Fréttatíminn - 03.01.2014, Blaðsíða 40
40 heilsa Helgin 3.-5. janúar 2014
UPPÁHALDS SÚKKULAÐISJEIK
Ebbu Guðnýjar
1 MSK TAHINI (EÐA VÆN LÚKA AF MÖNDLUM/KASJÚHNETUM,
BEST EF LAGÐAR Í BLEYTI YFIR NÓTT FYRST)
1 MSK LÍFRÆNT KAKÓ
6 DROPAR VANILLUSTEVIA EÐA SÚKKULAÐISTEVIA
1 FROSINN BANANI (EÐA ÓFROSINN OG KLAKI TIL AÐ
GERA DRYKKINN KALDAN)
1 OG 1/2 DL VATN
1 DL LÍFRÆN ÓSÆT MÖNDLUMJÓLK EÐA VATN
2 MSK HÖRFRÆ- EÐA HAMPOLÍA (MÁ SLEPPA)
BLANDIÐ ÖLLU VEL SAMAN Í BLANDARA OG DREKKIÐ STRAX.
EF ÞIÐ ÆTLIÐ AÐ TAKA DRYKKINN MEÐ ER BETRA AÐ NOTA
ÞRJÁR DÖÐLUR Í STAÐ BANANA.
ÉG SET EIGINLEGA ALLTAF 2 MSK AF CHIAFRÆJUM Í MINN!
Ný vara frá Nutramino
Pre-workout 600gr.
Fæst í Krónunni
Á hlaupum á nýju ári
Góðir skór eru nauðsyn-
legir fyrir hlaupara.
Mynd/GettyImages
Margir ætla eflaust að spretta úr spori á nýja árinu og koma
sér þannig í sitt besta form. Í hlaupi eins og öðru er kapp best
með forsjá. Hér koma nokkrar ráðleggingar fyrir þá sem eru
að stíga fyrstu skrefin í hlaupum eða að byrja aftur eftir langa
hvíld.
Góðir skór eru nauðsynleGir. Það þarf ekki að vera kostn-
aðarsamt að byrja að stunda hlaup en allir ættu að fá sér góða
hlaupaskó áður en skokkað er af stað.
Góður félaGsskapur getur drifið okkur áfram. Fáum góðan
vin með okkur út að hlaupa og þá verða skrefin léttari. Skokk- og
hlaupahópar eru víða um land og um að gera að nýta sér visku
þjálfara og hinna reyndari sem þar eru.
endurskinsvesti oG -merki eru lífsnauðsynleg þegar hlaupið
er úti í skammdeginu. Einnig er mikilvægt að klæða sig eftir veðri
og ekki láta smá vind stoppa sig. Hlaup í roki og rigningu er yfir-
leitt mjög hressandi, sérstaklega eftir á.
raunhæf markmið eru mikilvæg eigi hlaupið að verða lífs-
stíll til framtíðar. Gott er að byrja rólega og bæta við sig smátt
og smátt en ekki fara af stað með látum því þá eykst hætta á
meiðslum. Hvert hlaup þarf að byrja á rólegri upphitun.
mörG almenninGshlaup fara fram í allt árið um kring og
getur verið hvetjandi að taka reglulega þátt í þeim og bæta tímann
sinn. Þá er mikilvægt að vera ekki að keppa við aðra, heldur
sjálfan sig. Núna í janúar hefst skráning í Reykjavíkurmaraþon og
Miðnæturhlaup á Jónsmessu.
Á hlaup.is er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir
hlaupara, eins og ýmsar ráðleggingar, æfingaáætlanir og lista yfir
almenningshlaup og skokkhópa.