Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2007, Page 30
miðvikudagur 16. maí 200730 Síðast en ekki síst DV
veðrið ritstjorn@dv.is
fimmtudagurmiÐViKudagur
Sandkorn
Umgjörðin í kringum fótboltann
hér á Íslandi hefur sjaldan verið
glæsilegri. Styrktaraðilar og Knatt-
spyrnusambandið hafa unnið
gott starf í því að koma íslensku
deildinni á hærri stall. Glamúrinn
er orðinn meiri, launin hærri og
frægðarsól leikmanna hefur hækk-
að. Fótboltinn er kannski ekki alveg
eins góður og á Englandi, en ef við
bara látum sjá okkur á vellinum, þá
getur stemmingin verið frábær.
Það getur verið gaman að vera reið-
ur, sjá samsæri ríkisstjórnarinnar í
hverju horni og hlusta á tímalaust
harðlínurokk frá Rage Against The
Machine. Þessir uppreisnarsinnar
eru komnir aftur og munu væntan-
lega ekki fara hljóðlega um. Hljóm-
sveitin á að baki fjölmörg frábær
lög sem eldast eins og góður Kalis-
inihkov-riffill. Nú er bara að vona
að þeir heiðri okkur Íslendinga
með tónleikahaldi og trylli æsku
landsins.
Ekkert er fegurra en vorkvöld í
Reykjavík. Það er ekkert vit í því að
sitja inni í lokuðum bíl og rúnta um
Reykjavíkurborg á fallegu vorkvöldi.
Það er algjörlega frábært að hjóla
um borgina, njóta þess sem fyrir
ber og anda að sér ferska loftinu.
Borgaryfirvöld hafa síðustu ár stað-
ið sig með prýði í lagningu göngu-
stíga og er hægt að hjóla nokkurn
veginn um alla borg án nokkurra
vandkvæða.
Aulahrollurinn náði alla leið niður
í tær þegar Jón Sigurðsson og Ómar
Ragnarsson tóku lagið saman í Kast-
ljósi á sunnudag. Sennilega voru
þeir hvorugir með ráði, enda lítið
búnir að hvíla sig. En það var þó eitt-
hvað ótrúlega fallegt og skemmtilegt
við þennan atburð, þarna voru sam-
ankomnir menn sem eru þrátt fyrir
mikinn ágreining ágætis vinir og
var íþróttaandinn í hávegum hafð-
ur. Baráttan búin og þá fallast allir
í faðma og verða vinir á nýjan leik.
Alveg eins og það á að vera.
Við mælum með...
...rage against
the machine
...LandsbanKadeiLdinni
...hjóLreiÐatúr
barði í borðið
Seinkun á skipan ríkissaksókn-
ara hefur valdið nokkrum titringi
meðal um-
sækjenda og
annarra lög-
fræðinga. Til
stóð að skipað
yrði í embætt-
ið viku fyrir
kosningar en
því var frestað
um óákveð-
inn tíma. Ástæður seinkunar-
innar töldu flestir vera að Björn
Bjarnason ætlaði að skipa Jón
H.B. Snorrason í embættið en
hafi ekki viljað gera það fyr-
ir kosningar vegna fjaðrafoks
sem það myndi valda. Nú tala
menn aftur á móti um að Geir
H. Haarde forsætisráðherra hafi
barið í borðið og mótmælt því að
svo umdeildur maður sem Jón
H.B. yrði skipaður. Svo er bara að
sjá hvort Björn fari eftir orðum
Geirs eða gefi honum langt nef,
sem talið er mun ólíklegra enda
er ráðherrastóll fyrir Björn undir
Geir kominn.
Kjötkrókur hræðir
Útskriftarsýning Listaháskólans
er núna í fullum gangi í kartöflu-
geymslunum
gömlu í Ártúns-
brekku. Má þar
finna stórglæsi-
leg verk úr
smiðju ötulla
útskriftarnema,
en eru flestir
gestir sammála
um að vídeó-
listaverk Ómars Arnar Hauks-
sonar tónlistarmanns sé einkar
áhugavert . Um er að ræða trailer,
eða stiklu, úr kvikmynd sem hef-
ur enn ekki verið gerð. Myndin
ber heitið Kjötkrókur og er hryll-
ingsmynd í svokölluðum splatter-
stíl þar sem sjálfur jólasveinn-
inn Kjötkrókur er í aðalhlutverki,
með krókinn að vopni. Hermir
sagan að Ómar ásamt hópi ann-
arra sé nú í óða önn að reyna að
fá fjármagn til þess að gera kvik-
myndina.
trabant á myspace
Hróður hljómsveitarinnar Trabant
eykst jafnt og þétt. Í DV í vikunni
kom fram að
tónlist sveitar-
innar yrði senn
gefin út í Bret-
landi og er það
útgáfufyrirtæki
Fatboy Slim
sem gefur út. Í
kjölfarið heldur
svo bandið út
að fylgja eftir plötunni. Þá gerðist
það einnig í vikunni að Trabant var
kynnt sem hljómsveit sem vert væri
að athuga á forsíðu myspace.com,
einnar stærstu heimasíðu í heimi.
Varla skemmir það fyrir komandi
vinsældauppbyggingu ytra.
50 spörk í nárann
Upptökur á kvikmyndinni Stóra
planinu standa nú yfir. Þar fer
með aðalhlutverkið Pétur Jó-
hann Sigfússon og fleiri góðir
eru til hliðar. Til dæmis er þar
rapparinn Erpur Eyvindarson. Á
dögunum var tekið upp atriði þar
sem Erpur átti að sparka í nárann
á Pétri, en eitthvað vafðist spark-
ið fyrir bæði leikurunum og kvik-
myndagerðarmönnunum. Þurfti
á endanum að taka sparkið upp
50 sinnum. Grey Pétur Jóhann.
...syngjandi
stjórnmáLamönnum
Kum ba yah og
fleiri gömul og
góð sKátalög
„Tónleikarnir bera keim af því að
í ár fagna skátar um allan heim 100
ára afmæli skátahreyfingarinnar,“
segir Sigurður Viktor Úlfarsson, for-
maður Skátakórsins, en kórinn held-
ur árlega vortónleika sína í Grensás-
kirkju laugardaginn 19. maí kl. 16. „Í
rauninni voru þetta tveir kórar sem
störfuðu í kringum 1995 og 1996,
annar í Reykjavík og hinn í Hafnar-
firði, en við fórum að starfa saman
árið 1998. Við miðum fæðingardag
kórsins við fyrstu tónleikana sem við
héldum sem einn kór, en það var árið
1998. Við höldum því upp á tíu ára af-
mælið næsta vetur. Við erum áhuga-
mannakór og flestir kórfélaganna,
sem eru á aldrinum 30 til 70 ára, hafa
starfað í skátahreyfingunni. Aðrir
hafa bara viljað slást í hópinn og hafa
verið boðnir hjartanlega velkomnir.
Við réðum til okkar atvinnutónlist-
armann, Margréti Sigurðardóttur, til
þess að stjórna kórnum.“ Skátakór-
inn fer til Bretlands um verslunar-
mannahelgina og mun syngja á móti
þar sem um 40 þúsund manns frá
160 löndum ætla að koma saman til
að fagna 100 ára afmæli skátahreyf-
ingarinnar en hápunktur hátíða-
haldanna er Alheimsmót skáta.
Vilja varðveita
menningararfinn
„Við byrjum á því að halda tón-
leika í Essex, í nágrenni við mótsstað-
inn, síðan skellum við okkur á mótið
og verðum þar um verslunarmanna-
helgina í glæstum hópi skáta. Ég
held að ég fari rétt með það að þetta
verði fjölmennasti hópur ungmenna
sem fer til útlanda, því þátttakend-
ur skaga upp í 500 manns. Íslensku
skátarnir eru á aldrinum 14 til 18 ára,
með þeim eru fararstjórar og fleiri og
svo bætumst við kórfélagar í hópinn.
Þetta verður því fjölmennur hópur
sem mætir fyrir Íslands hönd.“
Skátakórinn hefur gefið út tvo
geisladiska með íslenskum skátalög-
um og Sigurður segir hlutverk kórs-
ins meðal annars vera það að varð-
veita þann íslenska menningararf
sem skátalögin eru.
„Við viljum tryggja það að skáta-
lögin séu til á nótum og helst einnig á
geisladiskum. Við erum að spá í það
að gefa út þriðja diskinn á næsta ári.
Ef við gerum ekkert í málinu þýðir
það einfaldlega að þessi lög eigi eftir
að týnast og að seinni kynslóðir syngi
ekki sömu lögin og voru sungin fyrir
þrjátíu árum.“ Dagskráin sem kórinn
flytur á Englandi kemur úr ýmsum
áttum.
„Við ætlum að flytja íslensk lög
annars vegar og enska tónlist hins
vegar. Svo syngjum við skátalög sem
hafa verið útsett fyrir okkur sérstak-
lega. Sum skátalög eru sungin um
allan heim og flestir kannast við lög
eins og Ging gang gullí gullí og Kum
ba yah. Svo eru önnur skátalög sem
eru rammíslensk og það er einmitt
eitt af hlutverkum kórsins að kynna
íslensku lögin.“
skátahreyfingin heldur velli í
nútímanum
Sigurður segir að þátttakan í
skátahreyfingunni hafi staðið í stað
undanfarin tíu til fimmtán ár þrátt
fyrir þá staðreynd að nú standi æsk-
unni margt annað til boða.
„Þátttakan rokkar svolítið á milli
hverfa, stundum er uppsveifla í einu
félagi og rólegra í öðru. Það segir sína
sögu um vinsældir skátahreyfing-
arinnar að um fimm hundruð ung-
menni eru á leiðinni til Bretlands og
það hlýtur að teljast glæsilegur ár-
angur.“
Dagskrá tónleikanna á laugar-
daginn samanstendur af íslenskum
þjóð- og ættjarðarlögum, ensku létt-
meti og íslenskum skátasöngvum.
„Auk þess verða gestir hvattir til
þátttöku í fjöldasöng við gítarundir-
leik og skátar úr Kópum í Kópavogi
munu flytja skemmtiatriði. Ég veit
ekki hvort þeir ætla að syngja eða
flytja stutta leikþætti. En þetta er sú
aðferð sem skátarnir nota til þess að
kenna krökkunum að koma fram og
tala frammi fyrir hópi af fólki. Marg-
ur leikarinn hefur hafið ferilinn á
þann hátt,“ segir Sigurður að lokum,
hress í bragði.
Á laugardaginn heldur Skátakórinn sína árlegu tónleika. Í ár eru
þeir nokkurs konar upphitun fyrir tónleika sem kórinn heldur á
Englandi, á skátamóti sem haldið er í tilefni af 100 ára afmæli
skátahreyfingarinnar.
sigurður Viktor úlfarsson, formaður
skátakórsins kórinn tekur þátt í
alheimsmóti skáta með söng á vör.
4
145 7
7
9
49
12
9 4
7
4
10
7
6 1
6 3
12
74
12
3
194
12
19
7 7
4
7
6
7
12
3
6
2
4