Kjarninn - 26.09.2013, Blaðsíða 20
03/06 kjarninn trúmál
predikarinn umdeildi Billy Graham, faðir Franklins, stofnaði
árið 1950. Samtökin eru, og hafa alltaf verið, andstæðingar
hjónabands samkynhneigðra. Franklin Graham sjálfur telur
að „pípulagnir“ fólks, það er gerð kynfæra þess, sýni einfald-
lega að þeir sem stundi kynlíf með einstaklingi af sama kyni
séu að endurskilgreina það notagildi sem guð hafi gefið þeim.
„Það er guð, ekki stjórnvald, sem skilgreinir hjónaband. Það er
á milli eins manns og einnar konu,“ sagði Franklin Graham í
viðtali við sjónvarpsmanninn Piers Morgan á CNN fyrr á þessu
ári.
Því liggur fyrir að Graham er afar umdeildur maður.
Hann er það umdeildur að menn á hans vegum, fyrrverandi
starfsmenn bandarískra leyniþjónusta, höfðu samband við
lögregluyfirvöld á Íslandi til að kanna hvort grípa þyrfti til
einhverra öryggisráðstafana vegna komu Grahams hingað
til lands. Vert er að taka fram að slíkt er víst ekki óþekkt
þegar stjörnur eða annað fyrirferðarmikið fólk heimsækir
Ísland. Fólk úr teymi þeirra sem sér um öryggismál er þá að
kynna sér lög og reglur og ganga úr skugga um að öryggi við-
komandi sé ekki stefnt í voða.
Operation Iceland: alþjóðavæðing trúar
Samtökin þykja mjög pólitísk og boða mjög sterkar lífs-
skoðanir sem þau segja að tengist þeirri trú sem þau boða.
Þau hafa haft sterkar tengingar við marga fyrirferðar-
mikla stjórnmálamenn í Bandaríkjunum. Á meðal þeirra
eru forsetaframbjóðendurnir fyrrverandi Mitt Romney og
Newt Gingrich. Billy Graham var auk þess andlegur ráðgjafi
nokkurra Bandaríkjaforseta á árum áður. Hann var sérstak-
lega náinn Dwight Eisenhower og Richard Nixon.
MIðar ógILdIr
Upphaflega var hægt að nálgast miða á Há-
tíð vonar í gegnum vefsíðuna miði.is. Þeim
sem höfðu nálgast miða með þeim hætti
var hins vegar send tilkynning í ágúst um
að miðar þeirra væru ógildir vegna þess að
ýmsir aðilar hefðu misnotað sér miðasöluna.
talið er að þar eigi skipuleggjendur við hóp
fólks sem tryggði sér miða en ætlaði sér ekki
að mæta og vildi með því mótmæla skoðun-
um Franklin Graham á samkynhneigðum.
Smelltu til
að lesa um
hátíðina