Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Qupperneq 9
f----------------------------------------->1
1. HEFTI I. ÁRG.
APRÍL 1956 •
Bls.
7 Davíð Stefánsson: Sonur jarðar
9 Sigurður Nordal: Alþingishátíðin
1430
15 Gunnar Thoroddsen: Ráðhús
Reykjavíkur
22 Torfi Asgeirsson: Skoðanakönnun
1955
28 Bjami Benediktsson: Halldór Kiljan
Laxness
33 Jóhannes Nordal: Leið oss ekki í
freistni
31 Steinn Steinarr: Kvæði
36 Kristján Karisson: Arbók skálda
ÞÆTTIR:
4 Gjafir eru yður gefnar
5 Ráðhús Reykjavíkur
6 Listamannalaun
30 Skemmtanalíf sveitafólks
32 Þögnin og púkamir
38 Bókmenntaþættir: Kristján Karlsson,
Jónas Kristjánsson, Þórarinn Guðna-
son
44 Tónlistarþættir: Baldur Andrésson,
Jón Þórarinsson
RITSTJÓRN:
Tómas Guðmundsson
Ragnar Jónsson ábm.
Kristján Karlsson
Jóhannes Nordal
VÍKINCSPRENT
K. ________________________ ______________J
RITSTJÓRN Helgafells hefur lengi haft á
prjónunum ráðagerðir um nýja skipan á út-
gáfuháttum tímaritsins. Hefur einkum vak-
að fyrir henni það tvennt, að sníða ritinu
víðari stakk um tímabær viðfangsefni og
tryggja því fasta og reglubundna útkomu-
daga. Standa vonir til, að áform þessi geti
nú loksins komizt til framkvæmda og nýtur
ritstjórnin til þess fulltingis tveggja nýrra
manna, er henni hafa bætzt. Með hliðsjón
af þessum breytingum og einnig vegna
væntanlegra kaupenda, sem ekki eiga
Helgafell frá byrjun, hefur verið horfið að
nýrri nafngift á tímaritinu og heitir það
framvegis Nýtt Helgafell. Er til þess ætlazt,
að það komi út í fjórum heftum á ári auk
Árbókar skálda, og er þetta fyrsta hefti
fyrsta árgangs.
NÝTT HELGAFELL vill eins og fyrirrenn-
ari þess leggja sinn skerf af mörkum til efl-
ingar andlegu lífi á íslandi og hefur m. a.
fullan hug á að stofna til hlutlægrar gagn-
rýni um bókmenntir og listir. Þá mun það
einnig, auk ritgerða um markverð viðfangs-
efni samtímans, birta að staðaldri stuttar
hugleiðingar um ýmis þau fyrirbrigði þjóð-
lífsins, atburði og dægurmál, er forvitnisleg