Kjarninn - 26.09.2013, Qupperneq 9
04/06 kjarninn Húsnæðismál
Ósáttir íbúar í Grindavík
Íbúar sem keyptu búseturétt af Búmönnum í nokkrum
íbúðum í Víðigerði í Grindavík skömmu fyrir hrun tóku
höndum saman fyrr á þessu ári. Þeir vilja geta sagt upp bú-
setusamningum sínum og fengið búseturéttargjald sem þeir
greiddu, oft 20 prósent af byggingakostnaði fasteignarinnar,
endurgreitt. Guðlaug Gunnarsdóttir, sem farið hefur fyrir
hópnum, sendi ábyrgðarbréf til Búmanna hinn 26. febrúar
2013. Í því kom fram að hún segði sig úr félaginu og segði um
leið upp búsetusamningi sínum. Skilningur Guðlaugar var sá
að uppsögnin tæki gildi sex mánuðum síðar, eins og lög um
húsnæðissamvinnufélög gerðu ráð fyrir. Hún taldi auk þess
að búsetturéttargjald sem hún hefði greitt, um 3,6 milljónir
króna, hefði einungis verið trygging fyrir skilvísri greiðslu af
mánaðarlegum afborgunum. Guðlaug taldi auk þess að hún
ætti að fá þessa upphæð endurgreidda með verðbótum að
uppsögn lokinni. Guðlaug heldur því líka fram
Miklir rekstrarerfiðleikar
Búmenn eiga í töluverðum rekstrarerfiðleikum.
Þeir stafa fyrst og síðast af því að félagið ákvað að
byggja mikið af íbúðum á suðurnesjum og í Hvera-
gerði, þar sem húsnæðismarkaðurinn hefur verið
afleitur eftir hrun. Alls eru tæplega 38 prósent
íbúða Búmanna á þessum slóðum. Í fundargerð
aðalfundar félagsins, sem haldinn var í júní, segir
meðal annars að „það hefur komið félaginu um koll
að vera landsfélag. Við höfum að jafnaði verið með
30 auðar íbúðir undanfarin misseri sem af ýmsum
ástæðum hefur verið erfitt að koma í notkun. Um
helmingur þeirra íbúða er í Hveragerði og um helm-
ingur á suðurnesjum. á sama hátt hefur það verið
mjög íþyngjandi fyrir félagið að búa við kaupskyldu
á íbúðum félagsins. Um 65 prósent íbúða félagsins
eru í þessu kerfi[...] Í tvö og hálft ár greiddi félagið
af öllum auðum íbúðum úr eigin varasjóðum[...]það
var síðan um mitt ár 2011 að félagið fékk heimild
hjá Íbúðalánasjóði til að frysta lán í allt að 3 ár[...]
eftir að hafa notið þess að fá frystingu á auðum
íbúðum í eitt og hálft ár var umsókn um áfram-
haldandi frystingu sett á bið oh hefur enn ekki
hlotið afgreiðslu“.
Búmenn hafa einnig átt í langvarandi við-
ræðum við forsvarsmenn Íbúðalánasjóðs um að
fá að fara 110 prósent leiðina, þar sem skuldir eru
færðar niður að 110 prósentum af markaðsvirði
íbúða, án árangurs. „Við vonumst eftir því að
þessi mál fari að skýrast svo að við vitum hvar við
stöndum í þessum málum,“ segir í fundargerðinni.
Þar segir enn fremur: „nú hafa Framsóknar-
flokkur og sjálfstæðisflokkur myndað ríkisstjórn og
standa því miklar væntingar til þess að efnd verði
loforð um niðurfærslu íbúðalána eins og ráð-
herrarnir hafa lýst að væru í farvatninu en ætti eftir
að útfæra nánar [...]Þegar tekin verður ákvörðun
um að færa niður höfuðstóla lána þá verða Búmenn
að sitja við sama borð og þeir sem skráðir eru
eigendur sinna íbúða.“