Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2007, Síða 26
Einkalíf okkar segir frá tveimur
manneskjum hvorri í sinni
heimsálfunni, Philip og Milenu,
sem kynnast á netinu. Eftir nokkurra
mánaða daður, og reyndar er gefið til
kynna að þau hafi gengið það langt að
stunda sýndarkynlíf, ákveða þau að
hittast á heimaslóðum Milenu í Quebec
í Kanada. Holdlegar raunverunautnir
á einangruðu sveitabýli fylgja í
kjölfarið á meðan þau vega og meta
hvort annað og íhuga möguleikann
á langtímaástarsambandi. En fyrr en
varir taka dularfullir atburðir að gera
vart við sig, unga fólkið fer að kynnast
betur og áttar sig á að þau eiga líklega
ekki vel saman og samverustundirnar
hætta að vera einskær dans á rósum.
Þessi mynd hins kanadíska Den-
is Coté er nokkuð sérstök. Hún gerist
nánast öll í einu húsi og næsta nágrenni
þess og er mjög áhugaverð framan af.
Myndin er athyglisverð pæling um ein-
mana fólk (sem búlgörsku leikararn-
ir tveir túlka afar vel) sem reynir að
mynda ástarsamband á grunni þess að
hafa eingöngu haft samskipti í gegnum
tölvu. Fyrri vendipunktur hennar kem-
ur furðu seint miðað við hve stutt hún
er, eða eftir rúman hálftíma, en atburð-
irnir sem þá fylgja og útfærsla þeirra
eru umdeilanlegir.
Manndráp sem Milena fremur í
sjálfsvörn, þegar ókunnugur maður
gerir sig líklegan til að nauðga henni,
er frekar kjánalega útfært. Það hefði
mátt gera því betur skil eða hreinlega
sleppa því, enda þurfti heldur ekki
heilt manndráp til að setja Milenu í
andlega klemmu. Henni leið illa fyr-
ir því draumur hennar um að mynda
langtímasamband með Philip var að
hrynja. Ef Coté vildi auka á vanlíð-
an hennar með einhverju finnst mér
að það hefði verið hægt að leysa með
einhverju öðru en manndrápi, til að
mynda fréttum af andláti ættingja eða
vinar eða að láta nauðgunartilraunina
takast. Myndin vinnur hins vegar aftur
á undir lokin og skilur mann eftir hugsi,
ekki síst lokaskotið af glímu manns við
svín í drullupolli sem kallast á við atriði
fyrr í myndinni.
Þess má geta að Coté var viðstadd-
ur sýninguna, sem fór fram í Norræna
húsinu, og var frekar vandræðalegt
þegar stærstur hluti hins fámenna
áhorfendahóps sem var í salnum gekk
út þegar boðið var upp á að spyrja leik-
stjórann út í verkið. Hann svaraði hins
vegar skilmerkilega þeim fáu spurn-
ingum sem til hans var beint og von-
andi rekur fleiri mynda hans á fjörur
íslensks kvikmyndaáhugafólks á kom-
andi árum.
Valin framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna í forvali ÍKSA:
Mýrin keppir til Óskars
miðvikudagur 3. október 200726 Bíó DV
www.SAMbio.is 575 8900
Langmest sótta myndin á Íslandi í dag Allir eiga sín leyndarmál.
Óvæntasti sálfræðitryllir ársins. Mynd í anda Clueless og Mean Girls.
Skemmtilegustu vinkonur í
heimi eru mættar.
Hugljúf rómantísk gamanmynd
Leiðin að hjartanu er í gegnum ljúfengan mat!
ÁLFABAKKA AKUREYRI
KEFLAVÍK
VIP
NO RESERVATIONS kl. 5:30 - 8 - 10:30 L
NO RESERVATIONS kl. 5:30 - 8 - 10:30
SUPER BAD kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
CHUCK AND LARRY kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 16
BRATZ kl. 5:30 L
DISTURBIA kl. 10:10 14
ASTRÓPÍÁ kl. 6 - 8 L
SELFOSSI
DISTURBIA kl. 8 - 10:20 14
VEÐRAMÓT kl. 8 14
KNOCKED UP kl. 10:10 12
NO RESERVATIONS kl. 8 -10 L
3:10 TO YUMA kl. 8 -10 16
BRATZ - THE MOVIE kl. 6 L
ASTRÓPÍÁ kl. 6 L
CUCK AND LARRY kl. 10 L
SHOOT EM UP kl. 8 16
VACANCY kl. 10 16
LICENSE TO WED kl. 8 LKRINGLUNNI
NO RESERVATIONS kl. 6:10 - 8:20-10:30 L
MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 16
BRATZ kl. 5:40 L
ASTRÓPÍÁ kl. 8 L
BOURNE ULTIMATUM kl. 10 14
RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 5:40 LDIGITAL
DIGITAL
- J. I. S. Film.is
“Skotheld skemmtun”
- T.S.K., Blaðið
SUPERBAD kl. 5.40 - 8 - 10.20
3:10 TO YUMA kl. 8 - 10.30
CHUCK AND LARRY kl. 5.40
VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8
BOURNE ULTIMATUM kl. 10.20
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
12
16
16
14
12
16
12
14
14
SUPERBAD kl. 8 - 10.10
CHUCK AND LARRY kl. 8 - 10.10
HAIRSPRAY kl. 6
HÁKARLABEITA 600 KR. kl. 6
12
14
14VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 - 10.20
SUPERBAD kl. 5.30 - 8 - 10.30
SUPERBADLÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
SHOOT´EM UP kl. 8 - 10
HÁKARLABEITA 600 KR. kl. 3.50 - 6
HAIRSPRAY kl. 5.30 - 8 - 10.30
VACANCY kl. 10.40
KNOCKED UP kl. 5.20 - 8
BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 4
THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 3.45
-A.F.B. Blaðið
- L.I.B., Topp5.is
27. SEPTEMBER DAGSKRÁ OG MIÐASALA
Á WWW.RIFF.IS7. OKTÓBER 2007
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík
“ÁN NOKKURS VAFA FYNDNASTA MYND ÞESSA ÁRS.
ÓFYRIRSJÁANLEGUR OG FRÁBÆR HÚMOR.”
HEIÐAR AUSTMANN, FM957
- I. Þ. Film.is
- D.Ö.J., Kvikmyndir.com
“...Spennandi og
vel gerð afþreying
fyrir alla bíógesti.”
- S.V., MBL
- bara lúxus
Sími: 553 2075
3:10 TO YUMA kl. 5.30, 8 og 10.30 16
CHUCK & LARRY kl. 5.40, 8 og 10.20 12
HAIRSPRAY kl. 5.40 og 8 L
KNOCKED UP kl. 10.20 14
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á
Myndin Mýrin eða Jar City eftir Blatasar Kormák var
valin í forvali Íslansku kvikmynda- og sjónvarpsaka-
demíunnar nú á dögunu. Valið stóð á milli Astrópíu,
Veðramóta, Foreldra, Kaldrar slóðar og svo Mýrinnar.
Valið þýðir að Mýrin verður framlag Íslands til
Óskarsverðlaunanna sem besta erlenda myndin en
það er svo undir akademíunni vestanhafs komið hvort
Mýrin verði svo ein þeirra mynda sem tilnefndar eru til
verðlaunanna eða ekki.
Mýrinni hefur gengið mjög vel á þeim kvikmyndahá-
tíðum þar sem hún hefur verið sýnd og hlaut hún með-
al annars aðalverðlaunin á Karlovy Vary-hátíðinni. Auk
þess hefur myndin verið seld til sýninga í Bandaríkj-
unum. Þá birtist nýlega grein á alþjóðlega kvikmynda-
vefnum indiewire.com þar sem segir að Mýrin sé ein af
mest spennandi erlendu myndunum um þessar mund-
ir ásamt til dæmis Lust, Caution eftir Ang Lee sem hlaut
nýlega Gullljónið í Feneyjum. asgeir@dv.is
Mýrin verður
framlag Íslands
til óskarsverð-
launanna.
Bíódómar
Vel heppnað-
ur Hyde
Stuttmyndin Herra Hyde eftir
Veru Sölvadóttur er afar vel
heppnuð svört kómedía um
Eric sem ætlar að eiga kvöld-
stund með ástinni sinni en
fær óvænta heimsókn með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Án þess að vilja segja of mikið
þá er heimsóknin frá manni
sem Eric hefur átt vingott við
og veldur því að Eric lendir
á hrakhólum á eigin heimili.
Rúmið hans kemur sér vel sem
skálkaskjól á erfiðustu augna-
blikunum og minnir mynd-
in því sterklega á skáldsögu
Braga Ólafssonar, Gæludýrin,
enda sá ég ekki betur en Braga
sé þakkað fyrir hugmyndina
eða eitthvað í þá veru í hinum
franska kreditlista, eða á sama
tungumáli og myndin. Herra
Hyde er mjög vel gerð, kvik-
myndataka og klipping meðal
annars til fyrirmyndar, þrátt
fyrir að virðast hafa verið gerð
fyrir afar lítinn pening.
Kristján Hrafn Guðmundsson
HHHHHHERRA HYDE
SÝNDARVERUSAM-
BANDIÐ HENTUGRA?
Bíódómur
einkalíf okkar
Myndin er athyglisverð
pæling um einmana fólk
sem reynir að mynda ást-
arsamband á grunni þess
að hafa eingöngu haft
samskipti í gegnum tölvu.
Reykjavík International Film Festival
Leikstjóri: Denis Coté
Kanada 2007
82 mín. Niðurstaða: HHHHH