Kjarninn - 17.04.2014, Síða 36

Kjarninn - 17.04.2014, Síða 36
rEyKjavÍK Ný könnun Capacent breytir landslagi kosningaspár Kjarnans Samfylkingin með fimm menn inni í borgarstjórn Samfylkingin bætir við sig einum manni frá síðustu kosningaspá og getur nú myndað sterkan níu manna meirihluta með Bjartri framtíð ef flokkarnir kjósa að halda núverandi meirihlutasamstarfi áfram. Píratar missa annan þeirra manna sem þeir hafa mælst með inni. Þetta er niðurstaða nýjustu kosninga- spár Kjarnans og Baldurs Héðinssonar, doktors í stærðfræði. Spáin sameinar niðurstöður fyrirliggjandi skoðanakannana og byggir á áreiðanleika könnunar- aðila í síðustu þremur borgarstjórnar- og alþingiskosningunum. Samfylkingin bætir við sig um 1,6 prósenta fylgi á milli spáa en Björt framtíð stendur nánast í stað með 25 prósenta fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn bætir einnig við sig heilu prósentustigi en er samt sem áður þriðji stærsti flokkur borgarinnar og langt frá kjörfylgi sínu í síðustu kosningum. Þótt Píratar missi mann minnkar fylgi þeirra einungis um 0,5 prósent. Sá flokkur sem tapar langmestu er Vinstrihreyfingin – grænt framboð. Fylgi hennar dregst saman um 1,7 prósent á milli spáa. Næsti maður inn samkvæmt spánni kemur frá Bjartri framtíð. þsj aðferðin Forsendur spárinnar Kosningaspa.is sameinar niðurstöður skoðanakannana við útreikning á fylgi flokka. Hverri könnun er gefið vægi sem ákvarðast af þremur þáttum: Hvar og hvenær könnunin er framkvæmd og hversu margir taka þátt. Því er spáin vegið meðaltal af könnunum. Nánar 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% fylgi framboða til borgarstjórnar í reykjavík Samkvæmt nýjustu kosningaspá, gerðri 14. apríl 2014 25,0% 2,8% 24,8% 27,1% 7,5% 2,5% 0,3% 10,0% A B D S VT Þ 01/02 Kosningaspá.is kjarninn 17. apríl 2014

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.