
VALGEIR GUÐJÓNSSON
tónlistarmaður skrifar
„Þá læt ég það falla eins og
Rússi sem dúndrar vodka-
glasi afturábak inn í logandi
arinn. Gerum Ómar Ragnars-
son að þjóðgarði!“
Taktík Jóns
Framsóknarmenn virtust bíða
mikinn ósigur í kosningunum um
síðustu helgi
en reyndust,
eins og oftast
áður, lenda á
fótunum og til
í frekari afrek.
Jón Sigurðs-
son formaður
sagði í fyrstu að
litlar líkur væru
á stjórnarsamstarfi Framsóknar
á nýju kjörtímabili. Ekki virðist
alvaran þó hafa verið mikil, held-
ur orðin frekar notuð til að gera
flokkinn dýrkeyptari í samning-
um.
Heiftugt samstarf
Haldi ríkisstjórnin áfram göngu
sinni verður það til þess að lands-
menn missa af
einhverju eldfim-
asta ráðherrap-
ari seinni tíma
Íslandssögu.
Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir,
formaður Sam-
fylkingarinnar,
og Guðlaugur
Þór Þórðar-
son, ráðherraefni Sjálfstæðisflokks-
ins, virtust hatast þegar þau voru í
borgarstjórn á sama tíma. Hefði ein-
hverjum þótt gaman að sjá til þeirra
saman á fundum í ríkisstjórn.
Símtalið góða
Sagt var frá því í gær í þessum
kafla að Jónína Bjartmarz um-
hverfisráð-
herra hefði haft
sambandi við
ritstjóra Frétta-
blaðsins til að
stöðva birtingu
fréttar um rík-
isborgararétt
tengdadótt-
ur sinnar. Ekki
reyndist það alveg sannleikanum
samkvæmt. Jónína ræddi málið
víst við annan ritstjóra Frétta-
blaðsins en þurfti ekki að hafa
mikið fyrir að hringja, hún fékk
víst upphringinguna sjálf.
SandKorn
Dugguvogi 12 - 104 Reykjavík - S: 517 7040 - www.hobbyhusid.is
Opnunartími: mán-föst 10.00-18.00, laugard 13.00-17.00, sunnud 13.00-16.00
Mikið úRval
af hjólhýSuM
verð frá 1.690.000
og húsbílar verð frá 4.990.000
Skoðaðu úrvalið hjá okkur.