Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Blaðsíða 55
BÓKASAFN HELGAFELLS.
Bœkur tiJ að bera á sér
Fátt hefir í jafnríkum mæli
orðið til þess að auka lestur
góðra bóka í heiminum og
prentun þeirra í ódýrum vasa-
útgáfum, sem auðvelt er að
stinga á sig.
Nú hefir Helgafellsútgáfan
byrjað útgáfu nýs bókasafns,
sem einkum er ætlað æsku
þessa lands og þótti fyrsta
ljóðabók Davíðs, og vinsælasta
ljóðabók okkar
SVARTAR FJAÐRiR
sjálfkjörin sem fyrsta bókin í
safninu. Kom hún út á s.l. ári
og seldist samstundis í mörg
þúsund eintökum. Næsta bók-
in var Brimhenda Gunnars
Gunnarssonar, en í vor koma
tvær nýjar bækur i safninu, Gerpla H. K. L. og fylgir henni sérstakt orða-
safn. skýringar á fágætum orðum og orðasamböndum. og
Ljcð Jónasar Hailgrímssonar í úigáfu Tómasar
Það er skiljanlegt að hinar vönduðu. dýru útgáfur, sem seldar eru hér að
jafnaði, þyki of fyrirferðarmiklar og vandmeðfarnar til þess að taka með sér
í ferðalög eða fá unglingum þær til að lesa í rúminu eða úti í haganum.
Sannleikurinn er þó sá að margir hafa aðeins tíma til að lesa í ígripum, í sól-
baði, á biðstofum eða í sumarleyfum. í ferðalög eru unglingar orðnir vanastir
því að taka með sér ómerkileg blöð, einungis vegna þess að bækur eru of
dýrar og vandaðar. Nú er hægt að fá ævisögu Jónasar og öll 1-jóð hans í litlu
vasakveri sem kostar aðeins kr. 20.00. Nú er í fyrsta sinni hægt að njóta ljóða
hans og listar úti í íslenzkri náttúru, þar sem þau eiga ef til vill helzt heima.
Unglingar, byrjið að safna nýju vasabókunum okkar.
Bókasafn Helgafells