Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2007, Síða 20
Menning
miðvikudagur 16. maí 200720 Menning DV
HELGI
Helgi Tómasson, listrænn
stjórnandi San Francisco-ball-
ettsins, hefur sett saman sýn-
ingu sérstaklega fyrir Íslend-
inga sem byggir eingöngu á
ballettum sem hann hefur
samið fyrir flokkinn. Hér er um
að ræða mörg glæsilegustu verk
Helga; meðal annars Concerto
Grosso, 7 for eight, Blue rose og
The Fifth Season og ber sýning-
in einfaldlega nafnið HELGI.
Þetta eru allt verk sem sýna
afburðahæfni fremstu dansara
hópsins. Uppselt er á frumsýn-
ingu í dag, en sýnt er á hverjum
degi út vikuna.
Endurkoma Konfúsíusarhyggju
Á hádegisfundi Heimspekistofnunar á föstudaginn flytur Dr. Chung-ying
Cheng fyrirlesturinn: Endurkoma Konfúsíusarhyggju í Kína nútímans.
Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 225 í aðalbyggingu HÍ kl. 12.05.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Fyrirlesturinn verður haldinn á
ensku.
tónleikar
ópera
Yfir tvær milljónir króna söfnuðust á minningartónleikum um Margréti Jónsdóttur
Ljóslifandi styrktartónleikar
Aðstandendur tónleikaraðar-
innar Ljóslifandi, sem haldin var til
minningar um Margréti Jónsdóttur,
afhentu á dögunum Ljósinu allan
aðgangseyri tónleikanna. Alls seld-
ust um 700
miðar og
söfnuðust
1.100.000 krónur. Glitnir var bak-
hjarl tónleikaraðarinnar og færði
Ljósinu jafnháa fjárhæð. Þannig
söfnuðust alls yfir tvær milljón-
ir í minningu Margrétar, en hún
lést úr krabbameini í desember
árið 2005. Þann 28. mars síðast-
liðinn komu fram í Grensáskirkju
þau Diddú, Stefán Hilmarsson,
Guðbjörg Magnúsdóttir, Gospel-
systur, Stúlknakór Reykjavíkur og
Vox Feminae. Mikil aðsókn var á
tónleikana og var þétt setið. Sama
kvöld rokkuðu hljómsveitirnar Inn-
vortis, Rass, Benny Crespo’s Gang
og Dr. Spock á NASA og á síðustu
tónleikunum í Fríkirkjunni kvöldið
eftir léku Múm, Pétur Ben og Ólöf
Arnalds. Erna Magnúsdóttir, for-
stöðukona Ljóssins, sem er end-
urhæfingar- og stuðningsmiðstöð
fyrir krabbameinsgreinda og að-
standendur þeirra, segir tónleik-
ana einstakt framtak. „Við í Ljósinu
erum virkilega þakklát. Ljósið er að
hjálpa mörgum við að takast á við
daglegt líf eftir erfið veikindi. Það
er fólk á aldrinum átján ára og upp
úr sem kemur í Ljósið og fær and-
legan, líkamlegan og félagslegan
stuðning. Svona styrkur eflir starf-
semina enn frekar og þakka ég tón-
leikahöldurum, listamönnum og
Glitni fyrir þeirra framlag.“
Árlegt þing óperustjóra Norð-
urlandanna og Eystrasaltsríkjanna
verður haldið á föstudaginn í Ís-
lensku óperunni. Á þingÁrlegt þing
óperustjóra Norðurlandanna og
Eystrasaltsríkjanna verður hald-
ið á föstudaginn í Íslensku óper-
unni. Á þinginu koma saman um
15 manns og munu óperustjórarn-
ir bera saman bækur sínar og fjalla
meðal annars um aukningu í ný-
smíði ópera sem hefur átt sér stað
í Evrópu að undanförnu. Óperu-
stjórarnir á þinginu koma frá Kon-
unglegu dönsku óperunni, Norsku
óperunni, Konunglegu óperunni
í Stokkhólmi, Gautaborgaróper-
unni, Óperunni í Malmö, Óperunni
í Umeå, Finnsku þjóðaróperunni,
Lettnesku þjóðaróperunni og Eist-
nesku þjóðaróperunni.
Mikilvægur vettvangur
Stefán Baldursson nýskipaður
óperustjóri segir samstarf af þessu
tagi afar mikilvægt. „Það skiptir
mjög miklu máli að fylgjast með því
sem er að gerast í nágrannalöndum
okkar og til dæmis kanna mögu-
leika á samstarfi um ýmsa hluti,“
segir Stefán. Hann segir þema
þingsins í ár vera nýsmíði ópera og
nýsköpun. „Við munum ræða það
sem er að gerast í þeim málum í
hverju landi fyrir sig og sjá hvað er
hægt að gera sameiginlega.“
Nýjar óperur
Í tengslum við þing óperustjóra
verður samkoma í Óperudeiglu Ís-
lensku óperunnar, sem er vettvang-
ur fyrir tilraunastarf og nýsköpun
á sviði óperulistarinnar. Samkom-
an fer fram í Íslensku óperunni kl.
16.30 á föstudaginn og hefst með
kynningu á þremur íslenskum óper-
um sem eru í smíðum. Þær eru óp-
eran Hel, sem byggir á samnefndri
skáldsögu Sigurðar Nordal, eftir
sviðslistahópinn Hr. Níels, Söngv-
ar haustsins eftir Hróðmar I. Sigur-
björnsson og Hallgrím H. Helgason
og Klakahöllin eftir Áskel Másson
sem byggir á samnefndri sögu eft-
ir Tarjei Vesaas. Bjarni Daníelsson,
fráfarandi óperustjóri, segir þá stutt-
lega frá verkunum og flutt verða brot
úr þeim í einfaldri sviðsetningu. Að
loknum kynningunum verða opnar
umræður í Deiglunni.
Ný óperuhús
Mikið hefur verið byggt und-
anfarið af nýjum óperuhúsum í
Evrópu og nokkrir þátttakendur í
þinginu stjórna nýbyggðum óp-
eruhúsum. Má þar nefna nýtt óp-
eruhús Konunglegu dönsku óp-
erunnar og nýtt húsnæði sem er í
smíðum fyrir Norsku óperuna og er
áætlað að verði opnað í apríl 2008.
Ekki er heldur langt síðan Finnska
þjóðaróperan flutti í nýtt húsnæði
og hið sama gildir um Gautaborg-
aróperuna. Stefán segir húsnæð-
ismál Íslensku óperunnar í raun
vera á byrjunarreit. „Það hefur ver-
ið skipuð nefnd um byggingu óp-
eruhúss í Kópavogi, en ég hef líka
áður nefnt þann kost að flytja óper-
ur í nýja tónlistarhúsinu í Reykjavík
þótt það sé ekki hugsað sem heimili
Íslensku óperunnar. Þannig að það
má búast við að húsnæðismálin
verði eitthvað rædd á þinginu þótt
meginþemað sé nýjar óperur,“ seg-
ir Stefán.
Norrænir óperustjórar þinga í Reykjavík á föstudaginn. Þar verður meðal annars rætt
um ný óperuverk og ný óperuhús. Nýskipaður óperustjóri segir þing sem þessi
mjög mikilvæg.
Ferill Helga
Tómassonar
Í tilefni heimsóknar San
Francisco-ballettsins á Lista-
hátíð í Reykjavík verður í dag
opnuð sýning um feril Helga
Tómassonar í anddyri Borgar-
leikhússins. Á sýningunni er
farið yfir allan feril Helga, allt
frá því að hann steig sín fyrstu
spor á sviði sem kornungur
listdansnemi. Sýningin er sam-
starfsverkefni Leikminjasafns
Íslands, Listahátíðar í Reykjavík
og Borgarleikhússins. Þetta er í
fyrsta sinn sem ferli þessa mik-
ilhæfa listamanns eru gerð slík
skil hér á landi.
Kunz á Egils-
stöðum
Kunz-fjölskyldan skemmtir
á Egilsstöðum í dag, en sýn-
ing hópsins er hluti af dagskrá
Listahátíðar. Á sýningunni
má búast við skemmtilegum
uppákomum,
en í Kunz-
fjölskyldunni
er fólk sem
ferðast um og
skemmtir rétt
eins og gert
var í eina tíð
á furðufugla-
skemmtunum
þar sem gert var grín og sýndar
sjónhverfingar. Kunzarar munu
gera slíkt hið sama hér á landi
og sýna listir sínar í Reykjavík, á
Akureyri og Egilsstöðum næstu
daga.
Nýskipaður óperustjóri Stefán Baldursson
telur mjög mikilvægt að óperustjórar í
nágrannalöndunum beri saman bækur sínar.
Íslenska óperan Húsnæðis-
mál ber líklega á góma á
þinginu.Óperustjórar þinga