Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2007, Blaðsíða 18
miðvikudagur 11. júlí 200718 Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
Van der Meyde lofar betrun
andy van der meyde leikmaður Everton
hefur lofað því að bæta hegðun sína og
segist ætla að gera
allt sem í sínu valdi
stendur til þess að
spila vel með
liðinu á næsta
tímabili. Tími hans
hjá liðinu hefur
einkennst af
meiðslum og þykir
hann helst til mikið
einbeita sér að
skemmtanalífinu í stað þess að æfa.
Visa-bikarinn í kVöld
Þrír leikir fara fram í viSa-bikarnum í
kvöld. Þróttur tekur á móti bikarmeist-
urum keflavíkur á
valbjarnarvelli, Þór
fær Fylki í
heimsókn á
akureyrarvelli og á
kópavogsvelli fer
fram nágranna-
slagur á milli
Breiðabliks og Hk.
leikirnir fara allir
fram klukkan
19.15 og verður spennandi að sjá hvort
fyrstu deildarliðunum tekst að velgja
úrvalsdeildarliðunum undir uggum.
Eins er leikur kópavogsliðanna
athyglisverður og spurning hvort Hk-
menn ná að hefna ófaranna síðan í
síðasta leik liðanna nú fyrir skömmu.
dregið verður í átta liða úrslit viSa-
bikarsins í hádeginu á föstudag.
Hættir nedVed Hjá juVentus?
Pavel Nedved, leikmaður juventus,
íhugar nú að hætta að leika knattspyrnu
með juventus.
Ástæður þess eru
að forráðamenn
juventus vilja ekki
ganga að
launakröfum
leikmannsins.
Samningur hans
rann út eftir
síðasta tímabil en
allt útlit var að
hann yrði allavega eitt ár til viðbótar hjá
juventus. Nú er allt í lausu lofti með það.
„Ef tilboð juventus er ekki á þeim
nótum sem við viljum eru allar líkur á
því að hann hætti að leika með félaginu.
Eins og staðan er í dag þá hefur
juventus ekki komið með neitt tilboð,“
sagði umboðsmaður kappans.
breytti Víti og rauðu spjaldi í
Hornspyrnu
Orðatiltækið að ekki þýði að deila við
dómarann átti svo sannarlega ekki við í
leik metrómanna
og Strumpanna í
utandeildinni í
fótbolta á
mánudagskvöldið.
Þannig var að
metrómenn fengu
hornspyrnu og
upp úr henni var
skallað að marki
Strumpanna. Á
línunni stóð leikmaður Strumpanna
sem varði boltann með hendinni.
dómari leiksins dæmdi réttilega
vítaspyrnu og rak leikmanninn af velli.
Þessum dómi mótmæltu Strumparnir
og eftir smá umhugsun ákvað
dómarinn að sleppa því að dæma víti,
sleppa rauða spjaldi leikmannsins sem
varði á línu og í staðinn fengu
metrómenn aðra hornspyrnu. Hvar
segir svo að ekki þýði að deila við
dómarann?
Vildi Vera Hjá real Madrid
david Beckham hefur lýst því yfir að
hann vildi vera áfram hjá real madrid.
Hann sagði ennfremur að hann hafi séð
eftir ákvörðuninni
að semja við la
galaxy. Beckham
samdi við la
galaxy eftir að
ramon Caldreon,
forseti real
madrid, hafði
tilkynnt honum að
samningar við
hann yrðu ekki
endurnýjaðir. „Ég sá mér alveg fært að
vera lengur hjá madrid. Ég held að ég
gæti spilað þrjú tímabil í viðbót í
spænsku deildinni en þegar félagið
tilkynnti mér um ákvörðun sína í byrjun
árs þá tók ég þá ákvörðun um að halda
til Bandaríkjanna,“ sagði Beckham. Hann
viðurkenndi að hann hafi séð eftir
ákvörðuninni daginn sem madrid varð
meistari.
Handknattleiksdeild ÍR hefur kært HSÍ vegna mótafyrirkomulags í efstu deildum karla.
ÍR vill ekki að B-lið félaganna fái þátttökuleyfi í efstu deild. Dómur féll í málinu á dögun-
um, HSÍ í vil. ÍR-ingar hafa áfrýjað úrskurðinum til ÍSÍ.
Forráðamenn Handknattleiks-
deildar ÍR hafa kært þá ákvörðun
mótanefndar HSÍ að leyfa B-liðum
félaganna að taka þátt í efstu deild
karla. Eins og staðan er í dag þá
eru 23 lið skráð til leiks næsta vetur
og því ljóst að leikið verður í þrem-
ur deildum. Dómstóll HSÍ dæmdi á
dögunum í málinu og dæmdi HSÍ í
vil. ÍR-ingar hafa aftur á móti áfrýj-
að dómnum til áfrýjunardómstóls
ÍSÍ. Það er því ekki hægt að raða
upp leikjum í fyrstu og annarri deild
handboltans fyrr en endanlegur úr-
skurður dómstólsins liggur fyrir.
Verði úrskurðurinn ÍR í vil er ljóst að
þau sjö B-lið sem tilkynnt hafa þátt-
töku næsta vetur fá ekki að vera með.
Gerist það verður leikið í tveimur
deildum á komandi tímabili.
Róbert Geir Gíslason, starfsmað-
ur mótanefndar HSÍ, segir að í aug-
um sambandsins sé staðan óbreytt
og leikið verði í þremur deildum
næsta vetur. „Það hefur ekkert lið
tekið skráningu sína tilbaka frá því í
vor. Dómsmálið er í gangi og er það
meining ÍR-inga að B-liðin eigi að
taka þátt í sérkeppni en ekki að taka
þátt í deildakeppninni. Það er ekki
okkar túlkun á málinu. Dómstóllinn
dæmdi okkur í hag og í raun er það
sú niðurstaða sem við vinnum eftir,“
sagði Róbert Geir.
ætlum alla leið með málið
Stefán Valsson, stjórnarmaður í
handknattleiksdeild ÍR, segir að lög
HSÍ séu að þeirra mati ekki góð. „Við
ætlum að fara með málið alla leið. Við
teljum það ekki íþróttinni til fram-
dráttar að lið séu að tefla fram strák-
um úr 3. flokki til að spila gegn meist-
araflokksleikmönnum. Að okkar mati
eru þessi lög ekki góð og það er fyrst
og fremst ætlun okkar að vekja athygli
á því. Við viljum þessari íþrótt vel og
viljum vinna að framdrætti hennar
en teljum að þessi lög, sem heimila
B-liðum að keppa í deildakeppninni,
séu ekki handboltanum til framdrátt-
ar,“ sagði Stefán.
Með því að losna við B-liðin úr
deildakeppninni hafa sumir sagt að
ÍR sé að reyna að fækka liðum svo
einungis verði leikið í einni deild.
Stefán segir að svo sé alls ekki raun-
in. „Við erum ekkert fúlir yfir því að
hafa fallið í fyrstu deild. Við viljum
bara að í fyrstu deild verði lið sem
eru svipuð að getu en ekki fjögur til
fimm góð lið og svo bara fyllt upp í
með einhverjum B-liðum. Við erum
alls ekki að þessu til að koma okkur
upp um deild, það er á hreinu,“ sagði
Stefán að lokum.
Athygli vekur að ÍR skráir B-lið til
keppni næsta vetur og verður það í
þriðju deild að öllu óbreyttu. Stefán
segir að ástæða þess að þeir skrá B-
lið til leiks sé til að benda á andstöðu
okkar við þetta. „Við skráðum liðið
til leiks og bentum á að við gætum
í raun alveg eins sent 6. flokk í leik-
ina. Þetta er „old boys“-liðið okkar
sem við skráum til leiks en við getum
sent hvern sem er til leiks. Þetta er
bara gert til að ítreka andstöðu okkar
í málinu,“ sagði Stefán að lokum.
Áfrýjunardómstóll ÍSÍ hefur, eins
og áður segir, málið á sinni könnu
núna og má búast við því að það taki
dómstólinn um viku til tíu daga að
kveða upp úrskurð sinn. Þegar dóm-
ur hefur verið kveðinn upp verður at-
hyglisvert að sjá hvað HSÍ gerir verði
dómi dómstóls HSÍ hnekkt.
kari@dv.is
MÓTAFYRIR-
KOMULAGIÐ
Í UPPNÁMI
Þungur á brún Það mæðir
mikið á Einari Þorvarðarsyni,
framkvæmdastjóra HSí,
þessa dagana.
ír kærir Hsí Óvíst er
hvernig mótafyrirkomu-
lagið verður næsta vetur.
Bernd Schuster, þjálfari Real Madrid,
staðfesti í gær að félagið væri búið að ganga
frá samningi við Javier Saviola. Hann kemur
til Real Madrid frá erkifjendunum í Barcelona
þar sem samningur hans var útrunninn.
Schuster sagði í samtali við spænsku út-
varpsstöðina Punto Radio að samningar hafi
náðst við Saviola 30. júní en beðið hafi verið
með tilkynninguna þar til Schuster tæki við.
„Hann er ungur, getur skorað mörk og
færir okkur margt annað,“ sagði Schuster. Sa-
viola vill sýna forráðamönnum Barcelona að
þeir hafi gert mistök að semja ekki við sig aft-
ur og Schuster segist ekki geta beðið.
„Þetta eru smáatriði sem koma sér vel fyrir
okkur. Stuðningsmenn og fjölmiðlar brugðust
vel við þegar þetta var tilkynnt,“ sagði Schust-
er. Saviola sagði á síðustu leiktíð að hann
myndi aldrei ganga í raðir Real Madrid og að
hann væri staðráðinn í að vinna fyrir nýjum
samningi hjá Barcelona. Hann fékk hins veg-
ar lítið að spreyta sig hjá Barcelona.
Saviola er þriðji leikmaðurinn sem geng-
ur í raðir Real Madrid. Þýski varnarmaðurinn
Christoph Metzelder fór í læknisskoðun í gær
og verður líklega kynntur sem nýr leikmað-
ur Real Madrid í dag. Þá hefur Real Madrid
einnig gengið frá kaupum á varnarmannin-
um Pepe frá Porto. Kaupverðið á honum er
talið vera um 2,5 milljarðar króna. Hinn 23
ára gamli Pepe skrifaði undir fimm ára samn-
ing við Real Madrid og aðeins er beðið eftir
læknisskoðun áður en kaupin verða formlega
tilkynnt.
Fyrir utan þessa þrjá leikmenn mun bras-
ilíski sóknarmaðurinn Julio Baptista koma
aftur í herbúðir Real Madrid. Hann var í láni
hjá Arsenal á síðustu leiktíð. „Þegar Copa
America er búið þá mun ég fara aftur til Real
Madrid, félagsins sem ég er samningsbund-
inn. Spánn er land sem ég kann vel við að búa
í og ég mun gera allt til að leika þar á nýjan
leik,“ sagði Baptista.
dagur@dv.is
Real Madrid er stórtækt á leikmannamarkaðnum fyrir komandi leiktíð á Spáni:
Saviola, Pepe og Metzelder til Real
javier saviola Fyrsti sóknarmaðurinn sem Bernd Schuster kaupir til
real madrid. Félagið hefur einnig gengið frá kaupum á Christoph
metzelder og Pepe.