Kjarninn - 26.09.2013, Qupperneq 46
02/08 kjarninn viðmælandi vikunnar
E
rna Gísladóttir hefur sjaldgæfa innsýn í íslenska hag-
kerfið og hvernig hlutirnir ganga fyrir sig frá degi
til dags. Hún er forstjóri bílaumboðsins BL, stjórnar-
formaður tryggingafélagsins Sjóvár og á sæti í stjórn
smásölurisans Haga, sem rekur Bónus og Hagkaup,
svo eitthvað sé nefnt. Í gegnum þessi störf sér hún fljótt merki
þess ef þróun í hagkerfinu er jákvæð eða neikvæð. „Mér sýnist
allt benda til að þetta ár verði aðeins lakara en í fyrra hvað
bílasölu varðar og það segir mér að það er of mikill hæga-
gangur í hagkerfinu, meiri en búist var við og var búið að spá.
Þetta er vitaskuld áhyggjuefni,“ segir Erna. „Það sem við hjá BL
höfum gert að undanförnu er að minnka lagerinn af bílum, en
við vorum búin að stækka hann töluvert. Þetta er alvanalegt í
bíla geiranum.“
aftur til baka
Árið 2012 keypti félag í eigu Ernu og eiginmanns hennar, Jóns
Þórs Gunnarssonar, rekstur B&L og Ingvars Helga sonar ehf.
Þau voru voru sameinuð í nýtt félag, BL. Afi Ernu, Guðmundur
Gíslason, stofnaði B&L árið 1954 og var félagið í eigu fjölskyldu
hans til ársins 2007, þegar það var selt eigendum Ingvars
Helgasonar. Fall krónunnar og hrun fjármála kerfisins frá
vormánuðum 2008 og fram í október sama ár sneri bílasölu á
Íslandi nær alveg á hvolf og þurftu stærstu bílaumboð landsins
öll á rekstrarlegri endurskipulagningu að halda en endurreistu
bankarnir og fjármögnunarfyrirtækin, sem kröfu hafar, eign-
uðust umboðin að stóru leyti. Erna ákvað að láta til sín taka á
nýjan leik eftir hrunið og koma aftur að fyrirtækinu sem svo
lengi var eign fjölskyldu hennar.
Hvernig hefur gengið eftir að þú komst að fyrirtækinu á nýjan
leik og hvað hefur helst breyst frá því sem áður var?
„Það hefur gengið ágætlega en það eru mestu vonbrigðin að
það hefur ekki komist eins mikill gangur í sölu á bílum hér á
landi og við vonuðumst eftir. Við gerum ráð fyrir að það verði
ekki miklar breytingar á þessum markaði næstu átján mánuði.
Ef ekki væru bílaleigurnar væri veltan alls ekki mikil. Það hafa
líka orðið miklar breytingar frá því sem áður var þegar kemur
Viðtal
Magnús Halldórsson
magnush@kjarninn.is