Nýtt S.O.S. - 01.08.1960, Side 14
heimur út af fyrir sig — eitt á villigjörnu og viðsjálu hafinu. Þá sigldu
lítil seglskip fyrir hið illræmda Kap Horn uppá von og óvon, treystu
á hagstæðan vind, sem átti það til að bregðast illilega.
Nú er þetta liðið, heyrir fortíðinni til. Nú er ekkert skip eitt og yfir-
gefið á heimshöfunum. Með hverskonar nýjungum í tækninni, er vakað
yfir því; það er í fullkomnu öryggi, þó ekkert sé að sjá nema himinn
og haf.
Og það er — án þess, að ég sé að miklast af því — okkur loftskeyta-
mönnunum fyrst og fremst að þakka.
„Merkilegt, stórmerkilegt! Gjörið svo vel að segja okkur meira frá
þessu!“ báðu stúlkurnar og urðu allt í einu mjög kyrrlátar.
„Hvað finnst þér, Charley, eigum við að segja frá leyndarmálum varð-
andi starf okkar?“ spurði Macdonald og kímdi.
„Auðvitað, Mac!“ svaraði Verchere hlægjandi. „Þú getur ekki hrygg-
brotið blessaðar stúlkurnar!“
„Sjáið þið nú til,“ hélt Macdonald áfram og kveikti í vindlingi. „Á
meðan þið njótið lífsins, dansið, hlægið, borðið, sofið og látið sólina
baka ykkur, þá má loftskeytamaðurinn ekki víkja frá tækjum sínum.
Alltaf sama suð og hvæs, brak og brestir. í nánd við strendurnar og á
fjölförnum siglingaleiðum er svo mikill fjöldi skipa, að það er oft mjög
erfitt að greina það, sem skipin senda út. Þá er gripið til morsetækjanna.
Það er sem sagt alltaf nóg að starfa. \7ið sendum út ýmsar tilkynningar,
og veðurfréttir og tökum á móti blaðafréttum. Við skiptumst á fréttum
við strandstöðvarnar og geruin miðanir, ef það reynist nauðsynlegt. Við-
sendum líka einkaskeyti farþeganna, ef ekkert annað liggur fyrir, sem er
meira áríðandi.
Hver loftskeytastöð liefur sína ákveðnu öldulengd og hefur sitt merki.
Þetta er kallmerki, sem samanstendur af nokkrum bókstöfum og stund-
um er tölum bætt við. Það sézt strax, hvort um er að ræða. skip, sem
sendir, strandgæzluna eða stöð áhugamanns. Á 600 metra bylgjulengd
eru sendar allar hjálparbeiðnir, á þeirri bylgju er sent alþjóða-neyðarkall-
ið SOS ...-------------... Þetta neyðarkall . . .“
Dnmmt og tröllslegt öskur sírenunnar truflaði Macdonald í frásögn
sinni.
„Hvað er nú að ske?“ spurðu stúlkurnar, sem höfðu hlustað með
andagt.
„Nú er öllu lokið í kvöld,“ svaraði loftskeytamaðurinn, stóð á fætur
14
Nýtt S O S