Kjarninn - 10.04.2014, Side 72
63/63 ÍÞróttir
FIFA hefur vikið tveimur stjórnar-
mönnum frá störfum vegna mögulegra
spillingamála, þeim Jack Warner, sem var
varaforseti knattspyrnusambandsins, og
Mohammed Bin Hamman, sem var jafnframt
forseti Knattspyrnusambands Asíuþjóða.
Hamman er sakaður um að hafa haft milli-
göngu um greiðslur til stjórnarmanna FIFA,
meðal annars til Jack Warner, frá yfirvöldum
í Katar til að tryggja landinu heimsmeistara-
keppnina árið 2022. Yfirvöld í Katar hafa
neitað öllum ásökunum um spillingu.
Fjölmiðlar hafa sömuleiðis fullyrt að tveir
stjórnarmenn FIFA til viðbótar séu viðriðnir
spillingarmál varðandi val knattspyrnu-
sambandsins á Katar fyrir heimsmeistara-
keppnina 2022. Fullyrt er að Issa Hayatou,
formaður Afríska knattspyrnusambandsins,
og Jacques Anouma, forseti Knattspyrnu-
sambands Fílabeinsstrandarinnar, hafi þegið
mútur fyrir atkvæði sín til handa Katar og
þá gerðist Amos Adamu, fulltrúi frá Nígeríu hjá FIFA, uppvís
að því að bjóða atkvæði sitt til sölu á meðan hann var mynd-
aður af falinni myndavél á fundi með breskum rannsóknar-
blaðamönnum sem villtu á sér hemildir.
Þá hefur David Triesman, sem fór fyrir baráttu
Englendinga um heimsmeistarakeppnina 2018, sakað Jack
Warner, áðurnefndan Ricardo Texeira og tvo stjórnarmenn
FIFA til viðbótar um óviðeigandi og ósiðlega framgöngu í
tengslum við val FIFA á Rússlandi sem keppnisstað fyrir HM
2018.
Þrátt fyrir ásakanirnar, og rannsókn siðanefndar FIFA á
þeim, hefur hinn umdeildi Sepp Blatter, forseti knattspyrnu-
sambandsins, ítrekað haldið því fram að innan þess þrífist
engin spilling.
jack Warner
Fyrrverandi varaforseti FIFA
er bendlaður við hin ýmsu
spillingarmál sem skekið hafa
knattspyrnuheiminn.