Kjarninn - 26.09.2013, Blaðsíða 11
06/06 kjarninn Húsnæðismál
uppsögn hennar yrði ekki viðurkennd og hún þyrfti ann-
aðhvort að bera ábyrgð á greiðslu af íbúðinni sem hún bjó
í, selja búseturéttinn sinn á frjálsum markaði eða fyrirgera
þeim fjármunum sem hún hafði greitt fyrir búseturéttinn.
Guðlaug var ekki sátt og leitaði til lögmanns. Sá sendi bréf
til Búmanna í júlí þar sem því er alfarið „hafnað sem röngu
að Búmönnum hsf., sé stætt á því að halda eftir búseturéttar-
gjaldi umbjóðanda míns, enda liggur fyrir að um lögbundna
eign umbjóðanda míns er að ræða“.
Daníel svaraði bréfinu fyrir Búmenn um miðjan ágúst
síðastliðinn. Í svarinu ítrekaði hann fyrri afstöðu og í
niðurlaginu segir að litið yrði svo á að frá og með 1. septem-
ber síðastliðnum væri samningssambandi félagsins og Guð-
laugar lokið. Hún myndi ekki lengur bera skyldu til að greiða
búsetugjald, nokkurs konar leigu, en á móti myndi félagið
ekki greiða henni krónu af þeim fjármunum sem hún hefði
lagt inn í það.
Guðlaug gafst ekki upp og sendi greinargerð til Eyglóar
Harðardóttur, félags- og húsnæðisráðherra, þar sem hún
fór yfir það sem hún kallaði „framkomu Búmanna hsf. gegn
íbúum Víðigerði 13,14,15,16,17,20 í Grindavík“. Í henni rakti
hún mál sitt og annarra íbúa í Víðigerði með sömu rökum og
hún hafði gert gagnvart framkvæmdastjóra Búmanna.
ráðuneytið tekur undir með íbúum
Samkvæmt heimildum Kjarnans hefur Félags- og húsnæðis-
ráðuneytið tekið undir afstöðu Guðlaugar og þess hóps
sem hún er í forsvari fyrir. Ráðuneytið telur að samþykktir
Búmanna, sem koma í veg fyrir að félagið verði að kaupa
búseturétt af þeim sem vilja losna við slíkan, fari gegn lögum
um húsnæðissamvinnufélög og að mikilvægt sé að þær verði
teknar til endurskoðunar. Þessari skoðun ráðuneytisins
hefur verið komið á framfæri við forsvarsmenn Búmanna.
Guðlaug Gunnarsdóttir segir þetta vera gleðitíðindi fyrir
þann hóp sem hún kemur fram fyrir. „Lög eru lög og það
verða allir að fara eftir þeim. Félög sem og einstaklingar.“