Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2007, Blaðsíða 9
DV Fréttir miðvikudagur 11. júlí 2007 9
Fyrrverandi yfirmaður matvæla-
og lyfjaeftirlits Kína, Zheng Xiaoyu,
var tekinn af lífi í gær. Hann hafði
verið fundinn sekur um mútuþægni
og vanrækslu og var rekinn úr starfi
árið 2005. Talið var sannað að hann
hefði þegið sem svarar 850.000 döl-
um í mútur, sem tengdust kaup-
um á ósamþykktum lyfjum. Nokkur
dauðsföll hafa verið rakin til lyfj-
anna. Dómur yfir Zheng Xiaoyu féll
29. maí og var áfrýjað, án árangurs.
Í kjölfar brottreksturs Zhengs Xia-
oyu árið 2005 tilkynnti ríkisstjórnin
um ítarlega endurskoðun á leyfum
vegna 170.000 lyfja sem samþykkt
voru í valdatíð hans. Kína hefur ver-
ið gagnrýnt vegna nýlegra tilfella þar
sem gallaðar vörur koma við sögu.
Háttsettur kínverskur embættis-
maður sagði að Zheng Xiaoyu hefði
kallað skömm yfir stofnunina og
bætti við að öllum þeim sem uppvís-
ir yrðu að misnotkun vald síns yrði
refsað.
Svert ímynd
Kínversk yfirvöld hafa viðurkennt
að ímynd þeirra í augum alþjóða-
samfélagsins kunni að bíða hnekki
og að ólgu í samfélaginu kunni að
verða vart þangað til endurbætur
hafa verið gerðar. Fjöldi fólks hef-
ur látið lífið í Kína vegna skemmdra
matvæla og gallaðra lyfja. Það hefur
valdið tortryggni erlendis gagnvart
útflutningi Kínverja. Þrettán börn
dóu vegna vannæringar árið 2005
eftir að þeim var gefin þurrmjólk
sem innihélt enga næringu. Banda-
rískir eftirlitsmenn kenndu innfluttu
gæludýrafóðri um dauða katta og
hunda í Bandaríkjunum. Þeir hafa
einnig stöðvað innflutning á tann-
kremi frá Kína vegna gruns um að
það innihaldi eiturefni.
Umsátrið Um raUðU moskUna
kosningar á kúbu
Raul Kastró, sitjandi forseti Kúbu,
hefur tilkynnt að sveitarstjórn-
arkosningar fari fram þar í landi
þann 21. október næstkomandi.
Raul Kastró hefur verið forseti
Kúbu í um það bil eitt ár, eða síðan
bróðir hans Fídel Kastró lét tíma-
bundið af embætti vegna bágrar
heilsu og aðgerða þar að lútandi.
Þessi tilkynning Rauls markar upp-
hafið að kosningaferli sem gæti
snemma á næsta ári varpað ljósi
á hvort Fídel snýr aftur til æðstu
valda á Kúbu.
Tortryggni gætir víða í heiminum í garð kínverskra lyfja og matvæla:
tekinn af lífi eftir mútur
ur allt aðra sögu að segja. Að hans
sögn var Ghazi sífellt að draga til
baka fyrri yfirlýsingar sínar, á hverj-
um degi hefði hann komið með nýja
yfirlýsingu. „Ríkisstjórnin gerði sitt
besta til að leysa þetta með samn-
ingum. Margar samninganefndir
hafa verið sendar til hans og margt
fólk haft samband við hann,“ sagði
talsmaður ríkisstjórnarinnar með-
al annars. Aðfaranótt þriðjudags
runnu samningaviðræður endan-
lega út í sandinn og yfirvöld tóku
ákvörðun um atlögu að moskunni.
Meinaður aðgangur
Meðan á þessari árás stóð tókst
hátt í þrjátíu börnum og tuttugu
konum, sem haldið hafði verið
í moskunni, að flýja. Talsmaður
hersins segir að til að forðast óþarfa
mannfall hafi árásin verið fram-
kvæmd í þrepum og jarðhæð mosk-
unnar hafi verið unnin mjög skjótt.
Öryggissveitir hafa einnig náð sjötíu
prósentum moskunnar og skólans á
sitt vald, sem og þaki byggingarinn-
ar. Um sjötíu uppreisnarmenn hafa
verið teknir höndum, en ekki ligg-
ur fyrir hve margt fólk var í mosk-
unni í upphafi aðgerða. Blaða- og
fréttamönnum var haldið fjarri og
var einnig meinaður aðgangur að
sjúkrahúsum sem særðir voru flutt-
ir til. Talið er að eiginkona Abd-
uls Rashids Ghazi hafi látið lífið í
árásinni, en hann hafði áður sagt í
símaviðtali við Geo sjónvarpsstöð-
ina í Pakistan að hún hefði særst.
„Ríkisstjórnin beitir fullum krafti.
Þetta er hrein árás. Píslarvætti mitt
er núna tryggt,“ sagði Ghazi, sem lét
lífið í árásinni.
Særður sérsveitar-
maður Þrír sérsveitar-
menn fórust í árásinni.
Talað við ættingja
Pakistani sem á ættingja inni
í moskunni grætur í símann.
Mótmæli í Islamabad
Hundruð stúdenta
mótmæla aðgerðum
hersins í rauðu moskunni.
Zheng Xiaoyu
Tekinn af lífi í
kína vegna
spillingar.