Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Qupperneq 4
Miklar truflanir á Stöð 2 Mikillar truflunar hefur orðið vart á útsendingum Stöðvar 2 í vissum stöðum í Keflavík og í Vog- um á Vatnsleysu- strönd. Þetta hef- ur valdið mörgum áhorfendum óánægju. Jakob Ingi Jakobsson, íbúi í Keflavík, segist vera að gefast upp á þjónustunni hjá fyrirtækinu. „Þeir svara okkur ekkert og sinna þessu ekki á Stöð 2,“ segir Jakob Ingi. „Þegar ég reyni að hringja inn í þjónustu- verið lendi ég bara í biðröð og er tilkynnt að ég sé númer 201 í röðinni,“ segir Jón. Skarphéðinn Guðmundsson, upplýsingafulltrúi 365, kunni engar skýringar á truflununum en segir það miður að Jón hafi ekki náð sambandi. „Það eru auðvit- að mistök okkar megin sem við verðum að vinna í,“ segir Skarp- héðinn. „Þetta byrjaði með fikti en endaði í vitleysu,“ sagði Snæbjörn Magnús- son hótelrekandi í Laugarási í Árborg. Hann var dæmdur í sjö mánaða, skil- orðsbundið fangelsi, fyrir stórfellda kannabisræktun. Héraðsdómur Suð- urlands fann hann sekan um stór- fellda ræktun en á heimili hans fund- ust 163 kannabisplöntur, tól og tæki til ræktunar auk þess sem hann stal raf- magni. Það var í desember á síðasta ári sem lögreglu barst ábending um að Snæbjörn stundaði kannabisræktun á hóteli sínu í Árborg. Rannsóknar- lögreglan kom að heimili hans og fann megna kannabislykt koma frá glugga einum á hótelinu. Tveimur dögum síðar lagði lögreglan til atlögu. Snæ- björn var samvinnufús og sýndi þeim rýmið sem hann notaðist við ræktun- ina. Þar fundust fyrrnefndar plöntur auk fjölda lampa, afklipptum skunk ásamt kannabislaufum. „Ég eignaðist tvö fræ og ég setti fræin í mold fyrir forvitnissakir,“ segir Snæbjörn í dómsorði og lét hann þessi orð falla í yfirheyrslum lögreglunn- ar. Í framburði hans fyrir Héraðsdómi Suðurlands segist hann ekki hafa haft í hyggju að selja afurðir plantnanna. Hann segir að forvitnin hafi dregið hann áfram í ræktuninni en sú for- vitni hafi hreinlega hlaupið með hann í gönur. Aðspurður hvernig hann hafi aflað sér upplýsingar um ræktun kannabis segist hann hafa viðað þeim upplýsingum að sér á netinu. Í raun þyrfti enga visku til þess að hans sögn, kannabis yxi bara og yxi. Í niðurstöðu héraðsdóms segir að framburður Snæbjörns sé í alla staði ótrúverðugur. Þar segir orðrétt: „All- ar þessar skýringar ákærða eru ótrú- verðugar og þykir dóminum ekki mark takandi á þeim. Þá er með ólíkindum að til að svala forvitni um það hvern- ig kannabisplanta vaxi, skuli vera not- aðar yfir 160 plöntur, af minna má nú læra.“ Héraðsdómur fann hann í kjölfarið sekan um ræktun og að hafa stolið raf- magni frá Rarik. Hann var dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir forvitnina en refsingu er frestað og fellur hún niður haldi hann skilorð í tvö ár. valur@dv.is mánudagur 2. júlí 20074 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Byrjaði á tveimur fræjum en endaði með á annað hundrað kannabisplantna: Forvitni bar kannabisræktanda ofurliði Kannbis Hóteleigandi var dæmdur fyrir að rækta á annað hundrað kannabisplantna í árborg á síðasta ári. Fá að sitja í stjórn Samkeppniseftirlitið hef- ur orðið við beiðni Símans að ógilda ákvörðun sína um að stjórnarmenn, forstjóri eða fram- kvæmdastjórar fyrirtækisins fái ekki að sitja í stjórn Íslenska sjónvarpsfélagsins, sem rekur Skjá Einn. Eftir að Samkeppniseftirlit- ið féllst á beiðni Símans er for- stjóra eða einum framkvæmda- stjóra Símans nú heimilt að sitja í stjórn Íslenska sjónvarpsfélags- ins. Skilyrðin fyrir stjórnarset- unni tóku gildi þann 1.júlí í fyrra vegna samruna fyrirtækjanna. Taka 28 milljarða lán Fjárfestingafélagið FL Group undirritaði á föstudag 28 millj- arða króna lánssamning til þriggja ára við Morgan Stanley vegna fjármögnunar á hluta- bréfaeign félagsins í Glitni. Eftir því sem fram kemur í fréttatil- kynningu frá félaginu hefur FL Group nú fjármagnað alla hlutafjáreign sína í Glitni með lang- tímalánum. Hlutur FL Group í Glitni er stærsta eign fé- lagsins. Flýr af netinu Helgi Rafn Brynjarsson sem sakaður hefur verið um að hafa orðið valdur að dauða hunds- ins Lúkasar með hrottafengnum hætti á Akureyri, hefur neyðst til þess að loka tveimur blogg- síðum á netinu sem hann kom að. Fjöldi alvarlegra hótana um líkamsmeiðingar og jafnvel morð hafa borist manninum, meðal annars í gegnum bloggsíðurnar. Helgi Rafn hefur neitað staðfast- lega að hafa misþyrmt hundin- um. Atburðurinn er sagður hafa verið tekinn upp á myndband. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Sjóvá til að greiða manni tæpar níu milljónir króna í bætur vegna geðröskunar sem hann varð fyrir vegna umferðarslyss. Maðurinn getur ekki séð um sig sjálfur að öllu leyti og breyttist úr virkum einstaklingi í óvirkan eftir slysið að sögn lækna. TÓLF ÁRA BARÁTTA „Þetta er löng og ströng barátta, það er góður sigur að vinna mál- ið,“ segir Óðinn Elísson, héraðs- dómslögmaður. Óðinn er lögmað- ur karlmanns sem vann fyrir helgi mál gegn Sjóvá eftir að hafa lent í bílslysi fyrir tólf árum síðan. Mik- il barátta hefur verið í þessi tólf ár um að fá réttláta málsmeðferð og að andlegt ástand mannsins væri tekið með sem afleiðing af slysinu. Manninum voru dæmdar rúmar átta og hálf milljón í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir helgi. Maðurinn getur ekki séð um sig sjálfur að öllu leyti samkvæmt greinargerð tveggja lækna sem fengnir voru til að meta hann og dómurinn tók gilda. Þar sagði að áverkar sem maðurinn hlaut í slys- inu hefðu orðið til þess að hann breyttist úr virkum einstaklingi í óvirkan. Flókið mál og mikil bið „Það skiptir auðvitað miklu máli fyrir manninn að vinna málið loks- ins, því hann er mjög illa farinn og óvinnufær,“ segir Óðinn. „Málið er einfaldlega að hann lendir í slysi árið 1995. Það er keyrt inn í hlið- ina á bílnum hans, þetta var talsvert harður árekstur. Einkennin fara að þróast eftir slysið og eins og í mörg- um svona slysum getur liðið lang- ur tími þar til einkennin koma fram að fullu. Í þessu máli er svo margt sem kemur inní sem dregur mál- ið á langinn. Maðurinn var metinn og lögmenn hans voru ekki ánægðir með niðurstöðu fyrsta matsins. Við dómkváðum matsmenn og getum vel unað niðurstöðunni sem kem- ur úr því mati, því þá er meðal ann- ars tekið tillit til andlegra afleiðinga slyssins en tryggingafélagið sætti sig ekki við það. Tryggingafélagið dóm- kvað yfirmatsmenn og þeir kom- ust að þeirri niðurstöðu að andlegi þátturinn væri ekki vegna slyss- ins. Þeir vildu meina að um væri að ræða skyndilegan geðklofa sem við gátum engann veginn fallist á,“ seg- ir Óðinn. Þetta var því orðið snúið og ansi langt mál en áfram hélt þófið. „Því næst tók við ákveðið samingaþóf við tryggingafélagið en ekkert gekk. Þá var málinu stefnt fyrir dómstóla og síðan leitað til læknaráðs. Álit læknaráðs var fengið á því hvaða mat er réttast. Það tók mjög langan tíma en læknaráðið komst að þeirri niðurstöðu að matið sem ég bað um og við vildum styðjast við, þar sem tekið er tillit til andlegra afleið- inga af slysinu, er tekið til greina. Í framhaldi af því er málið flutt og fyrir helgi kom dómur þar sem er fallist algjörlega á okkar sjónarmið og honum dæmdar fullar bætur og verulegir dráttarvexti,“ segir Óðinn. Andlegar afleiðingar með Óðinn segir að málið sé sérstakt á margan hátt. „Þetta er því mjög ánægjulegt og að mörgu leyti sérstakt mál því um það var deilt hvort langvar- andi líkamlegir verkir geti haft andleg- ar afleiðingar og því er slegið föstu í þessum dómi,“ segir Óðinn. „Þetta er því mjög ánægjulegt og það reyndi á marga lögfræðilega þætti í þessu máli,“ segir Óðinn. Helsta ástæðan fyrir því hversu lengi málið hefur dregist er sú að það er mjög flókið. „Það þurfti að afla margra matsgerða,“ segir Óðinn. „Eðli málsins var einnig slíkt að áverkarn- ir voru lengi að koma fram og tíminn var til að byrja með alls ekki að vinna gegn manninum heldur frekar með honum. Síðar kom betur í ljós hversu alvarlegir þessir áverkar voru í raun,“ segir Óðinn. KRISTÍN HREFNA HALLDÓRSD. blaðamaður skrifar: kristinhrefna@dv.is Óðinn Elísson mikill sigur er í höfn hjá Óðni eftir að dómur féll í Héraðsdómi reykjavíkur sem dæmdi skjólstæðingi hans rúmar átta og hálfa milljón í skaðabætur vegna umferðarslys og andlegra áverka sem hann hlaut í kjölfar slyssins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.