Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2007, Page 6
Að loknu togararalli Hafrannsókna-
stofnunarinnar í vor fengust þær nið-
urstöður að stofnvísitala þorsksins
hefði lækkað um 17 prósent. Fyrir vikið
mælti veiðiráðgjafasvið stofnunarinn-
ar með því að þorskkvóti yrði lækkað-
ur úr 180 þúsund tonnum í 130 þús-
und tonn, um þriðjung aflaheimilda
frá árinu áður. Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra ákvað að fara al-
gjörlega eftir ráðgjöf sérfræðinga Haf-
rannsóknastofnunarinnar.
Stofnmælingar Hafrannsókna-
stofnunarinnar hafa verið gagnrýndar
í gegnum tíðina og þær sagðar á köfl-
um úr takti við aflabrögð sjómanna. Í
ár var togað á 550 rallstöðvum í kring-
um landið og tóku fimm skip þátt í rall-
inu. Niðurstöður rallsins benda til þess
að ungir árgangar þorsksins séu slakir
og meðalþyngd veiðistofnsins mældist
ívið lægri en áður.
Útgerðarmenn búa sig undir mikla
tekjuskerðingu á næstu árum og skipu-
leggja breytta veiðitaktík. Margir þeirra
héldu að botninum hefði áður verið
náð í kvótaskerðingu.
Vitum hvað við erum að gera
Björn Ævarr Steinarsson, sviðstjóri
veiðiráðgjafarsviðs Hafrannsókna-
stofnunarinnar, segir ljóst að grípa hafi
þurft til aðgerða. Hann telur mikilvægt
að fjölga fiskum í hverjum árgangi og
ná upp aldri hrygningarstofnins.
„Meginástæðan fyrir okkar ráð-
gjöf nú er að inn eru að koma lélegir
árgangar sem koma til með að halda
uppi veiðinni á næstu árum. Fiskarnir
eru fáir í árgöngunum og meðalþyngd
þeirra nærri því lágmarki sem mælst
hefur. Fiskurinn er að vaxa tiltölulega
hægt núna þannig að hver nýliði gefur
verr af sér. Þeir eru hins vegar í ágæt-
is holdum en lágmark meðalþyngdar-
innar hefur að sjálfsögðu einnig áhrif á
ráðgjöfina,“ segir Björn. „Minna fæðu-
framboð og breyttar umhverfisaðstæð-
ur hafa eðlilega áhrif á meðalþyngd-
ina. Meðalþyngdin getur aftur stjórnað
stofnstærð um 20-30 prósent. Við það
stækkar stofninn og ráðgjöfin miðast
við að halda meðalþyngdinni. Í okk-
ar huga er mikilvægast að auka fjölda
fiska í hverjum árgangi ásamt því að ná
aldri fiska í hrygningarstofninum upp
á við.“
Kolröng aðferð
Jón Kristjánsson fiskifræðingur er
aftur á móti undrandi yfir veiðiráðgjöf
Hafrannsóknastofnunarinnar. Hann
segir eina vitið í stöðunni að auka veið-
ar á þorski. „Aflaráðgjöf Hafró ber vott
um fádæma skort á fagmennsku og
sjálfsgagnrýni. Við stofnmat er mest
tekið tillit til togararallsins og lítið tek-
ið tillit til annarra þátta, svo sem afla-
bragða og reynslu sjómanna. Hafró fór
í rall í mars eins og venjan er, í vitlausu
veðri og niðurstaðan í takt við það,“
segir Jón.
„Mikilvægt er að gera sér grein fyr-
ir því að stofnmat rallsins byggist á því
sem veiðist. Fiskur sem ekki veiðist, er
til dæmis uppi í sjó eða annars stað-
ar, hann vigtar ekkert inn í niðurstöð-
una. Stofnmat rallsins er því alltaf lág-
markstala. Fiskur inni í fjörðum, uppi í
fjörum og mestur hluti vertíðarfisksins
telst ekki með í stofnmælingunum.“
Best í heimi
Aðspurður hafnar Björn alfarið
gagnrýni á stofnmælingar stofnun-
arinnar. Þvert á móti segir hann að-
ferðirnar veita afar nákvæma mynd af
stofnstærðum. „Við vitum nákvæm-
lega hvað við erum að gera og höfum í
gegnum tíðina náð að leggja gott mat á
þá stofna sem bera uppi veiðina. Mæl-
ingar okkar skila góðri vissu og það
hika ég ekki við að fullyrða. Við þekkj-
um vel stærðir árganganna og á þeirri
þekkingu byggjum við okkar ráð-
gjöf. Mælingar okkar hafa verið fram-
kvæmdar með sama hætti síðustu 20
ár og það hefur einfaldlega sýnt sig að
þær reynast vel,“ segir Björn.
„Við trúum okkar aðferðum og
treystum. Togararall er notað mjög
víða í heiminum og er viðurkennd að-
ferðafræði. Rallið er hins vegar hvergi í
heiminum framkvæmt eins vel og hér
á landi enda hefur árangur okkar á síð-
ustu 20 árum verið góður,“ segir Björn.
„Öll gagnrýni á togararallið er einfald-
miðvikudagur 11. júlí 20076 Fréttir DV
TrausTi hafsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Útgerðarmenn búa sig undir tekjuskerðingu næstu
árin í kjölfar kvótaskerðingar á þorskveiðar. Jón
Kristjánsson fiskifræðingur gagnrýnir veiði-
ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar
harðlega. Björn Ævarr steinarsson,
sviðstjóri veiðiráðgjafarsviðs
Hafrannsókna-
stofnunarinnar, segir
stofnmælingar Íslend-
inga þær bestu í
heiminum.
Gamlar
beljur
bjarGa
stofninum
hafró Sérfræðing-
ar Hafrannsókna-
stofnunarinnar
telja sig hafa mjög
góða þekkingu á
stofnstærðum á
íslandsmiðum. Ef
eitthvað segja þeir
mæliaðferðir á
stofnunum of
nákvæmar.