Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2007, Qupperneq 22
miðvikudagur 16. maí 200722 Neytendur DV
Bílar
Forrester
fyrir lesbískar
mæður
Einhverjir „merkustu“ vís-
indamenn samtíðarinnar rann-
saka og kanna árlaga hvaða
bílar höfða best til homma og
lesbía. Úr þessu er svo unninn
listi sem nefnist -Top Gay cars.
Þetta gera vísindamennirn-
ir árlega þrátt fyrir að annars
konar rannsóknir sýni að hvorki
sé fylgni né orsakasamband á
milli kynhneigðar fólks og bíla-
smekks.
Meðal helstu bíla á þess-
um lista eru Porche Cayman S
sem þykir afar hentugur fyrir
homma á framabraut og Subaru
Forrester sem þykir bestur fyrir
lesbíur með börn og hund.
Hægt er að nálgast þennan
lista á gaylife.about.com.
Audi, Saab og
Honda öryggir
Tímaritið Forbes birti í fyrra-
dag lista yfir öruggustu bíla árs-
ins 2007. Fremstir á lista komu
bílarnir Audi A4, Saab 9-3 og
Honda RL.
Við gerð listans var stuðst
við nokkra þætti. Í fyrsta lagi
einkunnir úr árekstrarpróf-
unum, þar sem allir bílarnir
fengu hæstu einkunn. Í öðru
lagi tíðni meiðsla, sem var lægri
en í árekstrum annarra bíla
og í þriðja lagi einkunnir sem
tímaritið Consumer‘s report gaf
bílunum fyrir aksturseiginleika
í hættulegum aðstæðum.
Chrysler selt
Í gær var formlega tilkynnt
um að DaimlerChrysler hefði
selt 80,1% hlutabréfa í Chrysler
fyrir 5,5 milljarða evra. Kaup-
andinn er fjárfestingarfélagið
Cerberus.
Í fréttum af kaupunum kem-
ur fram að DaimlerChrystler á
áfram 19,9 prósent hlutabréfa.
Búist er við því að tækni-
og þekkingarsamvinna hald-
ist áfram milli Mercedes Benz
og Chrysler. En augljóst má
telja að hið sameiginlega nafn
á samsteypu Benz og Chrysler
– DaimlerChrysler verði úr sög-
unni og hvort fyrirtæki um sig
fái á ný sitt gamla nafn.
Óvenjulegt er að lögð sé áhersla á vistvænan akstur í kappakstri. Það var þó raunin
í Sparaksturskeppni sem fram fór í gær. Meðal annars voru veitt verðlaun fyrir gott
aksturslag.
Hátt í fjörutíu bílar tóku þátt í
svokallaðri Sparaksturskeppni í
gær. Keppnin var með óvenjulegu
sniði, því markmið keppenda var
ekki eingöngu að aka á sem styst-
um tíma. Einnig var litið til þátta
á borð við sparneytni og verðlaun
veitt fyrir umhverfisvænasta akst-
urslagið.
Ekinn var hringur sem tók um
þrjá tíma. Áður en lagt var af stað
voru bílarnir fylltir „upp í topp“ af
eldsneyti og að lokum kappaksturs-
ins var eyðsla bílsins skoðuð. Allir
bílarnir voru nýir og í góðu ástandi,
en lögð var áhersla á að ekki væri
búið að eiga við þá á neinn hátt.
Engin boð og bönn
„Þarna mátti finna allar gerðir
af bílum, allt frá fólksbílum til of-
ursportbíls, og fyrir okkur er fróð-
legt að sjá hvernig hægt er að ná
eldsneytiseyðslu niður með akst-
urslagi,“ segir Runólfur Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda. „Til er
sérstök áætlun frá Evrópusam-
bandinu sem kennir ökumönn-
um að keyra á sparneytinn máta.
Rannsóknir hafa sýnt að hægt er
að minnka eldsneytiseyðslu um
15 prósent með því aka á vistvæn-
an hátt. Þessu má ná fram einfald-
lega með því að gera sér grein fyr-
ir því hvernig maður keyrir. Ekki
taka of skart af stað með óþarfa
rykkjum eða vera alltaf að setja sig
í aðstæður þar sem þarf að snögg-
hemla. Þetta er fljótt að skila sér í
lægri kostnaði auk þess sem þetta
fer betur með bílinn.
„Um leið og þetta er skemmtileg
keppni er þetta líka auglýsing á því
hvað hægt er að gera til að ná nið-
ur eldsneytiseyðslu ökutækja,“ seg-
ir Runólfur. „Þetta er ein leiðin sem
hægt er að fara til að ná því mark-
miði og við þurfum ekki alltaf boð
og bönn til þess að framkvæma
eitthvað. Við sem neytendur getum
verið jákvæð gagnvart okkar nán-
asta umhverfi um leið og við spör-
um pening. Það eina sem þarf er að
gera sér grein fyrir því hvað það er
sem til þarf.“
Ekið var af stað frá Atlantsolíu
við Bíldshöfða og tók keppnin um
þrjá tíma. Keppnisleiðin var þannig
að farið var úr Reykjavík um Mos-
fellsheiði og Grafning að Nesjavöll-
um og Ljósafossi. Þaðan lá leiðin
á Selfoss niður að Eyrarbakka yfir
Óseyrarbrú, um Þrengsli og aftur til
Reykjavíkur. Akstursleiðin var mjög
fjölbreytt og meðal annars ekinn
rúmlega 13 kílómetra kafli á mal-
arvegi. Heildarvegalengdin var ríf-
lega 142 kílómetrar og reyndi veru-
lega á ökumenn, hæfni þeirra og
þolinmæði í sparakstri.
Ekki nóg að fara hægt
„Það er ekki nóg fyrir keppend-
ur að aka mjög hægt til þess að
spara sem mest eldsneyti. Við lít-
um svo á að það sé einnig aðför að
umferðaröryggi og menn verða að
ná ákveðnum tímamörkum, elleg-
ar verða þeir fyrir refsingu. Sá sem
er meðvitaður í einu og öllu um að
fara eftir umferðarlögum er líkleg-
ur til þess að vinna keppnina,“ segir
Runólfur.
Veitt voru verðlaun í flokkum
bæði eftir vélarstærð og í heildar-
keppni þar sem tekið var með bæði
sparneytni og tími keppenda. Í
þetta skiptið má segja að atvinnu-
mennirnir hafi att kappi því öku-
mennirnir voru á vegum bílaum-
boðanna og á bílum frá þeim. „Í
haust stefnum við að því að leyfa
leikmönnum að keppa og þá get-
ur fólk komið með bílana sína til að
taka þátt og skoðað hvernig gengur
að halda eyðslunni niðri. Svo má
ekki gleyma því að þetta er fyrst og
fremst hugsað sem góð skemmt-
un,“ segir Runólfur.
Ofurbíll með í keppninni
Athygli vakti að einn allra mesti
ofurbíll samtímans var mættur til
keppni. Það er tryllitækið Ford GT
sem búinn er 550 hestafla vél og
kemst á 320 km hraða. Vandi öku-
mannsins var því ærinn. Bæði að
halda sig innan löglegs hraða og
eyða sem fæstum lítrum um leið.
Þetta er, eftir því sem næst verð-
ur komist, í fyrsta sinn sem slíkur
bíll tekur þátt í sparaksturskeppni í
heiminum, en þessi nýja gerð Ford
GT var heimsfrumsýnd á síðasta
ári.
„Gott aksturslag er tilvalin leið
til að spara pening og vera jákvæð-
ur gagnvart sínu nánasta umhverfi,“
segir Runólfur að lokum.
Verð á notuðum bílum
Margir lenda í þeim aðstæðum að vita ekki hvaða verð á að setja upp
fyrir bíl sem á að selja. Því er tilvalið að fá hjálp frá óháðum aðila sem
segir þér hversu hátt verð er óhætt að biðja um. Gott er að fá
viðmiðunarverð hjá Bílgreinasambandinu, en það er hægt með því að
fara á bgs.is. Eins er tilvalið að slá tvær flugur í einu höggi þegar
bíllinn fer í viðgerð og biðja um verðmat á honum í leiðinni.
Umhverfisvænn
kappakstUr
Viðar GuðjónssOn
blaðamaður skrifar: vidar@dv.is
runólfur ólafsson
„Þarna mátti finna allar gerðir
af bílum, allt frá fólksbílum til
ofursportbíls, og fyrir okkur er
fróðlegt að sjá hvernig hægt er
að ná eldsneytiseyðslu niður
með aksturslagi.“