Fréttatíminn - 14.02.2014, Blaðsíða 65
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós
Kínverskt mál og kínversk menn-
ing er þema nýárshátíðar sem
haldin verður á Háskólatorgi
í Háskóla Íslands á morgun.
Drekadans, ferðaráð, tedrykkja
og tónlist er meðal þess sem
stendur gestum til boða.
„Kínverska menningarhátíðin er
tilvalið tækifæri til að kynnast
betur kínverskri menningu, mat
og siðum,“ segir Magnús Björns-
son forstöðumaður Konfúsíusar-
stofnunar Norðurljósa. Stofnunin
stendur í ár rétt eins og í fyrra
fyrir kínverskri menningarhátíð á
Háskólatorgi Háskóla Íslands.
Á hátíðinni er kínverska nýár-
inu fagnað og haldið upp á lukt-
arhátíð um leið. Kínverska nýárið
gekk í garð þann 31. janúar síðast-
liðinn en luktarhátíð má líkja við
þrettándann hér á landi, hún er
haldin í lok hátíðarhalda í tengsl-
um við kínverska nýárið.
Hér verður þessum tveimur há-
tíðum slegið saman í skemmti-
lega menningarhátíð en dag-
skrá hennar hefst klukkan tvö á
morgun laugardaginn 15. febrúar
og stendur til hálf fimm.
„Þemað á hátíðinni í ár er kín-
verskt mál og kínversk menning,“
segir Þorgerður Anna Björnsdótt-
ir, viðburðarstjóri Konfúsíusar-
stofnunar.
Meðal dagskrárliða eru
drekadans, Heilsudrekinn sýnir
kínverskar bardagalistir og KK
verður með tónlistaratriði.
„Við munum kynna kínverska
matarmenningu, en á boðstólum
verður kínverskur matur og te,“
segir Magnús. Nemendur í kín-
verskum fræðum verða með bása
þar sem gestir og gangandi geta,
meðal annars, kynnt sér ferða-
lög um Kína, kínverskt ritmál og
skrautskrift.
„Fólk getur fengið nafnið sitt
ritað með kínverskum táknum
og uppi á sviðinu verður hægt
að máta kínversk föt og láta taka
mynd af sér. Sem er sérstaklega
skemmtilegt fyrir börnin,“ segir
Þorgerður Anna. „Þetta verður
hátíð fyrir alla fjölskylduna og
margt spennandi í gangi. Ég hvet
alla til að mæta,“ segir Magnús að
lokum.
-Kristín Clausen
Fagna kínverska nýárinu Kínversk
fræði í HÍ
Mynd: Konfúsíusrastofnunin
8
Heillaðist af Hong Kong
7
Kínverskar bardagamyndir
3
Verðlaun fyrir Qigong
2
Heimsreisan breyttist í nám
Ljónadans er samofin kínverskri menningu og kínverskum hátíðarhöldum. Þessi mynd er tekin í Dalí í Yunnan-héraði í suðvestur Kína þar sem ferðalangar geta fylgst með ljóna-
dansi árið um kring. Kínverska nýárið gekk í garð 31. janúar í ár en Íslendingar geta tekið þátt í kínverskri nýárshátíð á Háskólatorgi í Háskóla Íslands á morgun.
Mynd: Þorgerður Anna Björnsdóttir
Þann 31. janúar gekk ár hestsins í garð og tók við af ári snáksins. Kín-
versk stjörnumerki eru tólf en í dýrahringnum eru rotta, uxi, tígur,
kanína, dreki, snákur, hestur, geit, api, hani, hundur og svín. Spurð-
ur um ár hestsins segir Magnús það vera ár vinnusemi en margt
drastískt geti gerst ef hestinum er hleypt á skeið.
Samkvæmt fræðunum eru fólk sem fætt er á ári hestsins hæfileik-
aríkt í samskiptum, greint og hjartahlýtt. Fólk fætt á þessu ári tekur
sér líka gjarnan stöðu í sviðsljósinu. Veikleikar þeirra sem fæddir eru
á ári hestsins eru yfirborðsmennska og óþolinmæði.
Þar sem kínverski stjörnuhringurinn hleypur á tólf árum var ár
hestsins síðast árið 2002. Hefðbundið kínverskt tímatal byggist á
tunglinu og er dagsetningin á áramótum því breytileg.
Hesturinn tekur við af snáknum
Frá hátíðarhöldunum í fyrra.
Kínversk fræði hafa verið kennd
í Háskóla Íslands um nokkurra
ára skeið. Auk þess stendur nem-
endum til boða að taka kjörsvið
viðskiptatengdrar kínversku
sem sameinar nám í kínverskum
fræðum og viðskiptafræði. Velji
nemendur að taka 180 einingar í
kínverskum fræðum eða viðskipta-
tengdri kínversku stendur þeim
til boða að ljúka náminu við kín-
verskan háskóla.
Kjarni kínverskra fræða felst
í kínverskunámi. Í náminu er
kennt staðlað kínverskt talmál
sem einnig er kennt við mandarín
(embættismál fyrri tíma), guoyu
(„þjóðtunga“) og putonghua („al-
menn tunga“). Í kínverskunáminu
er markmiðið að gera nemendum
kleift að skilja og tjá sig á hvers-
dagslegu máli.
Þá hefur námið að geyma sam-
félags- og menningartengd nám-
skeið. Þar á meðal fær löng og við-
burðarík saga Kína talsvert rými
en nemendur fá einnig innsýn inn
í samfélagsþróun í Kína, marg-
brotið samfélag samtímans og kín-
verskt viðskiptaumhverfi.