Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Page 29

Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Page 29
SKOÐANAKÖNNUN 1955 23 f --------------------------\ HELZTU NIÐURSTÖÐUR SKOÐANAKÖNNUNAR • Flestir álitu varnarmálin og dýrtíðina helztu vandamál þjóðarinnar. • Norðmenn eru bezt látnir allra þjóða á íslandi. • Skáldsögur og ævisögur langvinsælustu bókmennt- irnar. • Unga fólkið kýs fremur er- lendar bókmenntir til lestr- ar. • Líta 18% íslenzkra mennta- manna aldrei í bók? • ASeins 84% vissu, að Ólaf- ur Thors er forsætisráðherra íslands. V---------------------------------J til framdráttar eða andspymu. Afstaða al- mennings mótast því að meira eða minna leyti af flokkslegri afstöðu þeirra, en ekki málefnalegri. Skoðanakannanir. Það er því augljóst mál, að mikilvægt væri að fá vitneskju um afstöðu almennings til vandamála þeirra er fulltrúar þjóðarinnar hafa til meðferðar, áður en afstaða stjóm- málaflokka og annarra hagsmunasamtaka hefur mótazt. Ekki svo að skilja að ráðamenn ættu að álíta sig bundna við slíka vitneskju, enda væri það ekki rétt. Vel gæti verið að skoðun almennings væri á röngum forsend- um byggð, og það væri því verkefni stjómar- valda og hagsmunasamtaka að upplýsa malið, breyta almenningsálitinu, áður en endanleg ákvörðun um framkvæmdir væri tekin. 1 hinum vestræna heimi hefur aðferð, er nefnd er á ensku Public Opinion Testing, á síðustu 20 til 30 árunum rutt sér æ meir til rúms. Á íslenzku hefur þessi aðferð verið nefnd skoðanakönnun — eða Gallupkönnun og er þá kennd við prófessor George H. Gallup, sem síðan 1936 hefur verið forgöngu- maður þeirrar vinnuaðferðar sem nú er not- uð. Fyrirkomulag skoðanakannana. 1 stuttu máli má segja að markmið skoð- anakönnunar sé það, að velja ákveðinn hóp kjósenda á öllu landinu, og í hverju einstöku kjördæmi þannig að ömggt þyki að skoðanir þeirra skiptist sem mest í sömu hlutföllum og skoðanir allra kjósenda. Notað er úrtak kjósenda í stað allra kjósenda eins og gert er við þjóðaratkvæðagreiðslu. En hvemig er hægt að tryggja, að ömggt sé að úrtakið gefi rétta mynd af skoðunum allra? 1 fyrsta lagi þarf úrtakið að vera nokkuð stórt. Hér á landi þarf það að ná til a. m. k. 800—1200 kjósenda til þess að nokkum veg- inn ömggt sé að skoðanahlutföll yrðu þau sömu og ef náð væri til allra kjósenda. I öðm lagi þarf að tryggja sér að úrtakið skiptist sem næst eins og allur kjósendahóp- urinn eftir kyni, aldri, atvinnu, búsetu og öðm því sem áhrif hefur á afstöðu manna til vandamálanna. Er það gert annaðhvort með því að velja úrtakið beinlínis með tilliti til þessara einkenna, og þarf þá að vera fyrir hendi vitneskja um, hvemig allur hóp- urinn (allir kjósendur) skiptast í þessu tilliti. Hin leiðin er að velja úr öllum hópnum í einu, með því að taka til dæmis hundrað- asta hvem mann á kjörskrá — segjum númer 77, 177, 277 o. s. frv., þar til náð er þeirri tölu er álitin er nægileg í úrtakið. Þessi seinni aðferð var, með smávegis frávikum, notuð við þær skoðanakannanir sem framkvæmd- ar vom hér í sumar. Eftir að þannig er búið að ákveða þann hóp, er spyrja skal, er eftir að ná til þeirra. Við það er notuð sú aðferð, að samstarfs- menn víðsvegar um landið og a. m. k. einn

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.