Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2007, Qupperneq 8
miðvikudagur 3. október 20078 Fréttir DV
Pútín tryggir sér völd
Miklar vangaveltur hafa verið um hvernig skipan í æðstu
valdastöður í Rússlandi yrði þegar Vladimír Pútín, forseti
landsins, lætur af embætti í lok annars kjörtímabils síns.
Jafnvel var álitið að hann myndi grípa til stjórnarskrárbreyt-
inga sem gerðu honum kleift að sitja þriðja kjörtímabilið á
forsetastóli. Engum vafa er undirorpið að hann hefur ekki í
hyggju að missa þau völd sem hann hefur og hefur nú spilað
út trompi sem ætti að tryggja þau.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands,
stefnir á framboð til þings í þing-
kosningunum sem fram fara í
desember. Tilkynning Pútíns hefur
komið mörgum í opna skjöldu, en
slær að sama skapi á margar vanga-
veltur sem hafa verið um fram-
tíð hans í forsetastóli. Pútín sagð-
ist myndu leiða lista Sameinaðs
Rússlands í komandi kosningum
og sagði ekki óraunhæft að hann
yrði næsti forsætisráðherra lands-
ins. Stjórnmálaskýrendur telja að
ákvörðun Pútíns miði að því að
greiða leiðina fyrir einhvern minni-
háttar spámann að hans vali í for-
setaembættið og tryggja með því
áframhaldandi völd hans í landinu.
Skyndilega er Viktor Zubkov, sem
settur var forsætisráðherra í síðasta
mánuði, ekki svo fráleitur kostur í
forsetastól.
Skipan Zubkovs í embætti for-
sætisráðherra í síðasta mánuði kom
mörgum í opna skjöldu, hann var
þá yfirmaður fjármálaeftirlitsins
og frekar óþekkt stærð í rússnesk-
um stjórnmálum. Fram að þeim
tíma hafði hann ekki viðrað áhuga
á framboði til forsetaembættisins,
en það breyttist fljótlega. Þeir sem
fyrir þann tíma höfðu verið nefndir
til sögunnar voru Sergei Ivanov og
Dmitri Medvedev, og þá sérstaklega
sá fyrrnefndi. Mikil vinátta er á milli
Sergeis Ivanov og Vladimírs Pútín,
bakgrunnur þeirra er svipaður því
báðir koma þeir úr röðum KGB, sem
var leyniþjónusta Sovétríkjanna sál-
ugu. Það styrkir enn frekar þann
grun að hann verði næsti forseti
landsins að þeir hafa oft og tíðum
sést saman við opinber tækifæri.
Zubkov brúar bilið
Stjórnarskrá Rússlands meinar
Pútín að sitja nema tvö kjörtímabil í
senn í embætti forseta, en hins veg-
ar er ekkert sem kemur í veg fyrir að
hann, eftir fjögurra ára setu á þingi
landsins, snúi aftur og verði forseti
Rússlands í tvö ár. Með tilliti til þess
er Zubkov ákjósanlegur kostur fyrir
Pútín. Þeir eru nánir vinir og hvort
tveggja aldur Zubkovs og tryggð
hans við Pútín gera að verkum að
hann gæti brúað þetta bil fyrir Pút-
ín.
Sergei Ivanov og Dmitri Med-
vedev eru hins vegar skildir eft-
ir í sárum, því möguleikar þeirra
til forsetaembættisins hafa beðið
verulegt skipbrot. Þeir gætu hugs-
anlega boðið sig fram í forsetakosn-
ingunum í mars á næsta ári, en
möguleikar þeirra væru jafn litlir og
möguleikar Garrís Kasparov, sem
tilkynnti nýlega að hann tæki þátt í
Þingmenn í mótmælaaðgerðum
Fleiri en áttatíu þingmenn stjórn-
arandstöðunnar í Pakistan sögðu
af sér í gær. Tilgangurinn er að
mótmæla og grafa undan áætl-
unum Pervez Musharraf forseta
landsins um endurkjör. Með af-
sögnunum vonast þingmennirn-
ir til að vekja upp efasemdir um
lögmæti komandi forsetakosninga.
Fazal-ur-Rehman, leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar, sagði afsagnirnar
baráttu gegn einræði. Aðgerðirn-
ar eru lokatilraun til að koma í veg
fyrir að Musharraf haldi völdum,
en ekki er talið líklegt að þær beri
árangur.
Herinn leitar til mæðra
Rússneski herinn hefur ákveð-
ið að leita aðstoðar meðlima
Samtaka mæðra hermanna þar
í landi. Ástæðan er sú að Rússar
á herskyldualdri eru tregir til að
svara kalli hersins þegar sá tími er
kominn að þeir eigi að skila af sér
átján mánaða herskyldu. Herinn
áformar að setja mæður í nefnd-
ir sem tengdar eru herkvaðningu.
Einungis um níu prósent þeirra
sem kvaddir eru til vegna her-
skyldu sinna kallinu. Ákvörðun
hersins skýtur svolítið skökku við,
því samtökin hafa áður gagnrýnt
herkvaðninguna.
Vatíkanið ákvað að loka róm-
versk-kaþólsku klaustri á Ítalíu vegna
deilna. Í klaustrinu voru eingöngu
þrjár nunnur, en sá fjöldi nægði til
slagsmála. Systir Annamaria og syst-
ir Gianbattista voru ekki sáttar við
yfirgangssemi abbadísarinnar, syst-
ur Liliönu. Eftir messu í klaustri heil-
agrar Klöru, nálægt Bari í suðurhluta
landsins, var Önnumaríu og Gian-
battistu nóg boðið og létu hendur
skipta. Þær, meðal annars, klóruðu
abbadísina og hrintu henni. Atvikið
átti sér stað í júní, en var látið liggja í
þagnargildi. Giovanni Battista Pichi-
erri erkibiskup fékk það verkefni að
koma á sáttum meðal nunnanna,
en hafði ekki erindi sem erfiði þrátt
fyrir góðan og einbeittan vilja. Eft-
ir árangurslausar tilraunir komst
Giovanni Battista Pichierri erkibisk-
up að þeirri niðurstöðu að nunn-
urnar hefðu glatað trúarlegri köll-
un sinni. Í ljósi þeirrar niðurstöðu
óskaði hann leyfis frá Vatíkaninu til
að loka klaustrinu. Í ljósi málavaxta
var það auðsótt af hálfu hans heilag-
leika í Róm og gekk eftir. Nunnurn-
ar tvær, systir Annamaria og syst-
ir Gianbattista, voru fluttar í annað
klaustur, en með abbadísina gekk
ekki eins vel. Systur Liliönu, sem
verið hafði í klaustrinu frá stofnun
þess árið 1963, grunaði að Pichierri
erkibiskup hygðist setja klaustrið
undir stjórn annarrar abbadísar og
kom sér upp vígi svo hún yrði ekki
fjarlægð úr því.
Ósætti í klaustri varð til þess að nunnur létu hendur skipta:
Systraslagsmál í klaustri
Kolbeinn þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Vladimír Pútín Stefnir á
embætti forsætisráðherra.
Viktor Zubkov forsætisráðherra góður vinur og tryggur Pútín, sennilega
næsti forseti rússlands.
Vatíkanið í róm gaf
góðfúslegt leyfi til að
loka klaustrinu.