Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2007, Qupperneq 16
DV mun í sumar velja leikmenn
umferðanna í Landsbankadeild
karla. Átta lið eiga fulltrúa í liði fyrstu
umferðarinnar, Valsmenn eiga þrjá
fulltrúa þrátt fyrir að hafa gert jafn-
tefli við Fram og Íslandsmeistararnir
í FH eiga tvo.
Markvörður
Bjarni Halldórsson Víkingi: Bjarni
stóð sig með miklum ágætum í sín-
um fyrsta leik með Víkingi. Hann
sýndi oft á tíðum lipra takta í mark-
inu og kom í veg fyrir að Víkingar
söknuðu Ingvars Kale.
Varnarmenn
Freyr Bjarnason FH: Freyr er gríð-
arlega mikilvægur liði FH eins og sást
þegar hann meiddist í fyrra. Leikur
nánast alltaf vel og fyrsta umferðin
var engin undantekning.
Óðinn Árnason Fram: Óðinn
skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild
á móti Val og stoppaði þó nokkrar
sóknarlotur liðsins. Líkamlega sterk-
ur, fjótur og áræðinn sem á eftir að
nýtast Fram-liðinu vel í baráttunni í
sumar.
Hallgrímur Jónasson Kefla-
vík: Það er ekki auðvelt fyrir ungan
sveitastrák að spila á KR-vellinum
fyrir framan syngjandi áhorfendur
og berjast við nokkra af bestu leik-
mönnum deildarinnar. Hallgrímur
sýndi hvað í hann er spunnið og átti
stjörnuleik.
Birkir Már Sævarsson Val: Birk-
ir var kosinn efnilegasti leikmað-
ur deildarinnar í fyrra. Undir hand-
leiðslu Willums Þórs Þórssonar eru
meiri líkur en minni á að Birkir taki
hið erfiða skref frá því að vera efni-
legur og í að vera góður.
Miðjumenn
Arnar Grétarsson Breiðabliki:
Prímusmótorinn í liði Blika og var
allt í öllu í leik liðsins. Býr yfir góðri
sendingargetu og hefur næmt auga
fyrir spili. Ef hann spilar vel spilar
Breiðablik vel.
Bjarni Guðjónsson ÍA: Bjarni fest-
ist því miður í miðverðinum í fyrra
en reynsla hans á miðjunni kemur
til með að vega þungt í ungu liði ÍA.
Ótrúlega lunkinn miðjumaður sem
skorar mikið af mörkum.
Baldur Aðalsteinsson Val: Baldur
er í nýju hlutverki hjá Val þessa
stundina. Leikur sem djúpur miðju-
maður og stóð sig með miklum sóma
gegn Fram. Stoppaði ófáar sóknar-
lotur Framliðsins og var fljótur að
snúa vörn í sókn.
Sóknarmenn
Matthías Guðmundsson FH:
Margir hafa beðið eftir því að Matthí-
as spryngi út sem leikmaður. Fór frá
Val þar sem hann var staðnaður sem
leikmaður og ákvað að ganga til liðs
við FH þar sem hann virðist njóta sín
vel.
Christian Christiansen Fylki:
Christian hefur markanef af bestu
gerð. Kom mörgum á óvart hvað
hann stakk varnarmenn Blika af
í leik liðanna en þar sást að hann
lætur ekki góð marktækifæri sér úr
greipum renna.
Helgi Sigurðsson Val: Flestir áttu
von á erfiðum leik hjá Helga gegn
sínum gömlu félögum í Fram. Helgi
sýndi hins vegar að þar fer atvinnu-
maður sem leggur sig alltaf 100%
fram. Sama á móti hverjum það er.
miðvikudagur 16. maí 200716 Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
Gerrard að Skrifa
undir riSaSaMninG
Fyrirliði Liverpool Steven gerrard hefur
gefið það í skyn að hann sé að fara að
skrifa undir nýjan
samning. gerrard á
enn tvö ár eftir af
núgildandi
samningi en nýr
fjögurra ára
samningur þar
sem gerrard fær
120 þúsund pund
á viku í laun liggur
á borðinu.
„Samningurinn er á borðinu og ég er
alltaf til í að skrifa undir. Ég veit ekki
hvenær það verður en um leið og hann
verður lagður fyrir framan mig skrifa ég
undir,“ sagði gerrard og bætti við að
tímabil Liverpool hefði enn á ný verið
undir væntingum í deildinni. „Það er
ekki hægt að segja annað en að deildin
þetta tímabil hafi ekki verið nægilega
góð hjá okkur. Þið getið spurt
framkvæmdastjórann, mig sjálfan eða
hvern sem er í liðinu, allir munu segja
það sama. Það voru meiri væntingar til
okkar en bara meistaradeildin. auðvitað
höfðum við alltaf annað augað á Evrópu
því keppnin hefur þjónað okkur vel en
við vildum einnig gera vel í deildinni og
koma með bikarinn aftur til anfield.
með fjárfestingum í sumar og ef liðið
þjappar sér saman get ég lofað að við
munum veita Chelsea og manchester
united harðari keppni að ári,“ sagði
gerrard.
SiSSoko að fara
aðeins meira af Liverpool því Barcelona
og Juventus eru sögð hafa áhuga á
malíska turninum
momo Sissoko
sem spilar með
liðinu. Sissoko sér
fram á að spila lítið
á anfield á næsta
tímabili þar sem
Javier mascherano,
Xabi alonso og
Steven gerrard
hafa eignað sér
miðjuna og þá var Liverpool að kaupa
fyrirliða Brasilíu undir 20 ára Lucas
Pezzini sem spilar einnig á miðjunni.
Frank rijkaard þjálfari Barcelona virðist
hafa misst traust á Edmilson og sér víst
Sissoko fyrir sér sem varaskeifu fyrir rafa
marquez. Juventus missti af Torstein
Frings sem ákvað að vera áfram hjá
Werder Bremen og vill didier
deschamps fá Sissoko í staðinn.
fifa farið að Skipta Sér af
vælið í ensku liðunum sem vilja að stig
verði dregin af West Ham virðist engan
endi ætla að taka.
Nú hefur FiFa
ákveðið að koma
inn í málið og
sagði Sepp Blatter
forseti FiFa að þeir
ætluðu að skoða
þau gögn í málinu
sem tengjast
Carlos Tevez og
Javier mascherano
og félagaskiptum þeirra til liðsins. „við
munum biðja um gögn um af hverju
West Ham fékk sekt en ekki stigafrá-
drátt. Ef okkur finnst eitthvað hafi verið
gert rangt munum við koma inn í
málið,“ sagði Blatter en honum og
Eggert magnússyni er vel til vina.
Sheffield united er að undirbúa lögsókn
á West Ham en ekki er talið mögulegt
að Sheffield vinni það mál.
Hefðu átt að kaupa
Van niStelrooy fyrir lönGu
Fyrrverandi hetja real madrid Hugo
Sanchez segir að ruud van Nistelrooy
eigi skilið að vera
markahæstur í
spænsku deildinni
og að real madrid
hefði átt að vera
búið að kaupa
hann fyrir löngu.
Sanchez skoraði
207 mörk í 283
leikjum fyrir real
og varð oft
markahæstur á Spáni. „Ég sá van
Nistelrooy fyrir löngu og sagði þá að
þetta væri leikmaður sem myndi henta
real madrid. Hann verðskuldar að fá
Pichichi-bikarinn (sem markahæsti
leikmaður deildarinnar) í lokin. Hann
spilar aggresíft og hann er hættulegur
hvort sem hann er með eða bolta eða
ekki. Fyrsta snerting hans er frábær og
skottæknin mögnuð. Hann er einnig
góður að klára færin í fyrsta, líkt og ég
var í gamla daga,“ sagði Sanchez í
léttum dúr.
Sam Allardyce hefur verið ráðinn
knattspyrnustjóri enska úrvalsdeild-
arliðsins Newcastle United. Hann
tekur við starfinu af Glenn Roeder
sem sagði af sér á dögunum.
Allardyce hætti með Bolton í síð-
asta mánuði og hefur skrifað undir
þriggja ára samning við Newcastle.
Miklar hræringar hafa verið í stjóra-
málum á Englandi síðustu daga.
Sven-Göran Eriksson var sterklega
orðaður við starfið hjá Newcastle og
þá var jafnvel búist við því að Allar-
dyce tæki við knattspyrnustjóra-
starfinu hjá Manchester City, sem
rak Stuart Pearce á þriðjudaginn.
Talið er að Freddy Shepherd,
stjórnarformaður Newcastle, hafi
viljað ráða Allardyce strax til að
koma í veg fyrir að Manchester City
næði í kauða. Shepherd hefur þeg-
ar tilkynnt Allardyce að hans starf
verði að koma Newcastle aftur á
meðal sex efstu liða ensku úrvals-
deildarinnar.
Bobby Robson fór með Newcastle
í Meistaradeild Evrópu á sínum tíma
og nú finnst stjórn félagsins að tími
sé kominn til að endurtaka það.
Newcastle endaði í þrettánda sæti
ensku úrvalsdeildarinnar í vetur og
það þótti stjórninni ekki ásættanleg-
ur árangur.
Fyrsta starf Allardyce verður þó að
tryggja veru Michaels Owen hjá lið-
inu. En samkvæmt enskum fjölmiðl-
um er hann með klásúlu í samningi
sínum sem segir að hann megi fara
frá félaginu fyrir níu milljónir punda,
eða rétt rúman 1,1 milljarð króna.
Nóg er um vandamál í herbúð-
um Newcastle því um síðustu helgi
neitaði Charles N‘Zogbia að sætta
sig við sæti á bekknum í leik liðsins
gegn Watford. Þá neitaði Obafemi
Martins að fara með liðinu í um-
ræddan leik og hefur verið sakaður
um að gera sér upp meiðsli. Það er
því erfitt verk sem bíðu Stóra-Sams
hjá Newcastle. dagur@dv.is
Newcastle hefur ráðið Sam Allardyce til næstu þriggja ára:
Stóri-Sam á að laga vandamál Newcastle
nýr stjóri newcastle
Sams allardyce bíður það
erfiða verkefni að leysa
innanbúðarvandamál
Newcastle.
LIÐ FYRSTU UMFERÐAR
LANDSBANKADEILDARINNAR
Freyr Bjarnason
Bjarni Halldórsson
Birkir SævarssonHallgrímur Jónasson
Baldur Aðalsteinsson
Matthías Guðmundsson
Helgi Sigurðsson
Arnar Grétarsson
Óðinn Árnason
Bjarni Guðjónsson
Christian Christiansen
einn fulltrúi keflvíkingar eiga einn
fulltrúa í liðinu. Húsvíkinginn Hallgrím
Jónasson.
eitt mark komið matthías
guðmundsson skoraði með
skalla á móti ía.