Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2007, Qupperneq 26
Fyrir þá sem ekki sáu Goal The
Dream Begins fjallaði hún um hinn
unga Santiago Munez sem eftir erf-
itt líf sem ólöglegur innflytjandi í Los
Angeles er uppgötvaður sem knatt-
spyrnusnillingur. Hann fer að spila hjá
Newcastle og verður stjarna. Í Goal 2
gengur Munez til liðs við Real Madrid í
skiptum fyrir Michael Owen og alvaran
hefst. Konan býr í Bretlandi og er ósátt,
sætar senjórítur á hverju horni, tísku-
sýki, göt í eyrun, sportbílar og læti. Þá
kemst hann að því að móðir hans býr í
Madrid og kynnist hann svo hálfbróð-
ur sínum sem er vandræðabarn. Svo
þarf hann að fóta sig hjá liðinu sem er á
góðri leið með að verða Evrópumeist-
ari. Með honum er svo gamli félagi
hans úr Newcastle, Gavin Harris, sem
er algjörlega grínari myndarinnar. Sag-
an í myndinni er stórgölluð, til dæm-
is eru persónur kynntar til leiks og
hverfa svo og þar að auki er mörgum
spurningum ósvarað hvað varðar að-
alpersónuna. Þá er mjög erfitt að vor-
kenna mönnum sem eiga við einhver
velmegunarvandamál að stríða. Til
dæmis get ég ekki fundið samúð með
manni sem er í ósátt við eiginkonuna,
af því að allar konur þrá hann. Styrkur
myndarinnar liggur algjörlega í knatt-
spyrnu-þætti hennar þar sem fótbolta-
áhugmenn fá rúnk ársins. Það er alveg
greinilegt að Goal er aðeins gerð til að
auka vinsældir knattspyrnu í Banda-
ríkjunum og hreinlega undirbúa hinn
almenna borgara undir menn eins og
David Beckham. Allt Real Madrid-lið-
ið er mætt til þess að leika í myndinni,
David Beckham er mikið í mynd, en
segir hins vegar ekki neitt, Robinho er
helmassaður og Tomas Gravesen er
töffari. Þá er alveg fáránlegt að í úrslita-
leiknum skuli r&b-söngvarinn Nick
Cannon leika knattspyrnumann í röð-
um Arsenal, með NBA-viðhorf. Fyndið
líka að sjá Rutger Hauer leika hollensk-
an þjálfara í myndinni. Hann er nefni-
lega Hollendingur, en hljómar eins
og hann sé frá Wisconsin. Þá er Kuno
Becker mun betri í hlutverki sínu sem
Santiago þegar hann talar spænsku,
mun meira sannfærandi. Goal 2 er
skemmtileg mynd, enginn vafi á því.
Hins vegar hefur hún aðeins of marga
galla til þess að hægt sé að verðlauna
hana með stjörnum, en fólk á endilega
að sjá hana. Í lok myndarinnar eru gef-
in fyrirheit um framhald með orðun-
um „to be continued“. Vonandi gerist
sú mynd á Heimsmeistaramótinu, þar
sem Kuno spilar fyrir lið Mexíkó.
nSpútnik spilar á neðri
hæðinni á Gauknum. DJ
Doddelicius spilar 80‘s og 90‘s
á efri hæð.
nJosh Groban í Laugardalshöll
kl. 20.
nDj Kári spilar á Prikinu.
nSan Francisco-ballettinn í
Borgarleikhúsinu kl. 20.
nPeter Parker á Barnum.
nBrynjar Már á Sólon.
Hvað er
að gerast?
Miðvikudagur 16. maí
Leikur Al
Capone
Leikarinn Nicholas Cage hefur nú
skrifað undir samning þess efnis að
fara með hlutverk Al Capone í mynd-
inni The Untouchables: Capone Ris-
ing. Fyrri myndin, um einn frægasta
mafíósa sögunnar, var gerð árið 1987
og ber heitið The Untouchables. Þá
var það enginn annar en Robert De
Niro sem fór með hlutverk Al Capone
en leikstjórinn Brian De Palma sem
leikstýrði fyrri myndinni kemur einnig
til með að stýra þeirri seinni. Cage og
De Palma hafa áður unnið saman þeg-
ar De Palma leikstýrði kvikmyndinni
Snake Eyes. Áætlað er að tökur á The
Untouchables: Capone Rising, hefjist
í október.
ALVARA GJÁLÍFSINS
Fracture
frumsýnd
Myndin Fracture er frumsýnd í dag í
Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói
á Akureyri. Um er að ræða sálfræði-
trylli með þeim Anthony Hopkins og
Ryan Gosling. Antony Hopkins leikur
mann sem skýtur eiginkonu sína og
fangar elskhuga hennar. Gosling leik-
ur ungan og metnaðarfullan lögfræð-
ing sem tekur að sér málið en ekki er
allt sem sýnist. Hopkins er fljótur að
finna veikleika Goslings og áður en
hann veit af er lögfræðingurinn ungi
kominn í hann krappan.
Bíódómur
Goal 2 livinG the Dream
Goal 2 er engin óskars-
verðlaunamynd en hún er
skemmtileg. Þá held ég að
fótboltaáhugamenn verði
einfaldlega að sjá hana.
Leikstjóri: Jaume Collet-Serra
Aðalhlutverk: Kuno Becker, Alessandro Nivola, Anna Friel,
Stephen Dillane, Rutger Hauer, Nick Cannon og Frances
Barber.
Niðurstaða: HHHHH
Goal 2 Living The
Dream Santiago
kemst til Real
Madrid og allt
breytist.
Alvara gjálífsins Það er erfitt að
skora þegar konan er fúl.
Arthur
www.fjandinn.com/arthur
hver þarf upphæðin að vera svo þú svíkir þjóð þína...
frá framleiðanda
matrix, die hard og
lethalweapon
sumt er ekki hægt að útskýra með vísindum
Stærsta
orrustan
er innri
baráttan
aldrei hafa tveir karlmenn dansað jafn vel saman!
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
hraðskreiðir bílar, súpermódel og partý...
þarf ekki eitthvað meira til að sanna að þú sért frábær leikmaður?
hilary swank StórStjörnur úr real Madrid...
/ kringlunni / keflavík/ álfabakka / akureyri
DigiTal-3D
DigiTal
SPIDERMAN 3 kl. 8 - 10 B.i. 10
NExt kl. 8 Leyfð
GOAL 2 kl 8 -10 B.i. 7
BLADES OF GLORY kl 8 - 10 B.i.12
GOAL 2 kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i.7
tHE REAPING kl. 8:10 - 10:20 B.i.16
BLADES OF GLORY kl. 6 - 8:10 B.i.12
ROBINSON FJ... M/- ÍSL TAL kl. 6 Leyfð
300. kl. 10:20 B.i.16
BREACH kl. 8 B.i.12
MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 4 Leyfð
ROBINSON FJ... M/- ÍSL TAL kl. 4 Leyfð
WILD HOGS kl. 8 b.i 7
BECAUSE I SAID SO kl. 6 Leyfð
tHE REAPING kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.16
SPIDER MAN 3 kl. 3:30 - 6 - 9 - 10:30 B.i.10
SPIDER MAN 3 VIP kl. 6 - 9
BLADES OF GLORY kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12
SHOOtER kl. 10:30 B.i.16 www.SAMbio.is