Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2007, Blaðsíða 17
Þann 1. júlí mun Magnús Már
Jónsson hefja störf hjá KSÍ. Hann
mun taka að sér nýtt starf innan
sambandsins og starfa við dómara-
mál í víðasta skilningi. „Við erum að
ganga í dómarasáttmála UEFA og
þar eru lagðar miklar skyldur á okk-
ur. Það krefst þess að við verðum að
fá annan mann til starfa,“ segir Birk-
ir Sveinsson, mótastjóri KSÍ. „Hans
verkefni verður að sinna fræðslu-
málum dómara og eftirlitsmanna,
erlendum samskiptum varðandi
dómaramál og eflingu dómarastarfs-
ins hér á landi.“
Magnús segist hlakka mjög til
þess að taka að sér þetta krefjandi
starf en flestir geta tekið undir að
þörf er á manni sem sérhæfir sig í
málum dómara. „Mitt hlutverk verð-
ur að halda utan um öll dómara-
málin og þá mun ég koma aðeins
inn á mótamálin líka. Það eru gerð-
ar miklu meiri kröfur frá UEFA varð-
andi dómaramálin sem þýðir að við
verðum að vera miklu meira á tán-
um og UEFA-væða dómarastéttina
eins og gert hefur verið við þjálfar-
ana. Samskiptin við evrópska knatt-
spyrnusambandið verða því mun
meiri,“ segir Magnús.
Hann hefur lengi verið í kringum
fótboltann hér á landi og hefur því
sínar skoðanir á því sem betur mætti
fara í dómaramálum. „Ég var leik-
maður á sínum tíma með KR og Vík-
ingi í efstu deild. Svo þjálfaði ég og
spilaði með Þrótti Neskaupsstað, var
tíu ár að þjálfa hjá Fram og síðan var
ég hjá Fjölni tvö síðustu árin. Ég er að
sjá það núna að ég er orðinn djöfull
gamall,“ segir Magnús og hlær.
Hann hefur þó ekki verið í dóm-
arastarfinu sjálfu af alvöru. „Ég
dæmdi aðeins á sínum tíma en það
var bara til að fá frítt á leiki. Þá tók
maður bara sína tuttugu leiki og
sagði það síðan gott,“ segir Magnús.
Þarf að efla áhugann
Stærsta verkefnið sem bíður
Magnúsar er að reyna að auka áhug-
ann á dómgæslunni almennt og fá ný
andlit til að taka upp flautuna. „Mað-
ur á eftir að móta þetta starf mikið
sjálfur. Við eigum eftir að fara bet-
ur í gegnum þetta hjá KSÍ. Ég mun
gera mitt besta til að efla áhuga fyrir
þessum ómissandi þætti fótboltans
og hlúa að grasrótinni svo við fáum
öfluga menn upp. Svo þarf kvenfólk-
ið að koma inn í þetta af miklu meira
afli en verið hefur. Konurnar eru
nánast ekki með í dómgæslunni eins
og staðan er núna.“
Það verður því gert átak í dóm-
aramálum með tilkomu Magnúsar
hjá KSÍ. „Það þarf nýliðun í þetta og
hún á að koma í gegnum félögin. Það
þarf að auka og efla grasrótina þar.
Það þarf að fá miklu fleiri inn í þetta.
Fjöldinn er einfaldlega ekki nægilega
mikill í dag,“ segir Magnús.
Meðal þess sem talað hefur ver-
ið um er að yngri dómarar þurfi að
fá fleiri krefjandi verkefni. Eins og
Kristinn Jakobsson, FIFA-dómari,
sagði í viðtali við DV ekki alls fyrir
löngu þá öðlast menn ekki reynslu
nema með því að fá að dæma. „Ef tal-
ið er að dómari hafi traust og getu til
að dæma í efstu deild þá finnst mér
það ekki spurning að hann eigi að fá
tækifæri,“ sagði Kristinn meðal ann-
ars.
Magnús segir þetta einn þeirra
þátta sem þurfi að skoða. „Ég þekki
ekki alveg hvernig biðtíminn er
núna. Ég er enn ekki tekinn til starfa
en þetta er eitthvað sem verður að
skoða betur.“
Skemmtilegur hópur
Kröfurnar á dómara hafa aldrei
verið eins miklar og nú. Dómararn-
ir koma betur undirbúnir til leiks nú
í sumar en nokkru sinni áður. Flest-
ir geta verið sammála um að dóm-
gæslan í fyrstu umferð Landsbanka-
deildarinnar var góð. „Umgjörðin í
kringum dómarana hefur aukist og
maður hefur því fínan grunn til að
byggja ofan á. Þessi hópur er mjög
skemmtilegur. Ég fór með þeim á
landsdómararáðstefnuna og þetta er
hörkuskemmtilegur hópur og verður
hiklaust gaman að vinna með hon-
um,“ segir Magnús sem ætlar að láta
að sér kveða í þessu nýja starfi.
„Ég er ekki kominn í þessa stöðu
til að deyja. Ég hlakka til að takast
á við þetta og er sannfærður um að
þetta verður skemmtilegt starf.“
elvargeir@dv.is
DV Sport miðvikudagur 16. maí 2007 17
ÍÞRÓTTAMOLAR
65 manna hópur til
SvíÞjóðar �� v��um ��í
Norðurlandamót unglinga í
körfubolta hefst í dag í Svíþjóð.
mótið er haldið í bænum Solna, sem
er nálægt
Stokkhólmi. Það
er stór hópur
sem heldur til
Stokkhólms á
vegum kkí eða
alls 65 manns.
Fjögur lið keppa
á mótinu en það
eru u18 ára og
u16 ára lið karla
og kvenna. Hópurinn skiptist í 48
leikmenn, 4 þjálfara, 2 aðstoðar-
menn, 2 sjúkraþjálfara, 5 fararstjóra
og 4 dómara. Liðin hefja keppni í
dag og leikið verður fram á
sunnudag.
�límumaður féll
�� lyfjaprófi
dómstóll íþrótta- og ólympíusam-
bands íslands hefur úrskurðað Snæ
Seljan Þóroddsson glímumann í
fjögurra mánaða keppnisbann í
keppnum og sýningum á vegum íSí.
Sýni sem
glímumaðurinn
gaf við reglu-
bundið
lyfjaeftirlit þann
13. janúar
síðastliðinn
reyndist
innihalda
hormónalyfið
efedrín.
Fram kemur í úrskurði dómstólsins að
Snær hafi strax gengist við broti sínu
en hann hafði raunar áður haft
samband við starfsmann lyfjaeftirlits-
mála og tjáð honum að hann hefði af
kæruleysi tekið inn töflu sem líklega
innihéldi efedrín. Hann hafði rætt
áhyggjur sínar við lykilmenn innan
síns félags og sambands áður en
niðurstaða barst til lyfjaeftirlitsins.
Wood�at� Samur við Si�
Jonathan Woodgate varnarmaður
middlesbrough heldur áfram að
koma knattspyrnuheiminum á óvart
og fór í aðgerð til
að fá bót
hnémeina sinna.
gareth Southgate
stjóri Boro
staðfesti við
heimasíðu liðsins
að Woodgate
hefði farið í
aðgerðina og
myndi missa af
töluverðu af undirbúningstímabilinu.
Eithvað sem hlýtur að koma öllum
knattspyrnuáhugamönnum
gríðarlega á óvart.
prinSinn f� tvo l�i�i
aganefnd kSí kom saman í gær og
úrskurðaði leikmenn í leikbönn. Tveir
leikmenn úr Landsbankadeildinni
verða í banni í
næstu umferð.
Sóknarmaðurinn
Prince rajcomar
úr Breiðabliki
hefur verið
dæmdur í
tveggja leikja
bann vegna fram-
komu sinnar í
leiknum gegn
Fylki. Hann mun því ekki leika með
Blikum gegn kr á sunnudaginn og
missir einnig af leik gegn keflavík
sem verður á fimmtudaginn eftir
rúma viku. Árni Thor guðmundsson,
varnarmaður ía, fær eins leiks bann
fyrir rauða spjaldið gegn FH og missir
af leik Skagamanna gegn sínum
gömlu félögum í Hk.
paul�tic �v�ður �r
króatíski varnarmaðurinn dalibor
Pauletic hefur leikið sinn síðasta leik
fyrir kr en hann er á heimleið. Hann
kvaddi kr-inga fyrir leik liðsins gegn
keflavík í
Landsbanka-
deildinni á
mánudag. dado,
eins og hann er
kallaður, kom til
kr í júlí 2005 og
skoraði hann
fjögur mörk í 44
leikjum fyrir
félagið. Hann var
ekki í áætlunum Teits Þórðarsonar
eftir að Pétur marteinsson kom til
félagsins.
jackie Stewart hrósar nýliðanum lewis hamilton í hástert og sparar ekki stóru orðin:
Hamilton er fyrirmynd nýrrar kynslóðar
Goðsögnin í Formúlu 1 Jackie
Stewart hrósar Lewis Hamilton, öku-
manni McLaren, í hástert eftir frá-
bæra byrjun stráksins á tímabilinu.
Stewart segir að Hamilton geti orðið
sigursælasti ökumaður sögunnar.
Hamilton, sem er 22 ára, er nýliði
og er yngsti ökumaður sögunnar til
að leiða keppni ökumanna. Stewart
segir að hugarfar Hamiltons hafi sett
ný markmið fyrir þá ökumenn sem
ætla sér að ná langt.
„Lewis er stórkostlegur. Ég held
að nafn hans muni enda á spjöld-
um sögunnar. Við munum sjá nýja
kynslóð af því sem ég kalla vel und-
irbúna atvinnuökumenn. Ég held að
hann hafi forskot á aðra ökumenn
hvað það varðar.
Schumacher var þannig en ég
er að tala um allan pakkann. Schu-
macher var ekki eins góður og hann
átti að vera, ekki hvað varðar keyrsl-
una, heldur í öllu í kringum þetta. Ég
held að Hamilton muni gefa tóninn
fyrir nýja kynslóð ökumanna,“ sagði
Stewart, sem vann heimsmeistaratit-
ilinn þrisvar á ferli sínum, 1969, 1971
og 1973.
„Niki Lauda og James Hunt
breyttu ásýnd ökumanna. Þeir voru
ekki fyrirmyndir. Þeim var alveg
sama um allt. Lewis Hamilton gæti
orðið fyrirmynd. Það þurfa allir á því
að halda,“ bætti Stewart við en Ham-
ilton er fyrsti blökkumaðurinn sem
keppir í Formúlu 1.
Stewart segir að hugarfarið sem
McLaren hefur innprentað nýlið-
anum muni hjálpa honum að vinna
marga titla í framtíðinni.
„Árangur í lífinu næst ekki síður
utan brautarinnar en innan. Þú get-
ur náð árangri á öðrum vígstöðvum
en verið lélegur á brautinni. Lewis er
ekki þannig. Hann hefur rétta hug-
arfarið, keppnisskapið og hæfileika
af Guðs náð, en hann er samt að átta
sig á að ennþá vantar eitthvað.
Þess vegna er hann í verksmiðj-
unni, þess vegna er hann nú þeg-
ar orðinn vinsælli en margir aðr-
ir breskir ökumenn sem hafa unnið
heimsmeistaratitilinn. Og hann ger-
ir þetta með stíl og auðmýkt,“ sagði
Stewart. dagur@dv.is
hamilton og Stewart Jackie Stewart, þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1, fer
fögrum orðum um hinn unga og efnilega Lewis Hamilton, ökumann mcLaren.
Bráðlega mun magnús már jónsson taka til starfa við dómaramál hjá Knattspyrnu-
sambandi Íslands. Hann á mörg verkefni fyrir höndum í þessu nýja starfi og mun
starfa við dómaramál á Íslandi frá öllum hliðum.
vel undirbúnir Sífellt meiri kröfur eru
gerðar til íslenskra dómara.
ÞARF AÐ EFLA
GRASRÓTINA
Þarft átak magnús már
Jónsson á stór verkefni fyrir
höndum í nýja starfinu.