Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.01.2014, Qupperneq 12

Fréttatíminn - 03.01.2014, Qupperneq 12
E f við lítum til baka um heila öld og gluggum í dagblöð ársins 1914 sjáum við helst fréttir af stríðsrekstri megin- landsins. Lífið á hlutlausa eylandinu í norðri fór ekki varhluta af ófriðinum og áhyggjur af vöruskorti gerðu fljótlega vart við sig. Mikilvæg skref voru stigin í verkalýðs- og sjálfstæð- isbaráttu þjóðarinnar á árinu þegar verkakvennafélagið Framsókn og Eimskipafélag Íslands voru stofnuð. Þetta var síðasta árið í langan tíma sem landinn gat drukkið áfengi lög- lega, síðasta árið sem konur fertugar og eldri fengu ekki að kjósa og þar að auki var síðasti dauðadómurinn kveðinn upp hér á landi á því herrans ári 1914 þegar Júlíana Jónsdóttir var dæmd til lífláts fyrir að bana bróður sínum. Í huga flestra verður þetta þó alltaf árið sem markar upphaf fyrri heimsstyrjaldarinnar. Stofnun Eimskipafélags Íslands Í byrjun ársins 1914 var Eimskipa- félags Íslands stofnað, eða „óska- barn þjóðarinnar“ eins og það var kallað meðal almennings. Hingað til hafði Sameinaða gufuskipafélagið í Danmörku séð um alla strandflutn- inga milli Íslands og meginlandsins. Þegar fregnir bárust af stofnun Eim- skipafélagsins hótaði danska félagið að hætta öllum ferðum skyldi Alþingi styrkja hið nýja íslenska hlutafélag. Þetta kynnti heldur betur í Íslending- um sem kölluðu Dani frekjur og kúg- ara í dagblöðum og þjóðin virtist öll sameinast í vilja til að eignast eigin flutningaskip. Hlutafjársöfnun hins nýja Eimskipafélags gekk vonum framar, fólk af öllum þjóðfélagsstig- um, auk Íslendinga í Ameríku, lagði til félagsins en hlutafjártilboðum útlendinga var hafnað. Landssjóður lagði fram drjúgan skerf með þeim formerkjum að félagið myndi einnig sjá um strandsiglingar. Þann 17. janúar var svo haldinn fundur í Fríkirkjunni í Reykjavík þar sem hlutafélagið Eimskipafélag Íslands var stofnað við hátíðlega athöfn. Bæjarbúar röltu um götur í sínu fínasta pússi og frí var gefið í skólum og helstu fyrirtækjum í tilefni dagsins. Á næsta fundi hins nýstofnaða félags var ákveðið að láta byggja tvö skip til millilandaferða. Sveinn Björnsson, ungur málaflutn- ingsmaður sem átti eftir að láta til sín taka í stjórnmálum landsins, var kosinn formaður hlutafélagsins og fór hann utan til að semja um smiði fyrstu skipanna, eitt fyrir Suðurland og annað fyrir Norðurland. Fyrstu skipin tvö, Gullfoss og Goðafoss, komu svo til landsins ári síðar. Í nýj- asta fréttamiðlinum, Morgunblaðinu, var hið nýja félag kallað „vorboði ís- lenskrar sjálfsbjargar“ og spurt var hvernig þjóðin yrði á vegi stödd ef það hætti að vera til. Stofnunin þótti almennt mjög mikilvægur áfangi í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Stríðið teygir anga sína til Íslands Morðið á Frans Ferdinand ríkis- arfa Austurrísk-ungverska keis- aradæmisins og konu hans, Sophie Chotek, í Sarajevó þann 28. júní 1914 er oftast talið marka upphaf fyrri heimsstyrjaldarinnar. Það skot hleypti af stað milliríkjadeilum sem fljótlega færðust yfir á blóðuga vígvelli. Sigurður Eggerz, þá nýlega tekinn við af Hannesi Hafstein sem ráðherra Íslands, gaf þann 29. ágúst út fyrirskipan um hlutleysi Íslands. Helstu áhrif styrjaldarinnar á Ísland birtust í afleiðingum af siglinga- og viðskiptabanni. Í stríðsbyrjun settu Bretar hafnbann á Þýskaland og þegar líða tók á ófriðinn höfðu þeir utanríkisverslun nær allra hlutlausra þjóða í hendi sér. Breska stjórnin sendi ræðismann til Íslands sem átti að hafa eftirlit með umsvifum Þjóð- verja og bandamanna þeirra hér og með siglingum skipa sem gætu verið á þeirra vegum. Fyrir stríð höfðu Bretland og Danmörk verið helstu viðskiptalönd Íslendinga en íslensk stjórnvöld ákváðu í byrjun stríðsins að reyna að efla viðskiptasambönd við Bandaríkin. Síld og gærur í skiptum fyrir gull og olíu Alþingi myndaði velferðarnefnd sem átti að bregðast við nýjum aðstæð- um. Þeir sem hana skipuðu fyrir- skipuðu landanum að beina verslun sinni til vesturálfu meðan ófriðurinn stæði yfir. Stjórnvöld sendu Ólaf Johnson konsúl og Svein Björnsson málafærslumann til Bandaríkjanna til vörukaupa og fyrir ferðina var leigt norskt flutningaskip sem sigldi vestur um haf með síld og gærur í skiptum fyrir ýmsa nauðsynjavöru sem gæti orðið skortur á, meðal annars gull og olíu. Það var í þessari ferð sem Íslendingar fengu sitt fyrsta erlenda lán án ábyrgðar dönsku stjórnarinnar. Sveinn Björnsson segir svo frá ferðinni í endurminn- ingum sínum; „Gullið keyptum við í New York. Fórum við Ólafur sjálfir með það á skipsfjöl, vel varðir vopn- uðum manni frá bankanum. Var það í fjórum handtöskum, sem voru svo þungar, að við vorum alveg að gefast upp, er út á skipið kom og urðum að ganga talsverðan spöl síðast.“ Skúlí fógeti ferst í Norðursjó Stríðið tók sinn toll af sonum Íslands. Á haustmánuðum, aðeins þremur vikum eftir að stríðið braust út, barst sú voðafregn að botnvörpuskipið Skúli fógeti hefði sokkið þegar það rakst á tundurdufl í Norðursjó. Fjórir menn fórust en þrettán var bjargað af breskum sjómönnum. Í skeyti frá Englandi segir hr. L. Zöllner, ræðis- maður Dana í Newcastle sem tekið hafði skipbrotsmennina að sér, svo frá; „Íslendingum hefir, sem von er, fundist þeir fjarri ófriðnum og þeim hættum, sem hann hefir í för með sér, en nú er eins og fregn þessi hafi allt í einu dregið oss nær ófriðarstöð- unum. Hin friðsama og afskekkta þjóð vor hefir ekki komist hjá að láta sonu sína og eignir að fórn í ófriðnum, og þó að aðrar þjóðir missi meira, þá er á að líta, að hér er af litlu að taka.“ Fréttamiðlun og hlutleysi Íslendingar höfðu að sjálfsögðu mik- inn áhuga á fréttum af stríðinu og á forsíðum dagblaðanna var hægt að lesa símfréttir sem lýstu í stuttu máli atburðarás vígvallanna. Auk þess gáfu blöðin út fréttamiða og stóð fólk í biðröðum til að ná þeim. Landsím- inn, sem sá um skeytasendingarnar, hóf opnun allan sólarhringinn svo fréttir gætu borist samstundis og hið nýstofnaða Nýja Bíó hóf að sýna „Heræfingar ítalska flotans“ sem fjallaði um það hvernig stórþjóðir búast til ófriðar. Þorri þeirra sím- skeyta sem birtust á forsíðum dag- blaðanna kom frá Bretlandi sem var að sjálfsögðu ekki hlutlaus þjóð og því mynduðust umræður á síðum ís- lensku blaðanna um fréttagildi þess- ara skeyta, hvort rétt væri að taka bara við fréttum frá Central News og Reuters í London en ekki frá öðrum miðlum og hvort rétt væri að standa með einni þjóð en ekki annarri á ófriðartímum. Landsstjórn-in gaf að lokum út reglu um algert hlut- leysi fjölmiðla í fréttaflutningi. Auk þess gaf ráðherra út styrk upp á 600 krónur sem nýtast átti dagblöðunum til skeytakaupa. Þetta leiddi af sér „skeytamálið mikla“ sem voru deilur milli ritstjóra helstu dagblaða bæjar- ins um styrkinn. Styrkurinn sem veita átti öllum dagblöðunum fór til að byrja með eingöngu til Morgun- blaðsins og Ísafoldar en ritstjóri Vísis var afar ósáttur. Eftir miklar deilur á síðum blaðanna varð úr að ráðherra skipti styrknum milli dagblaðanna þar sem ekki náðist samkomulag um að kaupa saman fréttir. Kvenréttindi og verkalýðsbarátta Á Alþingi var aðallega tekist á um sambandið við Dani en auk þess var kosningaréttur kvenna skeggrædd- ur. Árið 1913 hafði verið samþykkt stjórnarskrárfrumvarp sem veitti konum, 40 ára og eldri, kosningar- rétt við staðfestingu stjórnarskrár- innar. Aldurstakmarkið átti svo að lækka um eitt ár næstu 15 árin, því það þótti hreinlega of djarft að taka svo stóra ákvörðun á einu bretti og þóttu konur ekki tilbúnar að takast á við þá ábyrgð sem fylgdi þessum réttindum. Á norrænum kvenna- fundi sem haldinn var í Danmörku 1914 hlógu konur víst þegar íslenski fulltrúinn skýrði frá þessum mála- vöxtum. Þegar stjórnarskráin var svo samþykkt ári síðar fögnuðu kon- ur þessum stóra áfanga þann 19.júní. Þær konur sem létu hvað mest til sín taka í kvenréttindum tilheyrðu vaxandi borgarastétt en verkakonur voru einnig að vakna til vitundar um mannréttindabaráttu. Árið 1912 höfðu hafnfirskar fiskverkakonur farið í verkfall sem stóð hátt í mánuð til að krefjast launajafnréttis. Þær höfðu þá 15 aura á tímann hvort sem um dag- eða eftirvinnu var að ræða meðan karlar höfðu hins vegar 40-50 aura. Konurnar fengu kröfur sínar að mestu uppfylltar eftir verkfallið og fagnaði Bríet Bjarnhéðinsdóttir þess- um áfanga í forsíðufrétt í Kvenna- blaðinu. Bríet tók jafnframt stóran þátt í myndun nýs stéttarfélags fyrir konur. Jónína Jónatansdóttir hafði haft orð á því á fundi í Kvenréttinda- félaginu að bæta þyrfti kjör verka- kvenna en verkamannafélagið Dags- brún hafði fyrr ákveðið að hleypa konum ekki í sitt félag af ótta við samkeppni um vinnu og laun. Það var því ákveðið að stofna sérstakt fé- lag fyrir konur og þann 25. október var verkakvennafélagið Framsókn formlega stofnað. Jónína Jónatans- dóttir var kosin formaður og gegndi hún því stafi í 20 ár, en var auk þess ein stofnenda Alþýðusambands Ís- lands og Alþýðuflokksins. Fram- sókn og Dagsbrún störfuðu í sitt hvoru lagi mest alla öldina eða þar til þau voru sameinuð árið 1997 í Eflingu. Tango, two step og áfengisbann Almennt setti óhug að landsmönn- um þegar líða tók á haustið vegna styrjaldarinnar og lagðist niður mikill hluti skemmtanahalds í höfuð- borginni. Þar á meðal var þjóðhátíð aflýst sem haldin hafði verið 2. ágúst ár hvert til að fagna stjórnarskránni frá 1874. Skemmtanir virðast þó ekki hafa lagst af með öllu því heimildir herma að danskennsla frú Stefaníu Guðmundsdóttur hafi notið mikilla vinsælda í höfuðborginni á köldum vetrarkvöldum en hún kenndi áhuga- sömum nýtískudansa á borð við tango og two step. Í lok ársins, á annan í jólum, frum- sýndi Leikfélag Reykjavíkur nýtt íslensk leikrit, Galdra Loft eftir Jóhann Sigurjónsson, við mikið lof áhorfenda. Það virðist því sem landinn hafi fundið sér ýmislegt til skemmtunar hér í norðrinu, fjarri ófriðarástandi meginlands- ins. Gamla árið var kvatt og komu þess nýja fagnað líkt og við gerum í dag með flugeldum og góðum mat. Kaupangur við Lindargötu auglýsti óbrennt kaffi, rúsínur og kandís í kössum, sykursaltað sauðaköt og jólahveitið góða á gamlársdag og Lækjartorgsbasarinn seldi víst fal- legustu og ódýrustu flugeldana. En þetta var síðasta árið í langan tíma sem landinn get dansað og skemmt sér undir áhrifum, allavega löglega, því eftir nýársnóttina 1914 tók áfengisbannið gildi og þá var framleiðsla og sala áfengis bönnuð á landinu allt þar til banninu var aflétt árið 1933. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is VE ST UR LA ND SV EG UR VÍKURVEGUR ÞÚ SÖ LD VÍ NL AN DS LE IÐ Nýtt þjónustuver Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) opnaði að Vínlandsleið 16 í Grafarholti þann 2. janúar sl. SÍ annast framkvæmd sjúkra- og slysatrygginga. Frekari upplýsingar: • Þjónustuver SÍ – Vínlandsleið 16, Reykjavík • www.sjukra.is • Réttindagátt – mínar síður á www.sjukra.is • sjukra@sjukra.is • Sími 515-0000 Nýtt þjónustuver Sjúkratrygginga Íslands opnaði 2. janúar SJÚKRATRYGGINGAR ÍSLANDS VÍNLANDSLEIÐ 16 150 REYKJAVÍK Verið hjartanlega velkomin á nýjan stað á nýju ári! Ísland fyrir öld – 1914 Heimsstyrjöldin teygir anga sína til hlutlausa eylandsins í norðri í formi vöruskorts og fjórir menn falla þegar Skúli fógeti rekst á tundurdufl í Norðursjó. Á sama tíma eru mikilvæg skref stigin í verkalýðs-og sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Í byrjun ársins 1914 var Eimskipafélags Íslands stofnað, eða „óskabarn þjóðarinnar“ eins og það var kallað meðal almennings. Hingað til hafði Sameinaða gufuskipafélagið í Danmörku séð um alla strandflutninga milli Íslands og meginlandsins. 12 fréttaskýring Helgin 3.-5. janúar 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.