Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Síða 31
SKOÐANAKÖNNUN 1955
25
Ymis önnur svör t. d. óþurrkar, verk-
föll, fjármál ríkisins, húsnæðismálin,
trúleysið og peningaflóðið ........ 18
i) Veit ekki, svara ekki................ 20
Alls 105
Þessar tölur samsvara niðurstöðu af þjóð-
aratkvæðagreiðslu, það er að segja ekki er
gerður greinarmunur á afstöðu karla og
kvenna, yngri eða eldri o. s. frv. Sé það
hins vegar tekið til greina, koma ýmis at-
hyglisverð atriði í ljós.
Hersetuna nefna 21% karla, en ekki nema
12% kvenna. Sé flokkað eftir aldri, nefna
hersetuna 21% af yngstu kjósendunum, en
ekki nema 14% af þeim eldri.
Dýrtíðina nefna 19% karla, en ekki nema
13% kvenna, en ef flokkað er eftir aldri, þá
nefna dýrtíðina 20% af yngstu kjósendun-
um, en ekki nema 12% aí þeim eldri. Eldra
fólkinu eru önnur vandamál ofar í huga, t.
d. sundurlyndi flokkanna, uppeldismálin og
skapbrestir þjóðarinnar.
Eins og vænta mátti, nefna fleiri konur
(11%) áfengisbölið en karlar (5%). Sama
gildir um uppeldismálin, 9% kvenna nefnir
þau, en ekki nema 3% karla.
2. Hvaða land utan íslands hafið þér mest-
an áhuga á að fræðast meira um?
Hvaða land kemur næst? Og þar næst?
Menn voru beðnir að tilnefna þrjú lönd og
raða þeim eftir því, hve mikinn áhuga þeir
hefðu á því að fræðast um þau.
Eftirfarandi tafla sýnir niðurstöðurnar:
9. Frakkland 2 3 3
10. Italía 2 2 3
11. Kanada 1 1 0
12. Kína 1 2 2
13. Suður-Ameríka 0 1 1
14. Ástralía 0 1 1
15. Spánn 0 1 1
16. Önnur Evrópul. 4 7 10
17. Önnur A.síulönd 5 3 • 3
18. Önnur lönd 3 2 4
Samtals 87 85 80
19. Veit ekki,
svara ekki 13 15 20
Alls 100 100 100
Hin sterku tengsl þjóðarinnar við hin Norð-
urlöndin eru mjög áberandi, 40% hinna að-
spurðu nefna fyrst eitthvert Norðurlandanna
eða aðeins „Norðurlönd".
Noregur er langefstur með 24%.
Áhugi manna fyrir Rússlandi og Þýzka-
landi er álíka, um 8% hafa þessi lönd í
efsta sæti.
Athyglisvert er, hve fáir nefna Bretland,
og mun þar gæta áhrifa frá landhelgisdeil-
unni.
Bandaríkin eru efst landa utan Norður-
landa, um 11% hafa þau í efsta sæti.
Hundraðshluti þeirra, sem tilnefndu önnur
lönd, er það lítill, að varla er að marka þær
tölur. Þó má nefna, að auk þeirra 13 þjóð-
landa, sem eru á töflunni, voru tilnefnd 30
önnur lönd, frá Afgahnistan til Ungverja-
lands.
Fyrsta N e f n t s e m : Annað Þriðja
1. Lönd: % % %
Noregur 24 12 8
2. Bandaríkin 11 8 7
3. Svíþjóð 8 15 10
4. Danmörk 6 7 12
5. Norðurlönd 2 1 1
6. Þýzkaland 8 7 5
7. Rússland 8 7 4
8. Bretland 2 4 5
3. Hvemig lízt yður á þessi lönd?
Næst voru menn beðnir að segja til um
afstöðu sína til sex tiltekinna landa og beðn-
ir að gefa þeim einkunn, eftir því hvernig
þeim litist á löndin. Einkunnirnar voru fimm:
(1) mjög vel, (2) vel, (3) sæmilega, (4) illa,
(5) mjög illa.
Könnunin leiðir í ljós, að sé raðað eftir
svörum alls kjósendaúrtaksins verður niður-
staðan þessi: