Kjarninn - 26.09.2013, Síða 16
04/05 kjarninn skotland
áhersluna á olíuvinnsluna. „Að leggja efnahagslega fram-
tíð að veði á svona viðkvæmri og minnkandi auðlind er bara
ekki trúverðugt. Það er kominn tími til að þjóðernissinnarnir
komi hreint fram með það,“ hafði breska ríkisútvarpið eftir
Alistair Darling, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands og
sambandssinna. Þá hefur stofnunin IFS (Institute for Fiscal
Studies) sagt að Skotar þyrftu að skera niður eða hækka
skatta til þess að halda sjó, ef olíuverð lækkar eins og spár
segja til um.
Lofa hærri lífeyri
Um síðustu helgi greindu stjórnvöld í Skotlandi svo frá
áætlun sinni um lífeyrismál Skota, þar sem í stuttu máli
má segja að öllu fögru hafi verið lofað. Stjórnvöld segja að
ef Skotar ákveði að gerast sjálfstætt ríki verði hefðbundinn
lífeyrir greiddur út, auk þess að frá árinu 2016 muni nýir
lífeyrisþegar fá rúmu pundi meira á viku en aðrir í Bret-
landi. Þá hyggjast skosk stjórnvöld endurskoða þær áætlanir
breskra stjórnvalda að hækka eftirlaunaaldurinn úr 65 árum
í 67. Hækkun lífeyrisaldursins henti ekki Skotum, þar sem
þeir lifi að meðaltali skemur en aðrir Bretar. Það er ekki síst
vegna þess hversu margir eru hjartveikir og sykursjúkir af
völdum slæms mataræðis.
Þessar fyrirætlanir stjórnvalda hafa verið harðlega
gagnrýndar, bæði í Skotlandi og af stjórnvöldum í London.
„Að yfirgefa Bretland yrði bæði dýrt og áhættusamt fyrir
lífeyrisþega. Þessi áætlun myndi kosta Skotland sex milljarða
punda,“ sagði Gregg McClymont, þingmaður Verkamanna-
flokksins, við skosku útgáfu Sunday Express. Hann sagði
áformin hljóta að fá fólk til að hugsa sig tvisvar um hvort það
styddi sjálfstæði.
Þá hefur verið deilt um það hver staða landsins yrði innan
Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins. Stjórnvöld
telja að engin breyting verði þar á og að sjálfstætt Skotland
haldi sjálfkrafa áfram að vera hluti þessara bandalaga.
Salmond og hans fólk vill þó ekki að Skotar taki upp evru og
mælst hefur mikill stuðningur við að þeir notist áfram við
smelltu til að
lesa frétt BBC um
áhætturnar sem
fylgja sjálfstæðinu
Umfjöllun breska
ríkisútvarpsins BBC um
þjóðaratkvæðagreiðsluna á
næsta ári