Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Qupperneq 18

Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Qupperneq 18
12 NÝTT HELGAFELL hendur Knsti, heldur skulum vér biðja rækilega fyrir hans sál. Var þá heilög Skál- holtskirkja í þvílíkum hörmum og sútum sem aldri fyrr vissum vér orðið hafa: fyrst biskupslaust, en officialis gamall og blind- ur, en nnsstu síðan ráðsmanmnn, þann er bæði var staðnum hallkvæmur og hollur.“ Ummæli þau, er lúta að útkomu Jóns Gerrekssonar og sveina hans og tilfærð voru orðrétt hér að framan, eru öll úr Nýja ann- *á! (1430). Þaff ekki að fara í neinar graf- götur um það, að þau eru ekki ntuð fyrr en eftir afdrif biskups og fylgdarliðs hans. Þau gefa það nógu ótvírætt í skyn, að lands- menn hafi verið nokkuð fljótir á sér að fagna biskupinum og auðtryggni þeirra hafi orðið að vonbrigðum og snúizt í fjand- skap við frekari kynni. Yfirleitt þarf sjaldn- ast að gera ráð fyrir því, að annálsgreinar séu skráðar fyrr en nokkru síðar en það ár, sem þær fjalla um, því að bíða varð bæði eftir fréttum af öðrum löndum og jafnvel nánari spurnum af innlendum tíðindum. Það má hafa fyrir satt, að höfundur Nýja annáls !hafi að minnsta. kosti lifað frarn yf- ir 1433. hvað sem lengur hefur verið. Nú mætti halda, að annálariturum hefði þótt aðrir eins atburðir og Kirkjubóls- brenna og líflát Jóns Gerrekssonar og sveina hans heldur en ekki frásagnarverðar, ekki sízt manni, sem hefur að öllum líkindum verið sjónarvottur að aðförunum í Skál- holti. Einmitt svo voveifleg tíðindi njóta sín vel í annálum, þótt í stuttu máli séu sögð. En höfundi Nýja annáls blöskrar að ségja þá sögu til enda, hversu heilög Skál- holtskirkja var leikin og með hvílíkum ódæmum búið var að biskupi, sem þrátt fyrir allar yfirsjómr var þó vígður til stóls þeirra Isleifs, Gissurar og Þorláks helga. Og samt var honum ef til vill annað enn örð- ugra. Hann getur vel sagt frá vígaferlum, glæpum, hryðjuverkum og helgispjöllum, þegar ekki leikur vafi á sökum. En hvorir voru sekan á Þorláksmessu á sumar 1433? Hér var togað í siðferðilega dómgreind hans og vitund frá fjórum skautum: Jón Gerreks- son var vandræðamaður, en samt var hann vígður biskup; banamenn hans unnu ódáðaverk á honum og dómkirkjunni, en það var ekki gert fyrir sakleysi, sveinavíg- in voru landhreinsun og tiltektirnar djarf- legar. Höfundar fornsagnanna þorðu að horfast í augu við það, að sama verkið væri ,bæði stórvirki og illvirkú. Klerkinum á 1 5. öld hefur verið innrætt, að allt sé annað- hvort íllt eða gott, og hann er hvorki svo frjáls, að hann geti metið illvirkið sem stór- virki, né er 'honum svo í ætt skotið, að hann vilji kalla stórvirkið eintómt ill- virki. Nú þarf sagnaritari reyndar ekki að kveða upp neinn dóm berum orðum, er svo stendur á. En hann verður að vita með sjálfum sér, hvernig hann cetti að dæma. Annars verður hann uggandi um það við hvert orð, að hann láti eitthvað í ljós, sem hann geti ekki borið ábyrgð á. Hann verð- ur lamaður til frásagnar, eins og sá maður til daglegrar breytni, sem þorir í hvorugan fótinn að stíga, af því að rétt og rangt er komið fyrir honum í eina bendu. Hins vegar var óhugsandi að rita annál áranna 1431 —1433 an þess a^ »eta stærstu tíðinda. Þegar höfundur Nýja ann- áls hefur sagt frá útkomu Jóns Gerreksson- ar, slær hann botninn í, segir frá láti drottn- ingar í Danmörku og ábbadísar í Kirkju- bæ og bætir enn við: ,,Rak upp víða um fsland fisk þann, er menn kölluðu öfug- fisk; var hann að mörgu skringilegur.“

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.