Kjarninn - 26.09.2013, Blaðsíða 8
03/06 kjarninn Húsnæðismál
Í þeim var opnað fyrir þann möguleika að búseturétthafar
gætu sagt upp búseturétti sínum með sex mánaða fyrirvara.
Ef ekki tækist að selja búseturéttinn átti rétthafinn rétt á
því að fá hann greiddan frá húsnæðisamvinnufélaginu tólf
mánuðum eftir að þeir sex mánuðir voru liðnir.
Á þessum tíma uppfærðist virði réttarins í takt við vísi-
tölu neysluverðs. Daníel Hafsteinsson, framkvæmdastjóri
Búmanna, segir að stemning hafi myndast á meðal félaga
innan Búmanna til að reyna að breyta þessu. Fólki hafi fundist
vísitala neysluverðs ekki hafa mælt nægilega vel hækkun á
húsnæðisverði. Bent var á að í Noregi, þar sem húsnæðissam-
vinnufélög eru mjög algeng, hefði verið horfið frá vísitölu-
tengingu og yfir í að meta búseturétt á markaðsvirði árið 1980.
Á árinu 2006 var samþykkt á aðalfundi Búmanna að
breyta samþykktum félagsins á þann veg að kaupskylda þess
yrði afnumin og að heimilt yrði að selja búseturétt á mark-
aðsverði. Þetta þýddi í raun að Búmönnum bar ekki lengur
nokkur skylda til að kaupa búseturétt af þeim félagsmönnum
sem vildu losna úr íbúðum sínum. Þess í stað þurftu félags-
mennirnir sjálfir að selja búseturéttinn á frjálsum markaði,
og á markaðsverði, eða gera aðrar ráðstafanir gengi það ekki
eftir.
Þetta fyrirkomulag var haft í gildi í tilraunaskyni út árið
2006 og svo fest í sessi snemma árs 2007. Það gilti þó bara
um búseturétti sem seldir voru eftir að samþykktunum var
breytt. Enn ríkti kaupskylda á þeim íbúðum sem Búmenn
höfðu selt rétt að fyrir þann tíma, en það eru í dag um 65
prósent allra íbúða félagsins.
Til að ganga úr skugga um að Búmönnum væri stætt
á þessari breytingu var sent inn erindi til félagsmála-
ráðuneytisins. Í niðurstöðu þess, sem var send Bú mönnum
29. ágúst 2006, segir að „ráðuneytið hefur nú yfirfarið
breytingar þær sem gerðar hafa verið á samþykktum Bú-
manna og er niðurstaðan sú að þær rúmist innan laga um
húsnæðissamvinnufélög“. Ráðuneytið, sem var þá undir
stjórn framsóknarmannsins Magnúsar Stefánssonar, lagði
því blessun sína yfir þessar breytingar.