Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Síða 33
SKOÐANAKÖNNUN 1955
27
íslenzkar bækur: %
1- Bækur eftir Kiljan, Gunnar, Krist-
mann, Þórberg og Hagalín ............ 8
2. Bækur annarra núlifandi íslenzkra
höfunda ............................. 8
3. Látnir íslenzkir skáldsagnahöfundar 3
4. Islenzkar ævisögur og endurminn-
ingar ............................... 8
5. Islenzkar ljóðabækur ................ 2
6. íslenzkar ferðasögur ................ 2
7. Þjóðleg fræði, sagnir o. þ. h...... 3
8. Islendingasögur ..................... 3
9. Biblían ............................. 1
10. Aðrar íslenzkar bækur ............... 3
AJls ísl. bækur 41
Bækur eftir erlenda hofunda,
þ. á. m. þýddar bækur:
11. Erlendar skáldsögur á frummáli eða
þýddar:
a. eftir ameríska höfunda ..... 6
b. eftir brezka höfunda ....... 6
c. eftir þýzka höfunda......... 5
d. eftir norræna höfunda ...... 5
12. Aðrar bækur eftir erlenda höfunda 9
Alls erl. bækur 31
13. Man ekki, svara ekki ........... 26
98
Bækur eftir íslenzka höfunda virðast eiga
í vök að verjast gagnvart erlendum bókum
og þýddum bókum.
Ef litið er á aldursskiptinguna, sést, að
hinir yngri tilfæra oftar erlenda bók en ís-
lenzka, hinir eldri halda sér aftur á móti enn
við þær íslenzku. Munurinn er áberandi mik-
111, aðeins 30% hinna yngstu tilfærðu íslenzk-
ar bækur á móti 40% hinna elztu. 44% hinna
yngstu nefna erlendar bækur (og þýddar),
en aðeins 25% hinna elztu.
7. Hvað heitir núverandi:
1. Forsætisráðherra íslands?
2. Forseti Bandaríkjanna?
3. Utanxíkisráðherra Rússlands?
4. Forsætisráðherra Indlands?
5. Forsætisráðherra Noregs?
6. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna?
A.lmennt er álitið, að íslendingar fylgist
mjög vel með því, sem gerist í stjómmálum,
bæði hér og erlendis, en niðurstaðan af þess-
ari spurningu varð ekki glæsileg. Aðeins
84% kjósendanna vissu, að Ólafur Thors
væri forsætisráðherra, 9% leiddu hjá sér
spurninguna, og 7% nefndu ekki réttan
mann.
Auk Ólafs Thors voru tilnefndir: Steingrím-
ur Steinþórsson, fyrrverandi forsætisráð-
herra, og Bjarni Benediktsson, en honum var
falið að gegna starfi forsætisráðherra frá 27.
maí til 7. júní 1955. Kann það að hafa farið
fram hjá sumum, að Ólafur Thors hafði tekið
við starfinu aftur, þegar könnun fór fram.
Einstöku virðast hafa misskilið spurninguna
(misheyrzt?) og tilnefndu forseta Islands, Ás-
geir Ásgeirsson.
84% kjósendanna vissu, að Eisenhower
væri forseti Bandaríkjanna. Áberandi er, að
hinir yngri svara mun réttar en hinir eldri.
44% vissu, að Molotov var utanríkisráð-
herra Rússlands, 47% að Nehru var forsætis-
ráðherra Indlands, 47% að Dag Hammar-
skjöld var aðalritari Sameinuðu þjóðanna,
en aðeins 14% að Gerhardtsen var forsætis-
ráðherra Noregs (nokkuð margir nefndu
Torp, sem var forsætisráðherra á undan
Gerhardtsen).
Eins og vænta mátti, vita karlar meira um
þessi mál en konur. Aðeins 7% kvenna vissi
hver var foi sætisráðherra Noregs, en 20%
karla, 30% kvenna vissi, að Molotov var
utanríkisráðherra Rússlands, en 58% karla.
Fleiri konur vissu hver var forseti Bandaríkj-
anna en hver var forsætisráðherra íslands.
Þegar litið er á aldursskiptinguna, kemur
í ljós, að yngri kynslóðin veit meira urn er-
lend stjórnmál en sú eldri, aftur á móti eru
fleiri villur varðandi spurninguna um for-
sætisráðherra Islands hjá þeim.
Eins og vænta mátti, er áberandi munur
eftir því, hvaða menntun menn hafa hlotið.
Skökk svör eða ekkert svar eru allt að því
'tvisvar sinnum algengari hjá þeim, sem að-
eins hafa hlotið gagnfræðamenntun eða
minna.