Fréttatíminn - 03.01.2014, Page 34
Hjá Pole Sport eru tímarnir þann-
ig uppbyggðir að fólk byrjar á byrj-
endanámskeiði og vinnur sig upp
eftir stjörnukerfi og stendur hvert
námskeið yfir í sex vikur. „Þjálfarar
Pole Sport hafa sótt kennaranám-
skeið erlendis í Pole Fitness og
Lyra lofthringjum. Einnig starfa
þar einkaþjálfarar, TRT þjálf-
arar, þrekþjálfarar, jóga kennarar,
Zumba kennarar og þannig mætti
telja,“ segir Sólveig. Bæði þjálfarar
og nemendur Pole Sport hafa tekið
þátt í ýmsum keppnum, svo sem
Dans dans dans, Hæfileikakeppni
Íslands og Evrópumótum í Pole
Fitness.
Þær stöllur segja Pole Fitness
ótrúlega góða líkamsrækt og að
flestir byrji að æfa því æfingarnar
séu svo skemmtilegar. „Maður
lærir alltaf eitthvað nýtt á hverri
æfingu og það gerir þetta svo
skemmtilegt. Það þarf ekki neinn
grunn í dansi eða fimleikum til að
mæta á æfingar hjá okkur. Sjálf var
ég í handbolta áður og komst ekki
í splitt þegar ég byrjaði,“ segir Sól-
veig.
Fólk af báðum kynjum æfir
hjá Pole Sport þó konurnar séu
í miklum meirihluta. „Við erum
mjög ánægðar með strákana sem
mæta. Það er miklu stærra skref
fyrir þá en stelpurnar. Þeir hafa
frekar stundað æfingar á Lyra-
hringjunum en við erum einmitt
með karl sem þjálfar þá grein.“
Um helgina verður opið hús hjá
Pole Sport, bæði laugardag og
sunnudag og eru allir velkomnir.
Ný námskeið hefjast svo 6. janúar.
Nánari upplýsingar má nálgast á
polesport.is og á Facebook-síðu
Pole Sport Heilsuræktar, www.
facebook.com/polesport.is
P ole Fitness og loftfimleikar í Lyra-hringjum er mjög góð alhliða líkamsrækt þar sem
iðkendur nota sína eigin þyngd og
styrkja kvið, bak, hendur, axlir og
fætur, allt á sömu æfingunni,“ segir
Halldóra Kröyer, kennari hjá Pole
Sport. Stöðin var opnuð fyrir þremur
árum og þar ríkir heimilisleg og
notaleg stemning og hefur iðkendum
fjölgað með hverju árinu. Boðið er
upp á tíma fyrir fólk á öllum aldri
og geta 18 ára og yngri, búsettir í
Reykjavík eða Kópavogi, notað frí-
stundakort ÍTR eða íþróttastyrki og
fengið æfingagjöldin niðurgreidd.
Vinatímar vinsælir
Vinahópar geta tekið sig saman og
byrjað að stunda Pole Fitness, Lyru
lofthringi, Zumba, Fit Pilates eða
jóga einu sinni í viku og hafa tím-
arnir verið mjög vinsælir í vetur. „Þá
velur hópurinn tímasetningu sem
hentar best, til dæmis á föstudög-
um. Þá mætir hópurinn og tekur
skemmtilega æfingu með þjálfara.
Hópurinn getur einnig mætt í alla
opna tíma hjá okkur. Vinatímarnir
eru alveg tilvaldir fyrir fólk sem
finnst það hittast of sjaldan og þá er
þetta kjörið tækifæri til að hittast
að minnsta kosti einu sinni í viku,“
segja Sólveig og Halldóra.
Í Pole Sport er einnig tekið á móti
gæsa- og steggjahópum, sauma-
klúbbum, óvissuferðum, árshátíðum
og vinahópum sem vilja prófa einu
sinni og hafa gaman.
Hammock í fyrsta sinn á Íslandi
Síðar á árinu kemur kennari frá
Bandaríkjunum til að halda þjálfara-
námskeið í Pole Sport og ætlar hann
að kenna Hammock, sem er jóga á
hvolfi og verður það í fyrsta sinn sem
það er í boði hér á landi.
Hammock er silkiborði festur í
U-lykkju og framkvæmdar eru lið-
leika-, jóga- og styrktaræfingar inni í
borðanum. Halldóra og Sólveig segja
Hammock skemmtilega leið til að
koma sér í form og auka andlega vel-
líðan. „Með þessu æfingakerfi getur
fólk í mismunandi formi náð árangri
á sínum hraða. Við hjá Pole Sport
stefnum svo að því að hefja kennslu á
Hammock síðar á árinu.“
34 heilsa Helgin 3.-5. janúar 2014
Opnir kynningartímar – Vorönn 2014
Laugardagur
4.janúar 2014
Sunnudagur
5.janúar 2014
11:00 – Unglingar Pole&Lyra 14:00 – Pole Byrjendur
12:00 – Pole Byrjendur 15:00 – Lyra Byrjendur
13:00 – Lyra Byrjendur 16:00 – Pole Byrjendur
14:00 – Pole Frammhald 17:00 – Pole Frammhald
Allskonar fyrir alla,
komdu og prófaðu
öðruvísi líkamsrækt.
Dagana 4.& 5.janúar
verða opnir
kynningartímar !
Ný námskeið hef jast
6 . janúar 2014 !
Verð : 13.900 kr
Nám skeið in s tanda yf i r t i l
16. febrúar (6 v ikur)
Pole Sport Heilsurækt Skipholti 23, 2.hæð s.778-4545 www.polesport.is
Halldóra Kröyer og Sólveig Steinunn Pálsdóttir hóuðu saman vinkon-
um sínum fyrir nokkrum árum og saman byrjuðu þær að æfa sig í Pole
Fitness. Svo komu vinir þeirra og vinir vina þeirra og svo fór að þær
ákváðu að stofna fyrirtækið Pole Sport sem hefur vaxið og dafnað
síðan. Eftir áramót verður boðið upp á fjölda námskeiða í Pole Fitness,
loftfimleikum á Lyra-hringjum og Hammock, sem er jóga á hvolfi.
Jóga á hvolfi
í fyrsta sinn
á Íslandi
Halldóra Kröyer og Sólveig Steinunn Pálsdóttir hjá Pole Fitness Heilsurækt segja dagskrána fram undan fjölbreytta
og skemmtilega. Kennarar stöðvarinnar hafa sótt sér menntun erlendis í Pole Fitness og Lyra-hringjum.
Í Pole Sport ríkir heimilisleg stemning og
segja þær Halldóra og Sólveig Steinunn
Pole Fitness og loftfimleika á Lyra-hringj-
um mjög góða alhliða líkamsrækt sem
henti fólki af báðum kynjum á öllum aldri.
Vinahópar geta tekið sig
saman og byrjað að stunda
Pole Fitness, Lyru lofthringi,
Zumba, Fit Pilates eða jóga
einu sinni í viku.
KYNNING