Fréttatíminn - 03.01.2014, Page 38
B rynjólfur Björns-son, sundþjálfari hjá Syndaselum, heldur
námskeið fyrir ósynt, full-
orðið fólk. Námskeiðin eru
fjóra laugardagsmorgna í
Sundhöll Reykjavíkur og
hefst það næsta laugardag-
inn 11. janúar. „Við erum í
lítilli og grunnri kennslulaug
svo það ná allir til botns.
Yfirleitt eru ekki fleiri en sex
manns á hverju námskeiði
og ég er alltaf með nemend-
um ofan í lauginni. Hægt og
rólega lærir fólk að slaka á
og öðlast öryggi í vatninu og
upplifa þá vellíðan sem því fylgir,“
segir Brynjólfur sem veit ekkert
skemmtilegra en að kenna fólki að
halda sér í formi með því stunda
sundíþróttina. Sjálfur var hann lengi
keppnismaður í sundi og á að baki
nokkur Íslandsmet og Íslandsmeist-
aratitla.
Á námskeiðinu fer hver og einn
á sínum hraða og segir Brynjólfur
suma verða synda eftir aðeins eitt
slíkt námskeið. Aðrir taki
tvö eða fleiri námskeið til að
ná góðum tökum á grunn-
inum. Hann segir ýmsar
ástæður fyrir því að fólk á
fullorðinsaldri hafi ekki lært
að synda. „Fólkið á nám-
skeiðunum hjá mér er bæði
innflytjendur sem hafa ekki
lært að synda í barnæsku
og Íslendingar sem af
ýmsum ástæðum hafa ekki
getað stundað sundið fyrr á
ævinni.“
Í starfi sínu sem sund-
kennari í gegnum árin
hefur Brynjólfur séð marga
nemendur blómstra í lauginni og í
framhaldinu farið að stunda sundið
reglulega sér til heilsubótar. „Stund-
um hitti ég fólk nokkrum árum eftir
að það hefur lokið námskeiði og það
þakkar mér kærlega fyrir kennsl-
una. Einu sinni var ég knúsaður úti
í matvörubúð tveimur árum eftir
að námskeiði lauk. Það er virkilega
gott að finna hversu þakklátt fólk
er fyrir að hafa lært að synda.“
38 heilsa Helgin 3.-5. janúar 2014
Hægt og
rólega
lærir fólk
að slaka á
og öðlast
öryggi í
vatninu og
upplifa þá
vellíðan
sem því
fylgir.
Höfum opnað náttúrulækningastofur
að Strandgötu 33, Hafnarfirði
Ertu tilbúin/n í 3ja mánaða umbreytandi vinnu
með heilsuna þína? Byrjum í janúar.
Einkaviðtöl - Grasalækningar - Olíumeðferðir - Augnlestur
Upplýsingar og tímapantanir:
Heilsumeistarar ND
Ásta Ólafsdóttir
asta.olafsdottir@gmail.com
899 2239
Katrín Níelsdóttir
katrinniels@gmail.com
864 2560
FRUMKVÖÐULL Í 30 ÁR
kramhusid.is
551·5103&551·7860
Komdu!Byrjum 6. janúar
SKRÁNING
STENDUR
YFIR
í Kramhúsið
» Yoga » Leikmi
» Pilates
DANSNÁMSKEIÐ
beyoncé · bollywood
afró · house dans
burlesque · tangó
húlla · magadans
zumba
balkan
contemporary
FJÖLBREYTT NÁMSKEIÐ
fyrir 3ja til 16 ára
Dans og skapandi hreyng
tónlistarleikhús · breikdans
popping · yoga · afró
FRUMKVÖÐULL Í 30 ÁR
Námskeið fyrir ósynda
og vatnshrædda
Brynjólfur veit
ekkert skemmti-
legra en að
kenna fólki að
halda sér í formi
með því að
stunda sundí-
þróttina.
Brynjólfur Björns-
son kennir ósynd-
um í grunnri
laug í Sundhöll
Reykjavíkur.
Sumir verða
syndir eftir eitt
slíkt námskeið en
aðrir taka tvö eða
fleiri til að ná tök-
um á grunninum.
Margir nemenda
hans hafa í fram-
haldinu farið
að stunda sund
reglulega sér til
heilsubótar.