Sagnir - 01.04.1984, Page 75
HALAVEÐRIÐ OG HEIMILI í VANDA
Hvítu punktarnir á kortinu sýna heimili
þeirra semfórustfrá Reykjavík.
síðan 200 krónur til viðbótar fyrir
hvert barn hins látna. Til að gefa
einhverja hugmynd um hvað
þessi upphæð táknar var vísitala
vöru og þjónustu framreiknuð
frá ársmeðaltali 1925 til 1. mars
1984. í ljós kom að samkvæmt
fyrrgreindri vísitölu samsvaraði
ein gömul króna 1925, 28,32
nýjum krónum eftir núgildandi
verðlagi. Þannig munu dánarbæt-
urnar hafa numið, fyrir hvern lát-
tnn sjómann, um 56.640 krónum
á verðlagi 1984. Þar við bættist
úundi hluti þessarar upphæðar
fyrir hvert barn.
Að þessu leyti stóðu foreldrar
einhleypu sjómannanna einnig
sýnu verr, þar sem þeir fengu yfir-
leitt aldrei meira en hinar lög-
boðnu 2000 krónur hversu margir
sem kunna að hafa verið í heimili
hjá þeirn. Þessi upphæð mundi,
gróft reiknað, geta samsvarað
meðallaunum 1984 í fjóra mán-
uði.
Á hinn bóginn hafa ekkjur lát-
inna sjómanna af Fieldmarshall
Robertson notið þess að nokkru að
skipverjar þar voru tryggðir hjá
tryggingafélagi í Hull. Dánar-
bætur til þeirra voru hátt í helm-
ingi hærri en bæturnar úr íslenska
tryggingasjóðnum. Aðstand-
endur einhleypra og barnlausra
sjómanna höfðu hins vegar ekkert
fengið, þegar skýrslurnar voru
sendar inn, hvorki íslenskt fé né
enskt. Af skýrslunum sést þó að
margir þeirra hafa eindregið átt
von á bótum frá Englandi.
Engum blöðum er um það að
fletta, að bætur úr slysatrygging-
unum hafa komið sér vel þar sem
þröngt var í búi. Engin leið er hins
vegar að mæla nákvæmlega áhrif
þeirra á afkomu aðstandendanna.
Ekki má gleyma, að þetta var að-
eins ein greiðsla og að skyldmenni
einhleypra og barnlausra sjó-
manna hlutu að búa við mjög
skert kjör.
Fjársöfnunin
Það var einna helst við úthlutun
samskotafjárins sem höfð var
hliðsjón af erfiðri stöðu foreldra
hinna látnu sjómanna. Söfnunin
gekk ágætlega. Alls söfnuðust
119.850 krónur meðal lands-
manna. Þessir peningar komu sér
vel á þeim heimilum, þar sem
ómegðin var hvað mest. Gjafa-
fénu var skipt í samræmi við hagi
SAGNIR 73