Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2007, Síða 18
Sevilla fær væntanlega meiri keppni í úrslita-leiknum í ár en í fyrra. Liðið rúllaði yfir Middl- esbrough 4-0 þar sem var spilaður stórbrotinn sóknarfótbolti. Juande
Ramos þjálfari Sevilla býst þó við
meiri keppni frá Espanyol.
„Þetta verður mun erfiðara núna
en í fyrra þar sem við erum taldir
sigurstranglegri. Auðvitað vonumst
við eftir jafnmiklum gæðum og í
fyrra og einnig sömu úrslitum. En
þeir munu gera okkur lífið leitt, það
er ég viss um.
Það er alltaf erfitt að vera tal-
inn sigurstranglegri í aðeins einum
leik. Espanyol hefur verið frábært
í keppninni og við vitum að þetta
verður erfiður leikur. Það er erfitt að
koma með eitthvað nýtt í svona leik.
Við höfum oft mæst á knattspyrnu-
vellinum og þeir þekkja okkur vel,
en eins og liðin spila fótbolta þá
býst ég við frábærum leik.“
Espanyol tapaði fyrir Bayern Le-
verkusen í vítaspyrnukeppni í úr-
slitum árið 1988, 3-2, en þá var spil-
að samkvæmt gamla kerfinu. Tveir
leikir, heima og að heiman. Espany-
ol vann fyrri leikinn 3-0 en klúðraði
síðari leiknum og forusta þess hvarf
eins og dögg fyrir sólu. Ramos sagði
að tap Espanyol þá gæti hvatt liðið
til dáða þrátt fyrir að langur tími sé
liðinn.
„Ég býst við dýrvitlausum
Espanyol-leikmönnum. Þeir voru
nálægt því að vinna þennan bikar
fyrir nokkrum árum og vilja vænt-
anlega hefna fyrir þær ófarir. Þeir
hafa spilað við góð lið í keppninni
á leið sinni í úrslitin. Þeir hafa lagt
ofurkapp á þessa keppni á kostnað
deildarinnar og ég er pínu stressað-
ur því þessi keppni skiptir þá greini-
lega öllu máli. Það sem veitir mér þó
hugarró er að leikmenn mínir hafa
alltaf staðið sig vel á stóra sviðinu
og ég veit að Espanyol þarf að leika
gríðarlega vel ætli það að komast í
gegnum okkur.“
Sevilla getur unnið þrennuna, er
í þriðja sæti í deildinni, í úrslitum
spænska konungsbikarsins og í úr-
slitum UEFA-bikarsins. Liðið vann
UEFA-bikarinn í fyrra og getur end-
urtekið leikinn í ár. Síðasta liðið sem
varði UEFA-bikarinn var Real Madr-
id árið 1986.
Keppni sem skiptir miklu fyrir
Espanyol
Ernesto Valverde þjálfari Espan-
yol sagði að tapið 1988 sæti enn
í Espanyol. Valverde spilaði fyrri
leikinn en ekki þann síðari. „Fyrir
Espanyol þá er þessi keppni mjög
sérstök. Leikmenn mínir voru alla
tíð staðráðnir í að komast í úrslita-
leikinn. Ég upplifði að tapa úrslita-
leik UEFA-bikarsins og ég veit að
þessi keppni hefur alltaf verið hjart-
fólgin aðdáendum liðsins. Þetta
verður þó ekki eins þar sem að-
eins einn leikur er núna. Við vor-
um taldir sigurstranglegri eftir fyrri
leikinn en kunnum ekki að höndla
pressuna sem fylgdi í kjölfarið.
Núna byrjar hvorugt liðið 3-0 yfir
eða 3-0 undir. Leikurinn byrjar 0-0,“
sagði Valverde greinilega með allt á
hreinu.
„Það er skiljanlegt að Sevilla sé
talið sigurstranglegra. Það er nú-
verandi meistari og hefur átt frá-
bært tímabil og er enn með í þrem-
ur keppnum. En í úrslitaleik byrja
allir jafnir. Það sem ég hef mestar
áhyggjur af er ákafi þeirra og taktur-
inn í liði þeirra, trú þeirra á sjálfa sig
og gríðarlegur hraði í sóknarleikn-
um.“
Espanyol komst í UEFA-keppn-
ina eftir að liðið lagði Real Zaragoza
í spænska konungsbikarnum. Þrátt
fyrir það lenti liðið í mikilli fallbar-
áttu þar sem það bjargaði sér í síð-
ustu umferðinni.
„Þetta verður leikur sem mað-
ur á að njóta þess að spila,“ sagði
markahæsti leikmaður keppninnar,
Walter Pandiani. Hann hefur skorað
ellefu mörk og verður væntanlega
markahæstur. Freddy Kanoute þarf
að skora fjögur mörk til að verða
markahæstur. „Við þjáðumst mikið
á síðasta tímabili vegna hættunn-
ar á að falla. Þó voru góðir punktar
eins og sigurinn í konungsbikarn-
um. Það sem er mikilvægast í þessu
öllu saman er að við höfum sýnt að
við getum gert vel á móti stórum
liðum.“ benni@dv.is
miðvikudagur 16. maí 200718 Sport DV
© GRAPHIC NEWS
Ajax
Austria Vín
Livorno
Maccabi Haifa
Benca
Werder Bremen
Artmedia
Sparta Prag
Zuite Waregem
Fyrsta umferð
Riðlakeppni
32. liða úrslit
16. liða úrslit
Fjórðungs úrslit
Undanúrslit
Líkleg byrjunarlið
Varamenn:
Kameni
Chica
Coro
Ito
Luis Garcia
Moha
Zabaleta
Markahæstir
Pandiani 11
Luis Garcia 6
Coro 4
Markahæstir
Chevanton 4
Kanouté 3
Fabiano 3
Tamudo
Rufete
Pandiani
de la
Pena
Hurtado
Rieira
La Cruz
Iraizoz Palop
Torrejon
D. Garcia
Jarque
Dragutinovic
Ocio
Navarro
Poulsen
Alves
Marti
Adriano
Navas
Kanouté
Fabiano
Varamenn:
Cobeño
Chevanton
Kerzhakov
Hinkel
Maresca
Puerta
Renato
1
7
22
9
11
23
18
19
21
3
4
1
15
10
12
8
18
6
19
20
2
4
3-1 (h)
1-0 (ú)
3-0 (h)
0-0 (ú)
2-0 (h)
2-0 (h)
4-0 (h)
0-0 (ú)
2-1 (ú)
2-2 (ú)
2-1 (ú)
0-0 (ú)
3-2 (h)
3-0 (h)
4-0 (ú)
0-0 (ú)
2-0 (h)
4-0 (ú)
1-2 (h)
1-0 (h)
3-2 (ú)
2-2 (ú)
2-0 (h)
2-1 (h)
2-0 (ú)
2-2 (h)
2-1 (h)
0-1 (ú)
Atromitos
Liberec
Braga
Grasshoppers
AZ Alkmaar
Steaua
Shakhtar
Tottenham
Osasuna
Leiðin til Glasgow
Þjálfari: Ernesto Valverde Tejeror
Fyrirliði: Raul Tamudo
Þjálfari: Juande Ramos
Fyrirliði: Javi Navarro
SEVILLARCD ESPANYOL
Hampden Park, Glasgow
Úrslitaleikur UEFA bikarsins
Markaleikur fraM undan
Eftirsóttur daniel alves leikmaður
Sevilla er ofarlega á mörgum óskalistum
í evrópskri knattspyrnu.
Tveir góðir
Walter Pandiani og ivan de la Pena
eru lykilmenn í liði Espanyol.
Fagnar marki
Luis Fabiano framherji Sevilla er
frábær með kanute í framlínunni.
Vissir þú að:
n Frá því að fyrirkomulagi á úrslitaleik
uEFa-bikarsins var breytt fyrir níu árum
hafa 35 mörk verið skoruð eða rúmlega
fjögur í leik. í sjö af níu úrslitaleikjum hefur
sigurliðið skorað þrjú mörk eða meira.
n Espanyol hefur aðeins einu sinni mætt
spænsku liði í Evrópukeppninni. Það var
árið 1966 þegar liðið tapaði 2-0 samtals
fyrir Barcelona.
n Sevilla hefur aðeins unnið einn af
síðustu sex leikjum sínum við lið frá Spáni í
Evrópukeppninni, Osasuna í undanúrslit-
um 2-0.
n Espanyol-menn hafa ekki enn tapað í
uEFa-bikarnum. Þeir hafa leikið 14 leiki og
unnið 11. Þeir hafa skorað 32 mörk, aðeins
fengið á sig níu og haldið hreinu átta
sinnum.
n Sevilla hefur unnið níu leiki og tapað
tveimur af 14 leikjum sem það hefur spilað
í keppninni, skorað 27 mörk, fengið á sig
11 og haldið markinu hreinu sjö sinnum.
n Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn
og hefst klukkan 18:45.