Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.01.2014, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 03.01.2014, Blaðsíða 18
Tjörvi Ólafsson Hagfræðingur hjá Seðalbanka Íslands kynnir hagspá Íslands 2014/2015 Þorlákur Karlsson Þorlákur Karlsson, dósent við HR og rannsóknarstjóri Maskínu kynnir niðurstöður rannsóknar- innar: Hvernig hæfa samfélagsgildi Íslendinga í breyttum heimi? Valdimar Sigurðsson Dósent við viðskiptadeild HR, fundarstjóri Daniel Levine – „The Ultimate Guru of Cool“ (skv. CNN) er forstjóri Avant-Guide Institute. Maðurinn sem Saatchi & Saatchi biður um að dæma keppnir hjá sér svo þær séu eins svalar og hægt er. Stýrir risavöxnu alþjóðlegu neti „trend-skoðara“ og veit alltaf hvað er að koma. Mörg öflugustu fyrirtæki heims leita til hans þegar þau vilja átta sig á hvað er handan við hornið, t.d. Master- Card, Deutche Telekom og Samsonite. Hver eru nýjustu „trendin“ í þörfum og væntingum neytenda? Hvernig geta fyrirtæki lifað af og blómstrað í ögrandi viðskiptaumhverfi nútímans með því að þekkja óskir og þrár viðskiptavinarins? Um allan heim eru fyrirtæki að nýta sér „trend“ þekkingu Avant-Guide. Hvers vegna ekki þitt fyrirtæki? Morgunverðarfundur, Kaldalóni í Hörpu 9. janúar 2014, kl. 9–11 Skráning og nánari upplýsingar á imark.is Takmarkaður sætafjöldi DANIEL LEVINE THE MEANINGFUL ECONOMY merkilegt að ég væri að fara í viðtal í Fréttatímanum. Ísabellu finnst hins vegar meira spennandi að vita hvort ég þekki Sveppa og hvort Sveppi og Villi séu vinir mínir á Facebook. Ég hitti Villa einu sinni og lét taka mynd af okkur saman handa henni og henni fannst það alveg meiriháttar. Hún hefur auð- vitað alist upp við að sjá myndir af mér út um allt og kippir sér ekkert upp við það. Ætli hún haldi ekki bara að mömmur séu almennt svona sýnilegar,“ segir Linda og hlær. Linda hefur verið á milli tann- anna á fólki í gegn um árin þar sem fólk veltir sér upp úr einkalífi henn- ar. „Ég bara vil ekki setja orkuna mína í þetta. Þetta er eitthvað sem skiptir ekki raunverulegu máli.“ Þegar ég hringdi í Lindu til að fá hana í viðtal sagðist ég meðal ann- ars ætla að spyrja hana hvort hún væri að hitta einhvern mann, jafn- vel þó ég sjálf hefði akkúrat engan áhuga á því, einfaldlega því ég hélt að blaðamenn ættu að spyrja Lindu Pétursdóttur þannig spurninga. Þar sem við sátum í stofunni hennar tilkynnti ég henni að ég væri hætt við og ég ætlaði bara ekkert að spyrja hana um karlamál. Hún varð hálf hissa en sagðist þó fegin enda þreytt á spurningum af þessum toga. „Ég held að ég hafi aldrei farið í viðtal án þess að vera spurð um karlmenn.“ Velferð dýra víkur fyrir gróðahyggju Tveir hundar eru með okkur í viðtalinu, enska Cocker Spaniel- tíkin Stjarna og Chihuahua-rakk- inn Sesar. Linda hefur lengst af verið með allavega tvo hunda á heimilinu, áður tvo af tegundinni Springer Spaniel. „Ég var að taka að mér þennan hér,“ segir hún og klórar Chihuahuta-hundinum á maganum þar sem hann liggur hjá henni í sófanum. „Bryndís Schram á hann en þau hjónin voru að fara af landi brott í einhvern tíma og ég tók hann því til mín. Hann er því einskonar fóstursonur minn.“ Sesar er heldur farinn að eldast, orðinn 10 ára, en Stjarna er aðeins fjögurra ára. „Ísabella þekkir lífið ekki án hunda. Frá því hún fæddist hafa alltaf verið hundar í kring um hana. Hún fer með þá út og gefur þeim að borða og leikur við þá. Ég tel að það geri börnum gott að alast upp með dýrum. Það er gott fyrir þau að taka ábyrgð en þau hafa líka gott af nándinni og snertingunni.“ Linda er mikill dýravinur og hefur látið til sín taka í dýravernd- unarmálum. „Dýravernd er mér mikið hjartans mál. Hér áður fyrr hélt maður að á litla góða Íslandi væri engu ábótavant þegar kemur að dýravernd og réttindum dýra en því miður er margt sem má betur fara. Hér eru ákveðnir staðir þar sem beinlínis á sér stað hunda- framleiðsla þar sem heilsa og að- búnaður hundanna er hræðilegur. Ef við tökum dæmi af mjólkurkúm þá eiga þær rétt á að vera úti undir beru lofti í 8 vikur á ári en nýverið voru nokkur fjórir bændur sektaðir því þeir virtu þetta ekki. Rófur eru stýfðar af grísum því þeir eru haldnir í svo miklum þrengslum að þeir naga annars rófuna hver á öðrum og þeir eru vanaðir nokk- urra vikna gamlir án þess að fá deyfingu. Við verðum að sjá breyt- ingu og að gera okkur grein fyrir því að dýr eru skyni gædd og eiga rétt á því að lifa lífi sínu á mannúð- legan og náttúrulegan hátt áður en þeim er slátrað. Sumstaðar þar sem verksmiðju- búskapur er stundaður er þessi réttur dýranna tekinn frá þeim og þau eyða lífi sínu við ömurlegar og óásættanlegar aðstæður. Dýr, jafnt á við okkur mannfólkið, hafa rétt á fersku lofti, sólarljósi, jörðinni og frelsi til athafna eins og þau fengu hér á árum áður. Búið er að skipta út velferð dýra fyrir hagkvæmnis- rök og gróðarsjónarmið og eru það skelfileg skipti. Það þýðir að áhersla er lögð á að ná sem mestri þyngd skepnunnar á sem stystum tíma, í sem minnstu rými. Klárlega eru það dýrin sem tapa í þessu samhengi, við óásættanlegar að- stæður oft á tíðum. Sem neytendur höfum við val. Við getum krafist þess að fá að vita hvaðan varan okkar kemur og hvernig hún var framleidd. Hvort að svínin, kjúk- lingarnir, kýrnar og kindurnar sem dæmi, hafi lifað sómasamlegu lífi eða hvort þau hafi þurft að kveljast til þess að enda á diskunum okkar. Það segir svo mikið um okkur sem manneskjur hvernig við komum fram við minni máttar og dýr.“ Trúi á það góða í fólki og lífinu Dagarnir eru annasamir hjá Lindu en hún gerir sér grein fyrir nauð- syn þess að rækta sjálfan sig. Hún vaknar almennt mjög snemma á morgnana, áður en Ísabella vaknar, til þess að fá smá tíma ein. „Ég hugleiði og finnst það gefa mér mjög mikið. Á morgnana byrja ég á hugleiðslu og fer síðan á hlaupa- bretti sem ég er með hér heima og svo í gufu. Ég kaupi mikið af hljóðbókum sem ég hlusta á þegar ég er á hlaupabrettinu. Það hentar mér mjög vel. Ein af þeim bókum sem ég mæli sérstaklega með er bókin Lean in. Mér finnst hún áhugaverð.“ Hún er eftir Sheryl Sandberg, framkvæmdastjóra Fa- cebook, og er ætlað að efla trú kvenna á sig sjálfar. Bókin kom út í íslenskri þýðingu seint á síðasta ári undir heitinu Stígum fram og fékk Linda hana í jólagjöf. „Mér finnst gaman að lesa viðskipta- bækur en ég er líka mikið í andlegu deildinni. Ég reyni að sækja mér efni sem er uppbyggjandi og ég get nýtt til að bæta sjálfa mig. Ég les líka mikið á netinu sem tengist starfi mínu, um heilsu, fegurð, mataræði og hreyfingu.“ Hvað önnur áhugamál varðar hefur Linda eina heldur sérstaka ástríðu. „Vinkonum mínum finnst ég vera algjört nörd þegar ég tala um þessa ástríðu en ég hef mjög mikinn áhuga á týpógrafíu, eða leturgerð. Ég er lærður grafískur hönnuður og týpógrafía var mín sérgrein. Stundum horfi ég á heilu heimildarmyndirnar um týpógrafíu og finnst þær mjög áhugaverðar.“ Næsta spurning blasir því hreinlega við: Áttu þér uppáhalds leturgerð? „Já, hún heitir Neutraface, er einföld og klassísk. Ég hef notað hana um árabil í efni fyrir Baðhúsið og nú einnig í nýju útliti lógós fyrirtækisins.“ Ég viðurkenni að hafa aldrei heyrt um þessa leturgerð en lofa að fara heim og gúggla. Við það komst ég að því að leturgerðin er svo rómuð að það hefur verið gert lag um hana sem er byggt á laginu Poker Face með LadyGaga. Já, smá innsýn í heim áhugafólks um leturgerðir. Á einu borðinu í stofunni er Búddalíkneski og ég spyr Lindu um trúmál. „Já, ég trúi sannarlega á æðri mátt og ég held að það væri hálf dapurt að fara í gegn um lífið án þess að trúa og finnast lífið hafa tilgang. Ég bið mínar bænir á minn hátt. Mest geri ég það í gegnum hugleiðsluna og sæki mér þá andlegu næringu sem ég þarf hverju sinni. Það hentar mér ekki endilega að fara í kirkju eða á einn ákveðinn stað til að sinna minni trú en ég er sannarlega andlega sinnuð.“ Ljnda segir að með því að vinna með veikleika sína hafi þeir margir hverjir snúist upp í styrkleika. „Það sem eitt sinn var undanlátssemi hefur breyst í skilning og kærleika. Ég læt heldur ekki lengur þræla mér inn í einhverja atburðarás sem ég vil ekki vera þátttakandi í. Ég forðast að vera í sam- skiptum við fólk sem er ekki gott fyrir mig að vera í samskiptum við og ég neita að gefa öðrum vald yfir minni líðan.“ Hún kynntist búddafræðum og hindú- isma á ferðalögum sínum um Asíu og hefur lesið sér mikið til á því sviði. „Í raun trúi ég á það góða í fólki og í lífinu yfir höfuð. Ég held að það væri gott ef við gætum tamið okkur að vera ekki að dæma aðra heldur hugsa bara um okkur sjálf og hvernig við getum bætt okkur í staðinn fyrir hvað náunginn þarf að gera.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Vinkonum mínum finnst ég vera algjör nörd þegar ég tala um þessa ástríðu en ég hef mjög mikinn áhuga á týpó grafíu Linda Pétursdóttir hefur rekið baðhúsið í tvo áratugi. Hún segir að sinn styrkleiki í starfi sé að hún gengur strax í verkefnin og lætur ekkert stoppa sig. Ljósmynd/Ásta Kristjánsdóttir 18 viðtal Helgin 3.-5. janúar 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.