Nýtt S.O.S. - 01.06.1957, Side 24

Nýtt S.O.S. - 01.06.1957, Side 24
24 Nýtt S. O. S. „Nú verður ekki frekar reynt að sækja okkur í dag,“ mælti Anton Ramrnes. „Hvernig veizt þú það?“ spurði Gert fréttamaður, sem var nú svo glaður, að hann hafði næstum gleymt sársaukanum. „Af því að eftir klukkustund, í síðasta lagi, skellur myrkrið á.“ „Þá verðum við að gista hér aðra nótt til!“ „}á, hvort sem okkur líkar betur eða ver.“ „Hvernig heldur þú að hægt verði að koma okkur niður úr fjöllunum?" „Ég Iief hugsað það mál, en ekki kom- izt að niðurstöðu," viðurkenndi flugmað- urinn, „venjuleg flugvél getur ekki lent hér, ekki heldur á skíðum.“ „Þá koma þeir okkur á óvart með sín góðu úrræði. — Hvenær heldur þú, að þeir komi?“ „Áreiðanlega á morgun. Ef til vill um morguninn, eða um hádegi. Það veltur á því, með hvaða hætti þeir ætla að bjarga okkur.“ Þeir sátu lengi í kofanum, reyktu, spjöll- uðu saman og hugsuðu með óþreyju til komandi dags. Loks varð fréttamaðurinn tregari til umræðna. „Ertu þreyttur?“ spurði Anton Rammes. „Já, með öðru.“ „Hvað er það annað?“ „Þrautir.“ „Reyndu að sofa.“ „Bara að það sé hægt.“ Gert lagði sig á bakið og lokaði augunum. Að stuttri stund liðinni slökkti Anton á kertinu og sat áfrant í myrkrinu. Hann sá út á sléttuna gegnum kofadyrnar. Fölum bjarma sló á snjóbreiðuna og enn mátti sjá glæðurnar í brennandi svifflugunni. Næsta morgun voru þeir félagar árla á fótum. Anton Rammes var vongóður Eog léttur í skapi, en fréttamaðurinn leit sljó- um augum á umhverfið. Andlit hans var eldrautt, hitagljái í augunum og hann kvartaði unt mikla verki í handleggnum. „Þess verður ekki langt að bíða að þeir komi,“ mælti Anton, „og þá förum við beinustu leið á sjúkrahús.“ „Verst, að það skyldi þurfa að vera hægri handleggurinn,“ sagði Gert glott- andi. „Nú get ég ekkert skrifað fyrst um sinn.“ „Það skiptir varla mestu máli nú,“ svar- aði Anton Ranmies. Hann ætlaði að segja eitthvað meira, en þá lieyrði Iiann sér- kennilegt marrhljóð. Honum varð litið á klettabeltið, sem skagaði lóðrétt upp úr hásléttunni, og liann sá snjóflygsu steypast niður af brúninni og dreifast eins og duft niður með klettabeltinu. „Hana nú,“ mælti hann. „Það á þó von- andi ekki eftir að falla snjóflóð á okkur eftir allt saman.“ Hann horfði upp stundarkorn, en nú var fullkomin kyrrð komin á. Morgun- sólin skein á klettabeltið, en á brún þess hrannaðist þykkt snjólag. Enn heyrðist hljóð í lofti, nú dimmara, sterkara, og fór óðum hækkandi. Rammes hlustaði með gerhygli. „Flugvél!*1 hrópaði hann. „Þeir koma!“ Vélarhljóðið varð hærra og hærra og flugvélin kom í sjónmál og nálgaðist óð- fluga. „Það eru þeir! “ kallaði Anton Ramrnes og veifaði báðum höndum. H 46 þaut yfir hásléttuna og beygði svo snöggt upp á við. En nú sáu þeir félagar, að önnur flugvél fylg'di á eftir. ,,Kopti!“ hrópaði Anton Rammes í hrifningu. „Húrra, þeir koma með kopta!“ Koptinn staðnæmdist nú yfir fannbreið-

x

Nýtt S.O.S.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.