Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Side 8
mánudagur 3. september 20078 Fréttir DV
Gæði á góðu verði
Daewoo lyftararDoosan - Daewoo lyftarar
Áforma tunglferð
Rússar áforma mannaðan
leiðangur til tunglsins árið 2025
og ætla að koma upp varanlegri
stöð þar. Anatoly Perminov, yf-
irmaður rússnesku geimstofn-
unarinnar, sagði að stöðin yrði
mögulega byggð á árunum 2027
til 2032 og benti á að þrátt fyrir
að stofnunin fengi einungis tíu
prósent af því fjármagni sem
amerískir starfsbræður þeirra
fengju skorti ekkert á metnað-
inn og háleit markmið.
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is
Fjöldi glæpa sem framdir eru á Bret-
landi er framinn af krökkum undir
tíu ára aldri. Tölur sem BBC aflaði
sér benda til þess að á síðasta ári hafi
verið um að ræða hátt í þrjú þús-
und glæpi. Í Englandi og Wales er
vitað um eitt þúsund og þrjú hundr-
uð tilfelli þar sem um var að ræða
skemmdarverk eða íkveikjur og fleiri
en sextíu kynferðisbrot þar sem um
var að ræða geranda undir tíu ára
aldri. Ef um er að ræða barn níu ára
eða yngra er ekki hægt að sækja það
til saka, en uppi eru kröfur um lækk-
un aldurstakmarks hvað það varðar.
Skemmdarverk og íkveikjur
Helmingur þeirra tvö þúsund
átta hundruð og fjörutíu glæpa sem
um ræðir snerist um skemmdar-
verk eða íkveikjur. Af þeim sextíu og
sex kynferðisglæpum sem um ræð-
ir voru þó nokkur tilfelli þar sem
fórnarlambið var yngra en þrettán
ára. Þótt þetta séu háar tölur er um
að ræða mjög lítið brot af heildar-
fjölda glæpa sem framdir eru í land-
inu. Opinberar tölur sýna að fimm
og hálf milljón tilfelli voru tilkynnt
til lögreglu á sama tímabili. Þó ekki
sé hægt að sækja börnin til saka eru
brot þeirra þó skráð í skýrslur lög-
reglunnar.
Kynferðislegt ofbeldi þar sem
bæði fórnarlamb og gerandi eru
börn hefur aukist í Bretlandi. Það
er mikill misskilningur að kynferð-
islegt ofbeldi gagnvart börnum sé
alltaf af völdum fullorðinna. Könn-
un hefur leitt í ljós að í allt að þriðj-
ungi þeirra tilfella sem barn verður
fyrir kynferðislegu ofbeldi er ger-
andinn einnig barn.
Skiptar skoðanir
Ekki eru allir á einu máli þegar
rætt er um að lækka sakhæfisaldur.
Lawrence Lee, sem sá um vörn Jon
Venables, sem var annar tveggja sem
myrtu hinn tveggja ára James Bulger
árið 1993, sagði að lækkun sakhæf-
isaldurs myndi senda mjög mikil-
væg skilaboð til afbrotabarna. „Sem
verjandi myndi ég segja nei, lækk-
un sakhæfisaldurs yrði ekki til góðs,“
bætti hann við. Lawrence sagði að
sem borgari sem horfði upp á börn
haga sér eins og úlfahóp myndi hann
telja lækkun sakhæfisaldurs niður í
átta eða níu ár vera mjög mikilvægt
skref. Bob Reitemeier hjá samtök-
unum Children‘s Society sagði að
hann vildi að aldurinn yrði hækkað-
ur í fjórtán ár. „Ef við skoðum hvern-
ig börnin eru meðhöndluð af ríkis-
stjórninni og löggjafarvaldinu, þú
verður að vera átján ára til að kjósa,
sextán til að lifa kynlífi og einungis
tíu ára til að vera ábyrgur fyrir glæp-
samlegu athæfi,“ sagði hann.
Sakhæfisaldur mishár
Þegar sakhæfisaldur er skoðaður
víða um lönd kemur í ljós að sinn er
siður í hverju landi. Í Englandi, Wal-
es og Norður-Írlandi er aldurinn tíu
ár. Í Kanada og Hollandi er miðað við
tólf ára aldur, og þrettán ár í Frakk-
landi, fjórtán ár í Þýskalandi, Aust-
urríki, Ítalíu, Japan og Rússlandi. Á
Spáni og Portúgal er sakhæfisaldur-
inn sextán ár. Í Brasilíu og Perú er
aldurinn átján ár. Í Bandaríkjunum
er í sumum fylkjum miðað við allt
frá sex ára aldri, en alríkisdómstóll
miðar við tíu ára aldur.
Börn undir tíu ára aldri fremja hátt í þrjú þúsund glæpi á Englandi ár hvert. Sakhæfis-
aldurinn þar er tíu ár og skiptar skoðanir á hvort hækka skuli aldurinn eða lækka.
ung börn í glæpum
„Þú verður að vera átj-
án ára til að kjósa, sex-
tán til að lifa kynlífi og
einungis tíu ára til að
vera ábyrgur fyrir glæp-
samlegu athæfi.“
Yfirvöld í Suður-Kóreu þvertaka
fyrir að hafa borgað lausnargjald
fyrir gíslana nítján sem talibanar í
Afganistan höfðu í haldi. Opinber-
lega lofuðu suður-kóresk yfirvöld
að draga 200 manna lið sitt frá Afg-
anistan. Þessar fullyrðingar ganga
þvert á upplýsingar frá talibönum
sem segja að Suður-Kórea hafi seilst
djúpt í vasa sína og greitt tuttugu
milljónir bandaríkjadala fyrir frelsi
gíslanna. Talibanar segjast munu
nota féð til vopnakaupa og endur-
nýjunar samskiptakerfis síns auk
þess sem þeir muni kaupa fleiri bíla
til notkunar í sjálfsmorðsárásum.
Slæmt fordæmi
Gíslarnir voru búnir að vera í
haldi talibana síðan nítjánda júlí
og voru tveir gíslanna myrtir, annar
26. júlí og hinn 31. sama mánaðar.
Viðræður milli talibana og suður-
kóreskra yfirvalda hófust 10. ágúst
og fjórum dögum síðar var tveimur
kvenmönnum sleppt úr haldi. 30.
ágúst hafði öllum gíslunum verið
veitt frelsi. Ekki eru allir á eitt sátt-
ir við hvernig suður-kóresk yfirvöld
stóðu að samningaviðræðunum og
talið er að þau hafi sett slæmt for-
dæmi og mannránum muni fjölga
í kjölfarið.
Talibanar kröfðust greiðslu fyrir gíslana:
Tuttugu milljóna lausnargjald
Cha Hye-Jin sameinast ættingjum
sínum í suður-Kóreu.
minnast
fórnarlamba
Ættingjar þeirra sem létu líf-
ið í Beslan í Rússlandi minnast
þess að nú eru þrjú ár liðin frá
gíslatökunni sem kostaði þrjú
hundruð þrjátíu og tvö mannslíf.
Þar af var helmingurinn börn.
Þá tóku tsjetsjenskir uppreisn-
armenn yfir eitt þúsund manns
í gíslingu í skóla þar í borg og
kröfðust þess að Rússar drægju
lið sitt frá Tsjetsjníu. Ættingj-
ar telja enn í dag að mörgum
spurningum sé ósvarað varð-
andi lyktir gíslatökunnar.
Kolbeinn þorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Jon Venables og
robert thompson
Voru tíu ára þegar
þeir myrtu James
bulger árið 1993.